Landbúnaðarráðuneyti

449/2005

Reglugerð um eftirlit með heilbrigði eldisdýra sem flutt eru til EES-svæðisins frá þriðju ríkjum.

1. gr.

1. Yfirdýralæknir skal tryggja að dýraheilbrigðiseftirlit með eldisdýrum sem eru flutt inn á Evrópska efnahagssvæðið (EES-svæðið) frá þriðju ríkjum, sé í samræmi við ákvæði þessarar reglugerðar.


2. gr.

1. Í reglugerð þessari gilda skilgreiningarnar í 2. gr. reglugerðar nr. 448/2005 um eftirlit með heilbrigði eldisdýra og afurðum þeirra í viðskiptum innan EES-svæðisins eftir því sem við á.

2. Auk þess er merking eftirfarandi hugtaka sem hér segir:

a) "sannprófun skjala": sannprófun dýraheilbrigðisvottorða eða -skjala sem fylgja dýrinu;
b) "sannprófun auðkenna": sannprófun, sem fer eingöngu fram með sjónrænni skoðun, á því að samræmi sé milli skjalanna eða vottorðanna og dýranna og að dýrin séu merkt með réttum hætti;
c) "eftirlit með ástandi": eftirlit með sjálfu dýrinu, ef til vill með sýnatöku og prófi á rannsóknarstofu og, ef við á, viðbótareftirlit meðan dýrið er í sóttkví;
d) "innflytjandi": einstaklingur eða lögpersóna sem kemur með dýr til innflutnings til EES-svæðisins;
e) "sending": fjöldi dýra af sömu tegund sem sama dýraheilbrigðisvottorð eða -skjal gildir um, sem er flutt með sama flutningatæki og kemur frá sama þriðja landi eða sama hluta þriðja lands;
f) "landamærastöð": eftirlitsstöð á landamærum EES-svæðisins tilnefnd og samþykkt til að þar megi fara fram eftirlit með innflutningi eldisdýra frá þriðja ríki;
g) "eldisdýr": lifandi fiskur, krabbadýr eða lindýr frá eldisstöð, að meðtöldum þeim sem lifa upprunalega villt en eru ætluð fyrir eldisstöð.


I. KAFLI
Skipulagning og framhald eftirlits.
3. gr.
1. a) Innflytjendur skulu tilkynna yfirdýralækni með að lágmarki eins (virks) dags fyrirvara um fjölda, tegund og áætlaðan komutíma eldisdýranna;
b) farið skal með eldisdýrin, undir opinberu eftirliti, beint á viðkomandi landamærastöð sem um getur í 6. gr. eða, eftir atvikum, á sóttvarnarstöðina sem kveðið er á um í öðrum undirlið fyrstu undirgreinar 1. mgr. 9. gr.;
c) ekki er heimilt að fara með eldisdýrin frá þessum stöðvum nema, samkvæmt viðurkenndri málsmeðferð og sannað sé:
i) með vottorði sem kveðið er á um í öðrum undirlið 1. mgr. 7. gr. eða í 8. gr., að dýraheilbrigðiseftirlit hafi farið fram með viðkomandi eldisdýrum í samræmi við 1. mgr. og a-, b- og d-lið 2. mgr. 4. gr. og 8. og 9. gr., og að skilyrði lögbærs yfirvalds þar að lútandi hafi verið uppfyllt;
ii) að búið sé að greiða fyrir dýraheilbrigðiseftirlitið og, ef við á, að trygging hafi verið sett fyrir hugsanlegum kostnaði;
d) tollyfirvöld skulu ekki heimila afgreiðslu til frjálsrar dreifingar á EES-svæðinu nema að sannað sé að kröfum c-liðar hafi verið fullnægt.


4. gr.

1. Yfirdýralæknir skal tryggja að á landamærastöð séu skjöl og auðkenni sannprófuð vegna hverrar sendingar eldisdýra frá þriðja ríki, án tillits til tollafgreiðslustaðar. Yfirdýralæknir skal ganga úr skugga um:

uppruna þeirra,
síðari viðtökustað þeirra, einkum þegar um umflutning er að ræða eða sérstakar kröfur sem eru viðurkenndar með ákvörðun ESA og varða EES-viðtökuríkið,
að upplýsingarnar í vottorðunum eða skjölunum séu fullnægjandi,
að engin vísbending um að sendingunni hafi verið hafnað, hafi verið gefin í viðurkennda upplýsingaskiptakerfinu.

