Umhverfisráðuneyti

448/1996

Reglugerð um notkun og bann við notkun tiltekinna efna við meðhöndlun á textílvörum. - Brottfallin

REGLUGERÐ

um notkun og bann við notkun tiltekinna efna við meðhöndlun á textílvörum.

 

1. gr.

Reglugerð þessi er sett til þess að takmarka notkun tiltekinna efnasambanda sem geta verið hættuleg heilsu manna.

 

2. gr.

Óheimilt er að nota eftirtalin eldtefjandi efni til þess að meðhöndla textílvörur svo sem föt, undirföt og lín, ef ætla má að vörurnar geti komist í snertingu við hörund;

               

tris(2,3-díbrómprópýl)fosfat (TRIS) 

CAS nr.1)

126-72-7

tris(1 aziridinýl)fosfínoxíð (TEPA)

CAS nr.

5455-55-1

pólýbrómbífenýl (PBB)                      

CAS nr.

59536-65-1

 

3. gr.

Óheimilt er að nota kvikasilfursambönd í slitþolin textílefni og garn ætlað í framleiðslu þeirra.

 

4. gr.

Óheimilt er að nota trefjar og slitþolin textílefni sem gegndreypt hafa verið með pentaklórfenóli í fatnað eða til skrauts innanhúss.

 

5. gr

Óheimilt er að selja eða flytja inn textílvörur svo sem föt, undirföt og lín, sem ætla má að komist í snertingu við hörund, hafi vörurnar verið meðhöndlaðar með efnunum sem talin eru upp í 2. gr. Einnig er óheimilt að flytja inn eða selja textílvörur og garn sem meðhöndlaðar hafa verið með efnum sem tilgreind eru í 3. gr.

 

6. gr.

Heilbrigðiseftirlit sveitarfélaga, undir yfirumsjón Hollustuverndar ríkisins, hefur eftirlit með framkvæmd þessarar reglugerðar að öðru leyti en því sem fellur undir lög nr. 46/1980 um aðbúnað, hollustuhætti og öryggi á vinnustöðum.

 

7. gr.

Um mál, er rísa kunna út af brotum á reglum þessum, fer að hætti opinberra mála. Um refsingar fer samkvæmt 26. gr. laga nr. 52/1988, um eiturefni og hættuleg efni.

 

8. gr.

Reglugerð þessi er sett með stoð í 18. gr. laga nr. 52/1988, um eiturefni og hættuleg efni og 3. gr. laga nr. 81/1988, um hollustuhætti og heilbrigðiseftirlit, og í samræmi við 4. tl., XV. kafla, II. viðauka samningsins um Evrópska efnahagssvæðið, tilskipun 76/769/EBE, um samræmingu ákvæða í lögum og stjórnsýslufyrirmælum aðildarríkjanna varðandi takmörkun á sölu og notkun tiltekinna skaðlegra efna og efnablandna ásamt breytingum í tilskipunum 79/663/EBE og 83/264/EBE.

Reglugerðin öðlast gildi við birtingu.

 

Umhverfisráðuneytinu, 6. ágúst 1996.

 

Guðmundur Bjarnason.

Magnús Jóhannesson.

 

1) CAS: Chemical Abstract Service - Alþjóðleg númer efna og efnasambanda.


Þetta vefsvæði byggir á Eplica