Reglugerð
um lánaflokka Íbúðalánasjóðs.
I. KAFLI
Almenn ákvæði.
1. gr.
Gildissvið.
Reglugerð þessi tekur til
lánveitinga Íbúðalánasjóðs sem stofnað er til skv. 16. gr. laga nr. 44/1998, um
húsnæðismál.
2. gr.
Lánaflokkar.
Lánaflokkar Íbúðalánasjóðs eru
eftirfarandi:
1. Lán
til byggingar eða kaupa á heimilum og dagvistarstofnunum fyrir aldraða.
2. Lán
til byggingar leikskóla fyrir börn.
3.
Aukalán - lán til einstaklinga með sérþarfir.
4.
Viðgerðarlán.
5. Lán
til meiri háttar utanhússviðhalds innlausnaríbúða.
6. Lán
eða styrkir til tækninýjunga og annarra umbóta í byggingariðnaði.
7. Lán
til leiguíbúða.
8. Lán
til byggingar eða kaupa á vistheimilum fyrir börn og unglinga.
3. gr.
Fjárhagsáætlun Íbúðalánasjóðs.
Í tengslum við gerð fjárlaga,
lánsfjárlaga og sölu húsnæðisbréfa, skv. 10. gr. laga nr. 44/1998 skal stjórn
Íbúðalánasjóðs gera árlega áætlun um veitingu lána og styrkja, skv. 2. gr.
4. gr.
Lánskjör.
Vextir af lánum Íbúðalánasjóðs,
skv. 2. gr skulu taka mið af þeim lánskjörum, sem Íbúðalánasjóði bjóðast hverju
sinni. Stjórn Íbúðalánasjóðs skal við gerð fjárhagsáætlunar ár hvert ákveða
vexti fyrir einstaka lánaflokka að fenginni umsögn Seðlabanka Íslands. Stjórn
Íbúðalánasjóðs lætur birta ákvörðun sína um vexti í Lögbirtingablaði fyrir 1.
febrúar ár hvert.
Lánin eru að fullu verðtryggð og
höfuðstóll þeirra miðast við vísitölu neysluverðs eins og hún er á hverjum
tíma.
Lánin endurgreiðast að fullu með
jöfnum greiðslum vaxta og afborgana (annuitet) að viðbættum verðbótum á
lánstímanum. Gjalddagar lána skulu eigi vera færri en fjórir á ári. Stjórn
Íbúðalánasjóðs er heimilt að fjölga gjalddögum ef það er talið æskilegt.
Fjárhæð lána skal nema að hámarki
tilteknu hlutfalli af samþykktum byggingarkostnaði eða kaupverði. Stjórn
Íbúðalánasjóðs ákveður þetta lánshlutfall í upphafi hvers árs.
Um lánskjör, þ. á m. lánstíma og
lánshlutfall fer að öðru leyti eftir því sem ákveðið er um einstaka lánaflokka
í II. - IX. kafla.
II. KAFLI
Heimili og dagvistarstofnanir fyrir aldraða.
5. gr.
Tilgangur.
Lán skv. 1. tölul. 2. gr. er
heimilt að veita þeim er byggja eða kaupa hjúkrunarheimili, dvalarheimili eða
dagvistarstofnanir fyrir aldraða.
6. gr.
Lánsfjárhæð og veðrými.
Við ákvörðun lánsfjárhæðar skal
taka tillit til fjármagns frá Framkvæmdasjóði aldraðra og úr ríkissjóði til
hlutaðeigandi framkvæmda þannig að lán úr Íbúðalánasjóði og fjármagn frá
Framkvæmdasjóði aldraðra eða framlag úr ríkissjóði verði samanlagt aldrei hærri
en 90 % af kaupverði eða byggingarkostnaði.
Veðrými miðast við allt að 65% af
byggingarkostnaði eða kaupverði. Miða skal við 65% af brunabótamati ef það er
lægra.
7. gr.
Umsóknir.
Umsækjendur um lán skulu senda
umsóknir sínar til Íbúðalánasjóðs og leggja fram þær upplýsingar sem hann telur
nauðsynlegar til undirbúnings afgreiðslu þeirra.