2. Með fyrirvara um undanþágur skv. 8. gr., skal yfirdýralæknir sjá um eftirlit með ástandi eldisdýra sem komið er með á landamærastöð. Eftirlitið skal einkum felast í:

a) klínískri rannsókn á eldisdýrunum til að ganga úr skugga um að þau samrýmist upplýsingunum sem kveðið er á um í meðfylgjandi vottorði eða skjali og að þau séu klínískt heilbrigð;
b) rannsóknarstofuprófum sem teljast nauðsynleg;
c) töku opinberra sýna, ef til kemur, sem á að rannsaka með tilliti til efnaleifa og láta efnagreina eins skjótt og auðið er;
d) sannprófun á því að farið sé að þeim lágmarkskröfum sem mælt er fyrir um.

Með tilliti til síðara eftirlits með flutningi og ef við á, til að sjá um að viðbótarkröfum viðtökufyrirtækis verði fullnægt, skal yfirdýralæknir senda lögbærum yfirvöldum EES-viðtökuríkis nauðsynlegar upplýsingar með aðstoð viðurkennda upplýsingaskiptakerfisins. Eftirlitið skal fara fram eftir að flett hefur verið upp í viðurkennda upplýsingaskiptakerfinu.
3. Samt sem áður er heimilt, þrátt fyrir 1. og 2. mgr., að sannprófun auðkenna og eftirlit með ástandi eldisdýra, sem flutt eru um höfn eða flugvöll inn á EES-svæðið, fari fram í þeirri viðtökuhöfn eða á þeim viðtökuflugvelli, að því tilskildu að höfnin eða flugvöllurinn sé landamærastöð af því tagi sem um getur í 6. gr. og að eldisdýrin verði flutt áfram, annaðhvort sjóleiðis eða með flugi, með sama skipi eða sömu flugvél. Í því tilviki skal yfirdýralæknir sem annaðist sannprófun skjalanna tilkynna opinbera dýralækninum á skoðunarstöð EES-viðtökuríkisins, annaðhvort beint eða fyrir milligöngu dýraheilbrigðisyfirvalds á staðnum, um viðurkennda upplýsingaskiptakerfið að eldisdýrin hafi farið þar um.


5. gr.

Innflutningur inn á EES-svæðið er óheimill ef eftirlit leiðir í ljós:

a) að eldisdýr koma frá yfirráðasvæði eða hluta yfirráðasvæðis þriðja ríkis sem er ekki, að því er viðkomandi tegundir varðar, tilgreint í skrá ESA;
b) að önnur eldisdýr en þau sem um getur í a-lið fullnægi ekki þeim kröfum sem kveðið er á um í innlendum reglum er gilda um hin ýmsu tilvik sem falla undir þessa reglugerð;
c) að eldisdýrin þjáist af eða grunur leikur á að þau þjáist af eða séu haldin smitandi sjúkdómi eða sjúkdómi sem geti stofnað heilbrigði manna eða dýra í hættu samkvæmt innlendum lögum og reglum;
d) að þriðja ríkið sem flytur eldisdýrin út hafi ekki fullnægt kröfunum sem kveðið er á um í innlendum lögum og reglum;
e) að ástand eldisdýranna komi í veg fyrir áframhaldandi flutning á þeim;
f) að dýraheilbrigðisvottorð eða -skjal sem fylgir með eldisdýrunum uppfylli ekki þau skilyrði sem eru sett samkvæmt reglugerð nr. 446/2005 um skilyrði á sviði heilbrigðis dýra sem hafa áhrif á markaðssetningu eldisdýra og afurða þeirra.


6. gr.

