|
|
473/2009
REGLUGERÐ
um umdæmi héraðsdómstóla vegna sameiningar sveitarfélaga.
1. gr. Sveitarfélögin Fjallabyggð og Langanesbyggð heyra til umdæmis héraðsdóms Norðurlands eystra.
2. gr. Reglugerð þessi, sem sett er með heimild í 42. gr. laga um dómstóla nr. 15 25. mars 1998, með síðari breytingum, öðlast þegar gildi.
Dóms- og kirkjumálaráðuneytinu, 11. maí 2009.
Ragna Árnadóttir. Þórunn J. Hafstein.

|