Lán þessi skulu því aðeins veitt
að fyrir liggi rökstudd greinargerð um þörf fyrir framkvæmdir, studd gögnum frá
hlutaðeigandi sveitarfélagi. Þá skal umsögn frá heilbrigðisráðuneyti einnig
fylgja umsókn þegar um er að ræða heimili eða dagvistar-
stofnanir fyrir aldraða.
8. gr.
Lánstími og útborgun láns.
Lán samkvæmt þessum kafla koma
til greiðslu, þegar framkvæmdum er lokið eða samkvæmt kauptilboði.
Lánstími skal vera allt að 25 ár.
9. gr.
Uppgreiðsla.
Sé rekstri húsnæðis, sem lánað
hefur verið til samkvæmt þessum kafla, hætt eða það tekið undir annan rekstur,
skal áhvílandi lán Íbúðalánasjóðs greitt upp. Þinglýsa skal kvöð þessa efnis á
íbúðina samhliða þinglýsingu lánsins.
Tilkynna skal Íbúðalánasjóði um
breytingar skv. 1. mgr. án ástæðulausrar tafar.
III. KAFLI
Lán til byggingar leikskóla fyrir börn.
10. gr.
Tilgangur.
Lán skv. 2. tölul. 2. gr. er
heimilt að veita þeim sem byggja leikskóla fyrir börn.
11. gr.
Lánsfjárhæð.
Við ákvörðun lánsfjárhæðar skal
taka tillit til fjármagns frá sveitarfélögum, skv. lögum nr. 112/1976, um
byggingu og rekstur dagvistarheimila fyrir börn, og úr ríkissjóði til
hlutaðeigandi framkvæmda þannig að lán úr Íbúðalánasjóði og fjármagn frá
nefndum aðilum verði aldrei hærra en 90 % af kaupverði eða byggingarkostnaði.
Veðrými miðast við allt að 65% af
byggingarkostnaði eða kaupverði. Miða skal við 65% af brunabótamati ef það er
lægra.
12. gr.
Umsóknir.
Umsækjendur um lán skulu senda
umsóknir sínar til Íbúðalánasjóðs og leggja fram þær upplýsingar sem hann telur
nauðsynlegar til undirbúnings afgreiðslu þeirra.
Lán þessi skulu því aðeins veitt
að fyrir liggi rökstuddar upplýsingar um þörf fyrir framkvæmdir, studdar gögnum
frá hlutaðeigandi sveitarfélagi.
13. gr.
Lánstími og útborgun láns.
Lán þessi koma til útborgunar
þegar framkvæmdum er lokið.
Lánstími skal vera allt að 25 ár.
14. gr.
Uppgreiðsla.
Sé rekstri húsnæðis, sem lánað
hefur verið til skv. þessum kafla, hætt eða það tekið undir annan rekstur, skal
áhvílandi lán Íbúðalánasjóðs greitt upp. Þinglýsa skal kvöð þessa efnis á
íbúðina samhliða þinglýsingu lánsins.
Tilkynna skal Íbúðalánasjóði um
breytingar skv. 1. mgr. án ástæðulausrar tafar.
IV. KAFLI
Aukalán - lán til einstaklinga með sérþarfir.
15. gr.
Tilgangur.
Heimilt er að veita aukalán fötluðum
og þeim sem búa við skerta starfsorku eða eru hreyfihamlaðir, skv. 3. tl. 2.
gr. Einnig er heimilt að veita aukalán til forsvarsmanna þeirra sem búa við
slíka fötlun.
Þegar upplýst er, með
fullnægjandi hætti að mati Íbúðalánasjóðs, að sérþarfir ofangreindra
einstaklinga leiði til aukins kostnaðar við breytingar, viðbætur, byggingu eða
kaup á íbúð er heimilt að þessi lán komi til viðbótar öðrum fasteignaveðlánum
frá Íbúðalánasjóði.
16. gr.
Lánsfjárhæð og útborgun láns.
Hámarksfjárhæð láns er kr. 3.700.000
miðað við byggingarvísitölu 1. janúar 1999, 231,2 stig. Ef um viðbótar- og
endurbótakostnað er að ræða er hámarkslán 80% af þeim kostnaði.