1. Landamærastöðvar skulu uppfylla skilyrði þessarar greinar.

2. Landamærastöðvar skulu:

a) vera á komustað inn á EES-svæðinu; Samt sem áður er unnt að samþykkja tiltekna fjarlægð milli skoðunarstöðvar og komustaðar vegna landfræðilegra aðstæðna (t.d. affermingarbryggjur og fjallvegir) og að því tilskildu að löng leið sé á milli skoðunarstöðvarinnar og eldisstöðva eða staða þar sem eldisdýr eru haldin sem líkur eru á að séu með smitandi sjúkdóma;
b) vera á tollsvæði þar sem unnt er að uppfylla önnur formsatriði er varða stjórnsýslu, þar með talin tollmeðferð í tengslum við innflutning;
c) vera undir stjórn opinbers dýralæknis sem í raun ber ábyrgð á eftirlitinu. Opinbera dýralækninum er heimilt að láta sérmenntaða starfsmenn sem vinna undir hans stjórn aðstoða sig. Opinberi dýralæknirinn skal sjá til þess að fram fari nauðsynleg uppfærsla inn í viðurkennda upplýsingaskiptakerfið.


7. gr.

1. Ef eldisdýr, sem falla undir eftirlit skv. 4. gr. eru ekki ætluð til markaðssetningar hér á landi skal yfirdýralæknir á landamærastöð:

láta hlutaðeigandi fá staðfest afrit af frumriti vottorðanna eða, ef sendingu er skipt, nokkur staðfest afrit af frumriti vottorðanna fyrir eldisdýrin; gildistími afritanna skal vera 10 dagar hið mesta,
gefa út vottorð eftir fyrirmyndinni þar sem fram kemur að eftirlitið sem um getur í 1. mgr. og a-, b- og d-lið 2. mgr. 4. gr. hafi farið fram og uppfylli kröfur opinbera dýralæknisins, hvaða sýni hafa verið tekin og tilgreint er um niðurstöður úr rannsóknarstofuprófum eða hvenær búist er við að niðurstöðurnar liggi fyrir,
varðveita frumrit vottorðsins eða vottorðanna sem fylgja eldisdýrunum.

2. Þegar eldisdýrin sem um getur í 1. mgr. hafa farið um landamærastöð og hafa verið flutt inn á EES-svæðið skulu viðskipti með þau fara fram í samræmi við reglur um dýraheilbrigðiseftirlit sem mælt er fyrir um í reglugerð nr. 448/2005 um eftirlit með heilbrigði eldisdýra og afurðum þeirra í viðskiptum innan EES-svæðisins.
Í þeim upplýsingum sem yfirdýralæknir á viðtökustað sendir um viðurkennda upplýsingaskiptakerfið skal einkum koma fram hvort:

eldisdýrin eiga að fara til EES-ríkis eða -svæðis þar sem sérstakar kröfur gilda,
sýni hafi verið tekin en niðurstöður hafi ekki legið fyrir þegar flutningatækið fór frá viðkomandi landamærastöð.


8. gr.

1. Heimila skal umflutning eldisdýra frá einu þriðja ríki til annars þriðja ríkis, eða til sama þriðja ríkis að því tilskildu að:

a) yfirdýralæknir á landamærastöð hafi áður heimilað slíkan umflutning;
b) hlutaðeigandi aðili leggi fram sönnun um að fyrsta þriðja ríkið sem eldisdýrin eru send til, eftir umflutning um eitt EES-ríki, skuldbindi sig til þess að vísa í engu tilviki frá eða endursenda eldisdýr sem það hefur leyft innflutning eða umflutning á til EES-svæðisins og fari eftir innlendri löggjöf um dýravernd meðan á flutningi stendur;
c) eftirlitið sem um getur í 4. gr. sannfæri yfirdýralækni um, ef við á eftir að eldisdýrin hafa verið á sóttvarnarstöð, að eldisdýrin standist kröfur þessarar reglugerðar eða, að því er varðar eldisdýr sem um getur í viðauka A við reglugerð nr. 448/2005 um eftirlit með heilbrigði eldisdýra og afurðum þeirra í viðskiptum innan EES-svæðisins, gefi kost á heilbrigðisábyrgðum sem eru viðurkenndar og eru að minnsta kosti jafngildar kröfunum;
d) yfirdýralæknir á landamærastöð tilkynni lögbærum yfirvöldum EES-umflutningsríkis eða -ríkja og lögbærum yfirvöldum brottfararstaðar á landamærum, um viðurkennda upplýsingaskiptakerfið að eldisdýrin hafi farið þar um;
e) þegar um er að ræða gegnumferð um Ísland fari slíkur umflutningur fram samkvæmt málsmeðferð sem hér er kveðið á um. Eina meðhöndlunin sem er leyfð meðan á umflutningi stendur er sú sem fer fram á komustað inn á og brottfararstað frá EES-svæðinu og aðgerðir sem eiga að tryggja velferð eldisdýranna.


