Fara beint í efnið

Prentað þann 18. apríl 2024

Breytingareglugerð

474/1997

Reglugerð um breyting á reglugerð nr. 255/1993, um vörugjald af eldsneyti, með áorðnum breytingum.

1. gr.

2. málsl. 1. mgr. 3. gr. reglugerðarinnar orðist svo:

Af blýlausu bensíni skal greiða gjald sem nemur 26,60 kr. af hverjum lítra. Af öðru bensíni skal greiða gjald sem nemur 28,30 kr. af hverjum lítra.

2. gr.

Reglugerð þessi sem sett er með heimild í 28. gr. laga nr. 29/1993, um vörugjald af ökutækjum, eldsneyti o.fl. öðlast gildi hinn 1. ágúst 1997 og tekur til innflutnings á bensíni sem tekið er til tollafgreiðslu frá og með þeim degi.

Ákvæði til bráðabirgða.

Þeir aðilar sem gjaldskyldir eru samkvæmt 18. gr. laga nr. 29/1993, skulu greiða bensíngjald af óseldum bensínbirgðum sem þeir eiga þann 1. ágúst 1997, til viðbótar því bensíngjaldi sem greiða skal samkvæmt reglugerð nr. 355/1996. Gjald þetta skal nema 1,09 kr. af hverjum lítra af blýlausu bensíni og 1,19 kr. af hverjum lítra af öðru bensíni og skal því skilað á sama tíma og bensíngjaldi samkvæmt reglugerð nr. 255/1993, með áorðnum breytingum.

Hver sá, sem á eða hefur til umráða gjaldskyldar birgðir af bensíni hinn 1. ágúst 1997, skal ótilkvaddur tilkynna það innheimtumanni ríkissjóðs fyrir 10. ágúst 1997. Eigandi eða umráðamaður þess skal ótilkvaddur aðstoða við að kanna birgðir óski innheimtumaður slíkrar aðstoðar.

Innheimtumaður ríkissjóðs getur krafist upplýsinga frá innflytjendum bensíns og bensínsölum um sölu samkvæmt verslunarbókum til viðskiptamanna er fram fór fyrir 1. ágúst 1997.

Fjármálaráðuneytinu, 28. júlí 1997.

F. h. r.

Indriði H. Þorláksson.

Ástráður Karl Guðmundsson.

Fyrirvari

Reglugerðir eru birtar í B-deild Stjórnartíðinda skv. 3. gr. laga um Stjórnartíðindi og Lögbirtingablað, nr. 15/2005, sbr. reglugerð um útgáfu Stjórnartíðinda nr. 958/2005.

Sé misræmi milli þess texta sem birtist hér í safninu og þess sem birtur er í útgáfu B-deildar Stjórnartíðinda skal sá síðarnefndi ráða.