Ákvörðun um lánsfjárhæð liggi
fyrir við upphaf framkvæmda.
Lánið er heimilt að greiða út í
tvennu lagi við breytingar eða viðbætur á íbúð: Helming þess þegar 50%
framkvæmda er lokið og seinni hlutann við lok framkvæmda. Sé lánið greitt út í
einu lagi, verður a.m.k. 80% framkvæmda að vera lokið.
Veðrými miðast við allt að 90% af
byggingarkostnaði eða kaupverði íbúðar. Miða skal við 90% af brunabótamati ef
það er lægra.
Lántökugjald má vera allt að 1/2%
af veittri lánsfjárhæð og skal því haldið eftir við afgreiðslu lánsins.
17. gr.
Lánstími.
Lánstími skal vera allt að 40 ár.
18. gr.
Uppgreiðsla.
Lán fellur í gjalddaga og
endurgreiðist að fullu við eigendaskipti. Sama gildir ef lántaki flytur úr
húsnæðinu og ljóst er að hann muni ekki flytja þangað aftur. Þinglýsa skal kvöð
þessa efnis á íbúðina samhliða þinglýsingu lánsins.
Tilkynna skal Íbúðalánasjóði um
breytingar skv. 1. mgr. án ástæðulausrar tafar.
19. gr.
Flutningur láns.
Stjórn Íbúðalánasjóðs getur
heimilað aðila, er fengið hefur lán skv. þessum kafla, að flytja með sér lánið
við sölu íbúðar. Skilyrði er að fram komi í umsókn brýn þörf fyrir flutningi láns.
Gera skal sömu kröfur um veðtryggingu og giltu við lánveitinguna.
V. KAFLI
Viðgerðarlán.
20. gr.
Tilgangur.
Viðgerðarlán skv. 4. tl. 2. gr.
er heimilt að veita eigendum félagslegra eignaríbúða til meiri háttar
utanhússviðhalds.
Við skýringu á félagslegri
eignaríbúð skal beita 36. gr. laga nr. 97/1993, um Húsnæðisstofnun ríkisins,
sbr. 1. mgr. ákvæðis I til bráðabirgða í lögum um húsnæðismál.
Lán skv. þessum kafla veitist
eingöngu til viðbótar við það/þau lán sem þegar hvíla á íbúðinni frá
Íbúðalánasjóði eða lán sem sjóðurinn hefur yfirtekið skv. eldri lögum um
Húsnæðisstofnun ríkisins.
21. gr.
Skilyrði.
Skilyrði er að lánveiting sé
nauðsynleg til að afstýra því að hús liggi undir skemmdum. Að öðru leyti eru
skilyrði fyrir lánveitingu eftirfarandi:
1. Um meiri háttar
utanhússviðhald sé að ræða, sem Íbúðalánasjóður samþykkir fyrirfram, sbr. 22.
gr.
2. Umsókn berist Íbúðalánasjóði
áður en framkvæmdir hefjast. Umsókn fylgi kostnaðaráætlun, verklýsing, samþykki
byggingarfulltrúa fyrir framkvæmdinni og yfirlýsing frá húsfélagi um
framkvæmdina.
3. Framkvæmdir skal fela
viðurkenndum byggingarverktökum með útboðum og skal lánveiting taka mið af
hagstæðasta tilboði.
4 Verkið sé unnið í samræmi við
verklýsingu.
5. Kostnaður við utanhússviðhald
falli ekki undir ákvæði um varasjóð, sbr. 2. mgr. ákvæðis VIII til bráðabirgða
í lögum um húsnæðismál eða ákvæði 3. mgr. 53. gr. sömu laga.
22. gr.
Meiri háttar utanhússviðhald.
Með meiri háttar utanhússviðhaldi
er átt við:
1. Þak: Endurbygging á þaki, svo
sem þegar skipt er um þakklæðningu og einangrun.
2. Útveggir: Sprunguviðgerðir,
þéttingar og útveggjaklæðning, að veggir séu brotnir niður og steyptir upp að
nýju. Um viðgerð á útidyratröppum gildir sama og um viðgerð á útveggjum.
