Hoppa beint í aðalvalmynd
Stjórnarráðið  |  Ríkisstjórn  |  Réttarheimildir  |  Alþingi  |
 
Stjórnarráð Íslands    
  Forsíða  
 

  Reglugerðir

með breytingum
eftir ráðuneytum
eftir ártali
eftir köflum í safninu
brottfallnar
Leit
 

468/2007
felld brott með rg. nr. 443/2012

REGLUGERÐ
um gildistöku reglugerðar Evrópusambandsins um almannatryggingar
(réttindi úr lífeyrissjóðum) (IX).

1. gr.
Reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (EB) nr. 1851/2003 frá 17. október 2003 um breytingu á reglugerð ráðsins (EBE) nr. 574/72 um beitingu almannatryggingareglna gagnvart launþegum, sjálfstætt starfandi einstaklingum og aðstandendum þeirra sem flytjast á milli aðildarríkja, skal gilda á Íslandi, sbr. ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 10/2005 frá 8. febrúar 2005 um breytingu á VI. viðauka (Félagslegt öryggi) við EES-samninginn. Reglugerðin skal gilda á Íslandi með þeirri aðlögun sem fram kemur í ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar.

Reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (EB) nr. 1851/2003 fjallar að hluta til um atvinnuleysistryggingar, greiðslur í fæðingarorlofi, barnabætur og réttindi úr lífeyrissjóðum. Í reglugerð frá félagsmálaráðuneytinu er mælt fyrir um gildistöku þess hluta sem fjallar um atvinnuleysistryggingar og greiðslur úr fæðingarorlofi samkvæmt lögum um fæðingar- og foreldraorlof. Í reglugerð frá heilbrigðis- og tryggingamálaráðuneytinu er mælt fyrir um gildistöku þess hluta sem fjallar um réttindi samkvæmt lögum um almannatryggingar.


2. gr.
Reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (EB) nr. 1851/2003 og ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 10/2005, sbr. 1. gr., sem birt er í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi EB, nr. 32, 23. júní 2005, bls. 12-14, er birt sem fylgiskjal með reglugerð heilbrigðis- og tryggingamálaráðuneytisins nr. 463/2007.


3. gr.
Reglugerð þessi, sem sett er með stoð í 56. gr. laga nr. 129/1997, um skyldutryggingu lífeyrisréttinda og starfsemi lífeyrissjóða, með síðari breytingum, öðlast þegar gildi.


Fjármálaráðuneytinu, 11. maí 2007.

F. h. r.
Baldur Guðlaugsson.
Ingibjörg H. Helgadóttir.

B_nr_468_2007.doc

 
Stjórnartíðindi - Sölvhólsgötu 7 - 150 Reykjavík Sími 545 9000
Bréfasími 552 7340 - Netfang: reglugerdir@irr.is
Prentvænt