REGLUGERÐ
um skipulags-, bygginga- og umhverfismál á varnarsvæðum.
1. gr.
Utanríkisráðherra skipar sex
manna nefnd, er fer með skipulags-, bygginga- og umhverfismál á varnarsvæðum, í
samráði við varnarmálaskrifstofu utanríkisráðuneytisins.
Nefndin er skipuð þessum mönnum:
Fulltrúa Skipulagsstofnunar, flugvallarstjóra Keflavíkurflugvallar,
framkvæmdastjóra Sambands sveitarfélaga á Suðurnesjum, fulltrúa
varnarmálaskrifstofu, forstöðumanni Hollustuverndar ríkisins og manni skipuðum
af utanríkisráðherra til 4 ára í senn, og er hann jafnframt formaður
nefndarinnar. Hann skal hafa sérþekkingu á skipulags- og byggingarmálum.
2. gr.
Nefndin skal fjalla um öll þau
skipulags-, bygginga- og umhverfismál á varnarsvæðum, bæði að því er varðar
varnarliðið og aðra aðila, sem varnarmálaskrifstofa óskar álits um.
Varnarmálaskrifstofan skal afla
upplýsinga um fyrirhugaðar byggingar og mannvirkjagerð varnarliðsins, svo og
fyrirhugað skipulag og staðsetningu slíkra bygginga og mannvirkja, og leggja
fyrir nefndina. Aðrir aðilar skulu senda beiðnir sínar um leyfi til bygginga
eða mannvirkjagerðar á varnarsvæðunum ásamt nauðsynlegum fylgigögnum beint til
nefndarinnar.
3. gr.
Nefndin skal halda fundi svo oft
sem þörf er á. Nefndin skal halda sameiginlega fundi með yfirstjórn skipulags-,
bygginga- og umhverfismála varnarliðsins að öllu jöfnu mánaðarlega.
4. gr.
Nefndin skal gæta þess, að
ákvæðum íslenskrar löggjafar um skipulags-, bygginga- og umhverfismál sé fylgt
eftir því sem við á. Nefndinni er rétt að taka tillit til staðla Bandaríkjahers
og staðla Atlantshafsbandalagsins um byggingar og mannvirkjagerð að því marki
sem nauðsynlegt er vegna varna ríkisins.
Áður en nefndin afgreiðir mál
skal hún, ef um er að ræða mál, sem varða skipulagsskyld svæði, er liggja að
varnarsvæðum, ætíð hafa samráð við Skipulagsstofnun og sveitarfélög, sem hlut
geta átt að máli.
Álitsgerðir sínar sendir nefndin
varnarmálaskrifstofu til endanlegrar samþykktar.
Komi upp ágreiningsmál má skjóta
þeim til utanríkisráðherra sem hefur endanlegt ákvörðunarvald.
5. gr.
Reglugerð þessi, sem sett er á
grunni laga nr. 106, 17. desember 1954 um yfirstjórn mála á varnarsvæðum o.fl.,
sbr. auglýsingu um staðfestingu forseta Íslands á reglugerð um Stjórnarráð
Íslands nr. 96, 31. desember 1969, laga nr. 110/1951 um lagagildi
varnarsamnings milli Íslands og Bandaríkjanna og um réttarstöðu liðs
Bandaríkjanna og eignir þess og með heimild í 61. gr. skipulags- og
byggingarlaga nr. 73, 28. maí 1997 og skipulagsreglugerð nr. 400/1998 og
byggingareglugerð nr. 441/1998 og 4. og 5. gr. laga nr. 7, 12. mars 1998 um
hollustuhætti og mengunarvarnir með síðari breytingum og reglugerðum settum á
grundvelli þessara ákvæða, öðlast þegar gildi. Fellur þá úr gildi reglugerð um
skipulags-, bygginga- og umhverfismál á varnarsvæðum, nr. 488, 1. desember
1993.
Utanríkisráðuneytinu, 3. júní 1999.
Halldór Ásgrímsson.
Sverrir Haukur Gunnlaugsson.
Word útgáfa af reglugerð