3. Gluggar: Skipti á
gluggapóstum, gluggakörmum og glerjum. Skipti á opnanlegum fögum.
4. Lóðaframkvæmdir: Endurnýjun á
jarðvegslögnum, ef talið er nauðsynlegt að skipta um jarðveg í lóð hússins til
að forða húsinu frá vatnsskemmdum.
Í þeim tilvikum, eingöngu, þar
sem samþykkt hafa verið lán til viðgerða samkvæmt 1. - 3. tölul., er jafnframt
lánað til kostnaðar vegna utanhússmálningar til sömu verkþátta. Eigi er lánað
til neins konar innanhússframkvæmda eða frágangs innanhúss. Gildir það einnig
enda þótt frágangur innanhúss sé bein afleiðing af utanhússskemmdum og
viðgerðum á þeim.
23. gr.
Lánsfjárhæð.
Hámarkslán má nema allt að 90% af
samþykktum kostnaði. Innifalinn í samþykktum kostnaði er sá fjármagnskostnaður
sem íbúðareigandi kann að bera vegna lántöku við framkvæmdirnar.
24. gr.
Lánstími og útborgun láns.
Lánið kemur til útborgunar þegar
Íbúðalánasjóður hefur samþykkt með úttekt sinni að verkið hafi verið unnið á
þann veg sem fram kemur í verklýsingu.
Lánstími skal vera allt að 25 ár.
Hvert lán skal tryggt með 1.
veðrétti í hlutaðeigandi íbúð samhliða áhvílandi
láni Íbúðalánasjóðs.
25. gr.
Innlausn.
Við innlausn félagslegra
eignaríbúða eru endurbætur utanhúss metnar samkvæmt mati húsnæðisnefndar byggðu
á reglum stjórnar Íbúðalánasjóðs, sbr. 6. mgr. ákvæðis II til bráðabirgða í
lögum um húsnæðismál.
VI. KAFLI.
Lán til meiri háttar utanhússviðhalds innlausnaríbúða.
26. gr.
Tilgangur.
Heimilt er að veita
sveitarfélögum, er leyst hafa til sín félagslegar íbúðir, lán skv. 5. tl. 2.
gr. til meiri háttar utanhússviðhalds.
27. gr.
Skilyrði.
Skilyrði lánveitingar skv. 26.
gr. er að sveitarstjórn nýti íbúðina til útleigu, sbr. 2. tölul. 1. mgr.
ákvæðis III til bráðabirgða í lögum um húsnæðismál.
Um skilyrði lánveitingar skv.
þessum kafla skal gæta ákvæða V. kafla eftir því sem við getur átt.
Sveitarstjórn er að fengnu
samþykki Íbúðalánasjóðs heimilt að liðnum 10 árum frá ákvörðun Íbúðalánasjóðs
að selja íbúðir sem lánað hefur verið til skv. þessari grein. Áður skal
sveitarstjórn þó hafa greitt upp lánið.
28. gr.
Lánstími og útborgun láns.
Lánið kemur til greiðslu þegar
Íbúðalánasjóður hefur samþykkt með úttekt sinni að verkið hafi verið unnið á
þann veg sem fram kemur í verklýsingu.
Lánstími skal vera allt að 25 ár.
29. gr.
Rekstrarfélög sveitarfélaga.
Stofni sveitarstjórn félag um
rekstur leiguíbúða sinna skv. 38. gr. laga um húsnæðismál er heimilt að leggja
slíku félagi til íbúðir í eigu sveitarfélagsins, sem fengið hafa lán samkvæmt
þessum kafla, án þess að til uppgreiðslu lánsins komi. Sveitarfélag ber þó
áfram ábyrgð á þeim skuldbindingum sem stofnað var til með lántökunni.
Félag sem sveitarstjórn hefur
stofnað skv. 38. gr. laga um húsnæðismál skal með sama hætti og sveitarstjórn
eiga kost á láni skv. þessum kafla.
VII. KAFLI.
Lán eða styrkir til tækninýjunga og annarra umbóta í byggingariðnaði.
30. gr.
Tilgangur.