9. gr.

1. Í tilvikum þegar innlendar reglur á viðtökustað, kveða á um að lifandi eldisdýr skuli sett í sóttkví eða einangrun er heimilt að setja eldisdýrin í sóttkví eða einangrun:

á sóttvarnarstöð í þriðja ríki sem er upprunaríki, að því tilskildu að hún hafi verið samþykkt,
á sóttvarnarstöð sem er á EES-svæðinu og uppfyllir kröfurnar sem mælt er fyrir um í viðauka B,
í viðtökueldisstöð.

2. Ef yfirdýralæknir sem ber ábyrgð á viðkomandi landamærastöð fyrirskipar sóttkví skal setja eldisdýrin í sóttkví, allt eftir því hve alvarleg hættan er talin:

annaðhvort á sjálfri skoðunarstöðinni eða í næsta nágrenni hennar,
eða í viðtökueldisstöð,
eða á sóttvarnarstöð sem er í nágrenni viðtökueldisstöðvar.

3. Almenn skilyrði, sem sóttvarnarstöðvar sem um getur í fyrsta og öðrum undirlið 1. mgr. skulu uppfylla, eru sett í viðauka B.


10. gr.

1. Með fyrirvara um önnur ákvæði þessa kafla skal yfirdýralæknir sjá um það heilbrigðiseftirlit sem telst viðeigandi ef grunur leikur á að ekki sé farið að innlendri löggjöf eða vafi leikur á að viðkomandi eldisdýr séu rétt auðkennd.


11. gr.

1. Ef eftirlitið leiðir í ljós að eldisdýr stenst ekki kröfur sem mælt er fyrir um í innlendum reglum eða eftirlitið leiðir í ljós vanrækslu skal yfirdýralæknir í samráði við innflytjanda eða fulltrúa hans ákveða:

a) að hýsa, fóðra, og ef nauðsyn ber til, meðhöndla eldisdýrin; eða
b) eftir atvikum, að setja þau í sóttkví eða einangra sendinguna;
c) að endursenda eldisdýrin innan þeirra tímamarka sem yfirdýralæknir setur, svo framarlega sem farið er að innlendri löggjöf um dýravernd. Í því tilviki skal yfirdýralæknir á landamærastöð:
tilkynna í gegnum viðurkennda upplýsingaskiptakerfið að innflutningi hafi verið vísað frá,
ógilda það dýraheilbrigðisvottorð eða -skjal sem fylgir sendingunni sem vísað var frá,
að lokinni skoðun meðan eldisdýrin eru enn lifandi, heimila slátrun eldisdýranna, í samræmi við ákvæði reglugerðar nr. 238/2003 um eldi nytjastofna sjávar; til manneldis,
að öðrum kosti fyrirskipa slátrun eldisdýranna í samræmi við ákvæði reglugerðar nr. 238/2003 um eldi nytjastofna sjávar; í öðrum tilgangi en til manneldis eða fyrirskipa að skrokkunum verði fargað og tilgreina skilyrði varðandi eftirlit með nýtingu afurðanna sem til falla með þessum hætti. Yfirdýralæknir skal tilkynna ESA um þau tilvik þar sem þessum undanþágum er beitt.


12. gr.

Til að framfylgja eftirlitinu sem um getur í 7. gr. þessarar reglugerðar skal auðkenning og skrásetning sem kveðið er á um í c-lið 1. mgr. 3. gr. reglugerðar nr. 448/2005 um eftirlit með heilbrigði eldisdýra og afurðum þeirra í viðskiptum innan EES-svæðisins, fara fram á viðtökustað eldisdýranna.


