Fara beint í efnið

Prentað þann 19. apríl 2024

Breytingareglugerð

456/2008

Reglugerð um breyting á reglugerð nr. 163 30. maí 1973, um hvalveiðar.

1. gr.

2. ml. 1. gr. orðist svo:

Leyfi til veiða á hrefnu árið 2008 skal aðeins veita þeim íslensku skipum sem hafa tekið þátt í vísindaveiðum Hafrannsóknastofnunarinnar á hrefnu á árunum 2003-2007.

2. gr.

Reglugerð þessi er sett samkvæmt 4. gr. laga nr. 26 3. maí 1949, um hvalveiðar, til að öðlast þegar gildi. Sjá jafnframt viðauka sem birtur er sem fylgiskjal við reglugerð þessa.

Sjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneytinu, 19. maí 2008.

Einar K. Guðfinnsson.

Ásta Einarsdóttir.

VIÐAUKI (sjá PDF-skjal)

Fyrirvari

Reglugerðir eru birtar í B-deild Stjórnartíðinda skv. 3. gr. laga um Stjórnartíðindi og Lögbirtingablað, nr. 15/2005, sbr. reglugerð um útgáfu Stjórnartíðinda nr. 958/2005.

Sé misræmi milli þess texta sem birtist hér í safninu og þess sem birtur er í útgáfu B-deildar Stjórnartíðinda skal sá síðarnefndi ráða.