Lán og/eða styrki til
tækninýjunga eða annarra umbóta í byggingariðnaði skv. 6. tölulið 2. gr. má
veita einstaklingum, fyrirtækjum og stofnunum sem vinna að þróun tæknilegra
aðferða og nýjunga sem leitt geta til lækkunar á byggingarkostnaði og viðhaldi
íbúðarhúsnæðis, styttingar byggingartíma eða stuðlað með öðrum hætti að aukinni
hagkvæmni í byggingariðnaði.
31. gr.
Umsóknir.
Sá sem óskar eftir láni eða styrk
skal skila inn umsókn til Íbúðalánasjóðs á sérstöku eyðublaði, um verkefni það
er vinna skal. Umsóknina skal leggja fyrir stjórn sjóðsins til ákvörðunar með
greinargerð og tillögu um afgreiðslu.
32. gr.
Fjárhæð styrks eða láns.
Fjárhæð láns eða styrks skv. 30.
gr., svo og lánstíma, skal ákveða hverju sinni af stjórn Íbúðalánasjóðs með
hliðsjón af kostnaði við að koma nýjungum í notkun, svo og mikilvægi þeirra
fyrir byggingariðnaðinn.
33. gr.
Lán.
Lánið skal vera jafngreiðslulán
(annuitet). Stjórn Íbúðalánasjóðs getur ákveðið að lánið verði afborgunarlaust
í allt að tvö ár frá útborgun þess.
Lán skulu tryggð með fullnægjandi
veði í fasteign að mati Íbúðalánasjóðs samkvæmt almennum reglum Íbúðalánasjóðs
um veðrými.
VIII. KAFLI
Lán til leiguíbúða.
34. gr.
Tilgangur.
Lán skv. 7. tl. 2. gr. er heimilt
að veita félögum og félagasamtökum, er uppfylla skilyrði um lánveitingar skv.
VIII. kafla laga nr. 44/1998, um húsnæðismál, og IX. kafla reglugerðar, um
lánveitingar til leiguíbúða, ráðstöfun þeirra og rekstur nr. 423/1999. Lánin
skulu veitt til byggingar eða kaupa á íbúðarhúsnæði til útleigu fyrir
félagsmenn í hlutaðeigandi félögum eða félagasamtökum eða aðra leigjendur hjá
slíku félagi.
Sveitarfélög skulu með sama hætti
og félög og félagasamtök eiga kost á lánum skv. þessum kafla.
35. gr.
Lánsfjárhæð.
Lán skal nema allt að 90% af
byggingarkostnaði eða kaupverði íbúðar. Stjórn Íbúðalánasjóðs ákveður
lánshlutfallið hverju sinni. Við ákvörðun lánshlutfallsins skal líta til
markmiða lánveitingarinnar svo sem, hvort íbúðarhúsnæðið er sérstaklega gert
fyrir fatlaða, aldraða, ungt fólk eða barnafjölskyldur.
Um ákvörðun byggingarkostnaðar
fer eftir III. kafla reglugerðar um lánveitingar til leiguíbúða, ráðstöfun
þeirra og rekstur, og skv. nánari ákvörðun stjórnar Íbúðalánasjóðs.
36. gr.
Lánstími.
Lán skv. þessum kafla skulu
tryggð með veði í hlutaðeigandi íbúðarhúsnæði. Lánin skulu vera að fullu
verðtryggð og höfuðstóll þeirra miðast við vísitölu neysluverðs.
Lánstími skal vera allt að 50
árum.
37. gr.
Eigið framlag.
Umsækjendur skulu sýna fram á
það, við lánsumsókn hjá Íbúðalánasjóði, að þeir hafi fjárhagslegt bolmagn til
þess að greiða þann hluta af byggingarkostnaði eða kaupverði íbúðar sem ekki
fæst lánað til skv. 35. gr. Því til staðfestingar skal leggja fram ábyrgð af
hálfu fjármálastofnunar eða annað sem Íbúðalánasjóður metur gilt.
38. gr.
Umsóknir.