II. KAFLI
Öryggisákvæði.
13. gr.

1. Ef dýrasjúkdómur sem einnig getur lagst á menn, annar sjúkdómur eða annað það sem kann að stofna heilbrigði dýra eða manna í alvarlega hættu kemur upp eða breiðist út á yfirráðasvæði þriðja ríkis, eða ef einhver önnur alvarleg ástæða er varðar heilbrigði dýra réttlætir slíkt, er ráðherra heimilt að gera þegar í stað eina af eftirfarandi ráðstöfunum eftir því hve alvarlegt ástandið er;

fella niður tímabundið innflutning frá hlutaðeigandi þriðja ríki eða hluta þess og, eftir atvikum, frá umflutningslandi sem er þriðja ríki,
setja sérstök skilyrði að því er varðar eldisdýr frá hlutaðeigandi þriðja ríki eða hluta þess.

2. Ef eftirlit sem kveðið er á um í þessari reglugerð leiðir í ljós að sending eldisdýra kunni að stofna heilbrigði dýra eða manna í hættu skal yfirdýralæknir þegar í stað gera eftirfarandi ráðstafanir;

leggja hald á og farga sendingunni,
þegar í stað tilkynna öðrum landamærastöðvum og ESA um niðurstöðurnar og uppruna eldisdýranna, í gegnum viðurkennda upplýsingaskiptakerfið.

3. Í því tilviki sem kveðið er á um í 1. mgr. er ráðherra heimilt að gera tímabundnar verndarráðstafanir vegna eldisdýra er heyra undir 9. gr.

4. Ef settar eru á einhliða verndarráðstafanir gagnvart þriðja ríki samkvæmt skilmálum þessarar greinar skal það tilkynnt öðrum EES-ríkjum og ESA.


III. KAFLI
Skoðun.
14. gr.

1. ESA er heimilt, í samvinnu við yfirdýralækni og að því marki sem nauðsynlegt er fyrir samræmi í beitingu á kröfum þessarar reglugerðar, að ganga úr skugga um að landamærastöðvar, og sóttvarnarstöðvar, uppfylli skilyrðin sem upp eru talin í viðaukum A og B.

2. ESA er heimilt, í samvinnu við yfirdýralækni, að gera skyndiskoðanir á staðnum.

3. Þegar skoðun fer fram skal veita ESA alla þá aðstoð sem er nauðsynleg til að þeir geti unnið verk sitt.


15. gr.

Telji yfirdýralæknir, á grundvelli eftirlits að brotið sé í bága við ákvæði þessarar reglugerðar á landamærastöð í öðru EES-ríki skal hann þegar í stað gera stjórnvöldum þess EES-ríkis viðvart.

Berist yfirdýralækni slík tilkynning frá öðru EES-ríki skal hann gera allar nauðsynlegar ráðstafanir og tilkynna lögbæra yfirvaldinu í því ríki um það eftirlit sem hefur farið fram, þær ákvarðanir sem hafa verið teknar og rökstuðning fyrir þeim.

Ef eftirlitið sem um getur í 1. mgr. leiðir í ljós að ítrekað er brotið í bága við ákvæði þessarar reglugerðar skal yfirdýralæknir tilkynna það ESA og lögbærum yfirvöldum annarra EES-ríkja.

Yfirdýralækni er heimilt þar til niðurstöður ESA liggja fyrir að efla eftirlit á viðkomandi landamærastöð eða sóttvarnarstöð.


IV. KAFLI
Almenn ákvæði.
16. gr.
Kostnaður.

Kostnaður í tengslum við framkvæmd eftirlits skv. 4. gr., 5. gr., 8. gr. og 11. gr. þar með talið förgun sendingarinnar eða nýting afurða í öðrum tilgangi hvílir á sendanda, viðtakanda eða fulltrúa þeirra án þess að endurgreiðslur EES-ríkisins komi til. Afrakstur af sölu afurðanna sem um getur í þriðja undirlið c-liðar 11. gr. skal renna til eiganda eldisdýranna eða fulltrúa hans, að frádregnum áðurnefndum kostnaði. Innheimta skal kostnað samkvæmt gjaldskrá sem landbúnaðarráðherra staðfestir.


