REGLUGERÐ
um sérfæði.
I. KAFLI
Gildissvið og
almenn ákvæði.
1. gr.
Reglugerð þessi gildir um matvæli sem eru ætluð sem sérfæði
og eru markaðssett sem slík.
2. gr.
Sérfæði eru matvæli sem
vegna tiltekinnar samsetningar eða framleiðsluaðferðar eru ætluð einstaklingum
sem hafa sérstakar næringarfræðilegar þarfir. Það skal vera auðkennanlegt frá
öðrum matvælum og uppfylla tiltekin næringarfræðileg skilyrði.
3. gr.
Sérfæði skal fullnægja tilteknum næringarfræðilegum
sérþörfum einhverra eftirtaldra:
a) heilbrigðra ungbarna og heilbrigðra barna að 3ja ára
aldri;
b) fólks með meltingar- eða efnaskiptasjúkdóma;
c) fólks sem af sérstökum lífeðlisfræðilegum ástæðum hefur
ávinning af stýrðri neyslu á tilteknum efnum í matvælum.
4. gr.
Sérfæði má aðeins selja í neytendaumbúðum og skulu þær
umlykja vöruna að öllu leyti. Eftirlitsaðila er heimilt að veita undanþágu frá
þessu ákvæði svo framarlega sem vörunni fylgja þær upplýsingar sem kveðið er á
um í 5. og 6. grein.
II. KAFLI
Merking.
5. gr.
Merking sérfæðis skal vera í samræmi við ákvæði reglugerðar
um merkingu, auglýsingu og kynningu matvæla og reglugerðar um merkingu
næringargildis matvæla, með þeim undantekningum eða viðbótum sem um getur í
þessari reglugerð og sérreglugerðum um sérfæði.
6. gr.
Við merkingu sérfæðis skal tilgreina eftirfarandi:
a) í tengslum við heiti vörunnar skal tilgreina sérstaka
næringarfræðilega eiginleika hennar. Þegar um er að ræða matvæli fyrir ungbörn
og börn að 3 ára aldri skal þess í stað tilgreina fyrir hvaða aldur varan er
ætluð;
b) tegund og magn þeirra innihaldsefna og/eða
framleiðsluaðferð sem gefa vörunni sérstaka næringarfræðilega eiginleika;
c) orkugildi vörunnar í kílójoulum (kJ) og kílókaloríum
(kkal). Orkuefni (prótein, kolvetni, og fitu) í 100 g eða 100 ml og þar sem við
á, einnig í tilteknum skammti eða einingu í samræmi við ráðleggingar um neyslu
vörunnar. Í þeim tilvikum þegar orkugildi er minna en 50 kJ (12 kkal) í 100 g
eða 100 ml er heimilt að tilgreina eftirfarandi upplýsingar í stað orkugildis:
"Orkugildi minna en 50 kJ (12 kkal) í 100 g/ 100 ml".
7. gr.
Þær vörur sem um getur í b- og c-lið 3. gr. má merkja og
markaðssetja með orðinu "sérfæði". Önnur matvæli má ekki merkja eða
markaðssetja á þennan hátt nema það hafi verið heimilað skv. ákvæðum 5. eða 11.
greinar.
8. gr.
Við merkingu, auglýsingu og kynningu sérfæðis má ekki eigna
því þá eiginleika að fyrirbyggja eða vinna á sjúkdómum manna, hafa
lækningarmátt eða að vísa til þess háttar eiginleika.
Þetta skal þó ekki koma í veg fyrir dreifingu nytsamlegra
upplýsinga eða ábendinga sem eingöngu er beint til þeirra sem hafa menntun á
sviði læknisfræði, næringarfræði eða lyfjafræði.
III. KAFLI
Eftirlit og
tilkynningaskylda.
9. gr.
Heilbrigðisnefndir hafa undir yfirumsjón Hollustuverndar
ríkisins, hver á sínum stað, eftirlit með því að farið sé að ákvæðum þessarar
reglugerðar.
10. gr.
Þegar sérfæði er sett á markað í fyrsta skipti skal
framleiðandi eða dreifandi tilkynna um slíkt og senda sýnishorn af merkingu
vörunnar til eftirlitsaðila, ásamt upplýsingum um þau ríki sem þegar hafa
fengið slíka tilkynningu.
Eftirlitsaðili getur krafist nánari upplýsinga og
skjalfestingar á því að sérfæði uppfylli þær kröfur sem settar eru í reglugerð
þessari.
Þessi ákvæði gilda ekki um eftirtalda flokka sérfæðis, sem
sérreglur geta gilt um:
a) ungbarnablöndur;
b) mjólkurstoðblöndur og aðrar stoðblöndur;
c) barnamat;
d) matvæli sem innihalda litla orku og orkuskert matvæli
sem ætluð eru til megrunar;
e) sérfæði notað í sérstökum læknisfræðilegum tilgangi;
f) matvæli sem innihalda lítið natríum, þar með talið salt
með lítið eða ekkert natríum;
g) glútensnauð matvæli;
h) matvæli ætluð þeim sem verða fyrir mikilli
vöðvaáreynslu, einkum íþróttamönnum;
i) matvæli ætluð þeim sem hafa trufluð kolvetnaefnaskipti
(sykursýki).
11. gr.
Hollustuvernd ríkisins er heimilt, í sérstökum tilfellum,
að veita undanþágur frá ákvæðum þessarar reglugerðar, svo framarlega sem það
brýtur ekki í bága við alþjóðasamþykktir sem Ísland er aðili að.
IV KAFLI
Ýmis ákvæði og
gildistaka.
12. gr.
Innlendur framleiðandi eða innflytjandi er ábyrgur fyrir
því að þær vörur sem um getur í 2. og 10. gr. séu í samræmi við ákvæði þessarar
reglugerðar og almenn ákvæði um hollustuhætti matvæla.
13. gr.
Með brot gegn reglugerð þessari skal farið samkvæmt lögum
nr. 81/1988 um hollustuhætti og heilbrigðiseftirlit og lögum nr. 24/1936 um
eftirlit með matvælum og öðrum neyslu- og nauðsynjavörum, með síðari
breytingum, nema þyngri refsing liggi við samkvæmt öðrum lögum. Með mál sem
rísa út af brotum gegn reglugerð þessari skal farið að hætti opinberra mála.
14. gr.
Reglugerð þessi er sett með stoð í 6. gr. laga nr. 24/1936
um eftirlit með matvælum og öðrum neyslu- og nauðsynjavörum og 35. gr. laga nr.
81/1988 um hollustuhætti og heilbrigðiseftirlit, með síðari breytingum. Einnig
var höfð hliðsjón af ákvæðum samningsins um Evrópskt efnahagssvæði, sem vísað
er til í II. viðauka XII. kafla, 51. tölul., tilskipun 89/398/EBE um sérfæði,
með þeim breytingum og viðbótum sem leiða af II. viðauka, bókun 1 við
samninginn og öðrum ákvæðum hans. Reglugerðin öðlast gildi við birtingu.
Umhverfisráðuneytið,
25. júlí 1994.
Össur
Skarphéðinsson.
Ingimar Sigurðsson.
Word útgáfa af reglugerð