Í lánsumsókn skal koma fram
fjöldi, gerð og stærð viðkomandi íbúða, framkvæmdatími, áætlaður
byggingarkostnaður og annað það sem Íbúðalánasjóður metur nauðsynlegt til þess
að unnt sé að taka afstöðu til umsóknar.
Í lánsumsókn skal ennfremur koma
fram rökstuðningur fyrir lánsþörf svo og með hvaða hætti umsækjandi hyggst
ráðstafa þeim leiguíbúðum sem hann ætlar að byggja eða kaupa.
Um meðferð lánsumsókna skal að
öðru leyti gæta ákvæða II. kafla reglugerðar um lánveitingar til leiguíbúða,
ráðstöfun þeirra og rekstur.
39. gr.
Ráðstöfun íbúða.
Félög og félagasamtök úthluta
íbúðum á sínum vegum til félagsmanna sinna í samræmi við samþykktir sínar.
Um ráðstöfun íbúða
húsnæðissamvinnufélaga skal ennfremur gæta ákvæða laga nr. 161/1998, um húsnæðissamvinnufélög.
40. gr.
Sala á afnotarétti.
Félögum og félagasamtökum er
heimilt að selja félagsmanni eða leigjanda afnotarétt í íbúð með þeirri kvöð að
hlutur hans standi óhreyfður í íbúðinni á meðan hann hefur afnot af henni.
Gjaldið má nema allt að 30% af byggingarkostnaði eða kaupverði íbúðar og
takmarkast við eigið framlag umsækjanda, sbr. 37. gr.
Gerður skal skriflegur samningur
um sölu afnotaréttar, skv. 1. mgr., þar sem kveðið skal á um réttindi og
skyldur samningsaðila.
Við lok samningstímans skal
félagsmaður eða leigjandi sé hann ekki jafnframt félagsmaður fá endurgreiddan
hlut sinn í samræmi við samþykktir hlutaðeigandi félags eða félagasamtaka.
Samningar, sem gerðir eru skv.
þessari grein skulu tilkynntir til Íbúðalánasjóðs.
41. gr.
Ákvörðun leigufjárhæðar.
Um ákvörðun leigufjárhæðar skal
beita ákvæðum VI. kafla reglugerðar um lánveitingar til leiguíbúða, ráðstöfun
þeirra og rekstur.
Um eigendur búseturéttar hjá
húsnæðissamvinnufélögum skal fara eftir 10. gr. laga nr. 161/1998, um búsetugjald.
42. gr.
Um starfshætti og eftirlit.
Um starfshætti félaga og
félagasamtaka sem veitt er lán skv. þessum kafla skal gæta ákvæða X. kafla
reglugerðar um lánveitingar til leiguíbúða, ráðstöfun þeirra og rekstur.
Um eftirlit með störfum og
starfsháttum félaga og félagasamtaka gilda ákvæði XI. kafla reglugerðar um
lánveitingar til leiguíbúða, ráðstöfun þeirra og rekstur.
43. gr.
Takmarkanir.
Óheimilt er að hafa eigendaskipti
á íbúð sem á hvílir lán sem veitt hefur verið skv. þessum kafla, nema til komi
annaðhvort uppgreiðsla lánsins eða samþykki stjórnar Íbúðalánasjóðs um
yfirtökuna.
Félag og félagasamtök, er
ráðstafa leiguíbúð skv. 1. mgr., 40. gr. ber eftir sem áður fulla ábyrgð á
láninu sem veitt var af Íbúðalánasjóði.
Sé rekstri félags hætt eða tilgangi
þess breytt eða það íbúðarhúsnæði sem lánað er til er tekið undir annan
rekstur, skal áhvílandi lán Íbúðalánasjóðs greitt upp. Þinglýsa skal kvöð þess
efnis á íbúðina samhliða þinglýsingu lánsins.
Tilkynna skal Íbúðalánasjóði um
breytingar skv. 3. mgr. án ástæðulausrar tafar.
IX. KAFLI
Vistheimili fyrir börn og unglinga.
44. gr.
Tilgangur.
Samkvæmt 8. tölul. 2. gr. er
heimilt að veita félögum og félagasamtökum, sem fengið hafa leyfi
Barnaverndarstofu til að reka heimili eða stofnun, sbr. 52. gr. laga nr.