17. gr.
Viðurlög.

Brot gegn ákvæðum þessarar reglugerðar varða sektum eða fangelsi. Með mál út af brotum skal farið að hætti opinberra mála.


18. gr.

Reglugerð þessi er sett með heimild í lögum nr. 54/1990 um innflutning dýra, lögum nr. 25/1993 um dýrasjúkdóma og varnir gegn þeim og lögum nr. 76/1970 um lax- og silungsveiði og til innleiðingar á tilskipunum ráðsins nr. 91/496/EBE, 91/628/EBE, 95/29/EB, 92/438/EB og 96/43/EB. Reglugerðin tekur þegar gildi. Jafnframt er úr gildi felld reglugerð nr. 525/2003 um dýraheilbrigðiseftirlit með innflutningi eldisdýra.


Landbúnaðarráðuneytinu, 28. apríl 2005.

Guðni Ágústsson.
Ingibjörg Ólöf Vilhjálmsdóttir.



VIÐAUKI A
Almenn skilyrði fyrir viðurkenningu landamærastöðva.


Til að hljóta viðurkenningu skulu landamærastöðvar hafa:

1) sérstaka aðrein fyrir flutning lifandi dýra, til að hlífa dýrunum við tilefnislausri bið;
2) aðstöðu (sem auðvelt er að þrífa og sótthreinsa) fyrir fermingu og affermingu ólíkra flutningatækja, skoðun, fóðrun, brynningu og meðhöndlun dýranna, þar sem rými, lýsing og loftræsting er fullnægjandi með tilliti til þess fjölda dýra sem á að skoða;
3) nógu marga dýralækna og sérþjálfaða aðstoðarmenn til að þeir geti, með tilliti til þess fjölda dýra sem fer um viðkomandi landamærastöð, sannprófað fylgiskjöl og framkvæmt klíníska eftirlitið sem um getur í 4., 5. og 8. gr. þessarar reglugerðar;
4) fullnægjandi húsnæði fyrir starfsmennina sem annast heilbrigðiseftirlitið, þar með talið búningsherbergi, sturtur og salerni;
5) húsnæði og aðstöðu sem hentar fyrir sýnatöku og úrvinnslu sýna í tengslum við kerfisbundna eftirlitið sem mælt er fyrir um í innlendum lögum og reglum;
6) aðgang að þjónustu sérhæfðrar rannsóknarstofu þar sem unnt er að gera sérstök próf á sýnunum sem eru tekin á stöðinni;
7) aðgang að starfsstöð í næsta nágrenni stöðvarinnar með aðstöðu og búnað til að hýsa, fóðra, meðhöndla og, ef nauðsyn ber til, slátra dýrunum;
8) hentuga aðstöðu, ef skoðunarstöðvarnar eru áningar- eða umfermingarstaðir við flutning dýra, til að unnt sé að afferma, fóðra og hýsa dýrin ef þörf krefur og meðhöndla þau eða, ef nauðsyn ber til, slátra þeim á staðnum á þann hátt að þau þurfi ekki að þjást að óþörfu;
9) viðeigandi búnað fyrir hröð upplýsingaskipti við aðrar landamærastöðvar og lögbær dýraheilbrigðisyfirvöld;
10) búnað og aðstöðu fyrir þrif og sótthreinsun.



VIÐAUKI B
Almenn skilyrði fyrir viðurkenningu sóttvarnarstöðva.

1. Kröfur 2., 4., 5., 7., 9. og 10. liðar viðauka A skulu gilda.
2. Þar að auki skulu sóttvarnarstöðvar:
vera undir stöðugu eftirliti yfirdýralæknis og vera á hans ábyrgð,
staðsettar langt frá eldisstöðvum og öðrum stöðum þar sem dýr eru haldin sem líkur eru á að séu með smitandi sjúkdóma,
hafa gott eftirlitskerfi til að tryggja viðunandi eftirlit með dýrunum.


Þetta vefsvæði byggir á Eplica