58/1992, um vernd barna og ungmenna, lán til að byggja eða kaupa vistheimili
fyrir börn og unglinga.
Félög og félagasamtök, sem kost
eiga á lánum, skv. þessum kafla skulu hafa hlotið staðfestingu
félagsmálaráðuneytisins á samþykktum sínum. Um staðfestingu á samþykktum slíkra
aðila og starfssemi skal, eftir því sem við getur átt, gæta ákvæða reglugerðar
um lánveitingar til leiguíbúða, ráðstöfun þeirra og rekstur.
Sveitarfélög skulu með sama hætti
og félög og félagasamtök eiga kost á lánum skv. þessum kafla.
45. gr.
Lánsfjárhæð og veðrými.
Við ákvörðun lánsfjárhæðar skal
taka tillit til fjármagns frá opinberum aðilum, þ. á m. úr ríkissjóði til
hlutaðeigandi framkvæmda þannig að lán úr Íbúðalánasjóði og annað fjármagn
verði samanlagt aldrei hærra en 90% af kaupverði eða byggingarkostnaði.
Veðrými miðast við allt að 90% af
byggingarkostnaði eða kaupverði. Miða skal við 90% af brunabótamati ef það er
lægra.
46. gr.
Umsóknir.
Umsækjendur um lán skulu senda
umsóknir sínar til Íbúðalánasjóðs og leggja fram þær upplýsingar sem hann telur
nauðsynlegar til undirbúnings afgreiðslu þeirra.
Lán þessi skulu því aðeins veitt
að fyrir liggi rökstudd greinargerð um þörf fyrir framkvæmdir, studd
nauðsynlegum gögnum, þ.á m. umsögn Barnaverndarstofu.
47. gr.
Lánstími og útborgun láns.
Lán samkvæmt þessum kafla koma
til greiðslu, þegar framkvæmdum er lokið eða samkvæmt kauptilboði.
Lánstími skal vera allt að 25 ár.
48. gr.
Uppgreiðsla.
Sé rekstri húsnæðis, sem lánað
hefur verið til samkvæmt þessum kafla, hætt eða það tekið undir annan rekstur,
skal áhvílandi lán Íbúðalánasjóðs greitt upp. Þinglýsa skal kvöð þessa efnis á
íbúðina samhliða þinglýsingu lánsins.
Tilkynna skal Íbúðalánasjóði um
breytingar skv. 1. mgr. án ástæðulausrar tafar.
X. KAFLI.
Lokaákvæði.
49. gr.
Úthlutunarreglur.
Í reglum, er stjórn
Íbúðalánasjóðs setur skal kveðið nánar á um einstakar lánveitingar og styrki
samkvæmt reglugerð þessari. Í slíkum reglum skal ennfremur kveðið nánar á um
ákvörðun byggingarkostnaðar, lánshlutfall skv. 35. gr. og kaupverði íbúða.
Skulu reglurnar lagðar árlega fyrir stjórn Íbúðalánasjóðs og skulu hljóta
staðfestingu hennar fyrir 1. febrúar ár hvert.
Íbúðalánasjóður annast kynningu á
reglum þessum og skulu þær vera aðgengilegar.
50. gr.
Meðferð ágreiningsmála.
Telji umsækjandi um lán eða
lántaki á rétt sinn hallað af hálfu Íbúðalánasjóðs við framkvæmd reglugerðar
þessarar, getur hann skotið viðkomandi ákvörðun eða afgreiðslu til kærunefndar
húsnæðismála.
X.
KAFLI.
Gildistaka o.fl.
51. gr.
Reglugerð þessi, sem sett er með
heimild í 16. gr. og 4. mgr. 36. gr. laga um húsnæðismál, öðlast þegar gildi.
Stjórn Íbúðalánasjóðs skal hafa
kynnt sveitarfélögum og starfandi félögum og félagssamtökum, er falla undir
VIII. kafla, úthlutunarreglur sínar fyrir 1. september 1999.
Félagsmálaráðuneytinu, 29. júní 1999.
Páll Pétursson.
Þórhallur Vilhjálmsson.
Word útgáfa af reglugerð