Stjórnarráðið  |  Ríkisstjórn  |  Réttarheimildir  |  Alþingi  |
 
Stjórnarráð Íslands    
  Forsíða  
 

  Reglugerðir

með breytingum
eftir ráðuneytum
eftir ártali
eftir köflum í safninu
brottfallnar
Leit
 

439/2010

REGLUGERÐ
um breytingu á reglugerð um ÍLS-veðbréf og íbúðabréf, nr. 522/2004,
með síðari breytingum.

1. gr.
7. mgr. 13. gr. reglugerðarinnar verður svohljóðandi:
Heimilt er að stytta eða lengja lánstíma ÍLS-veðbréfs í samræmi við 6. mgr. að ósk lántaka. Stytting lánstíma er þó ekki heimil ef lántaki hefur undirritað yfirlýsingu skv. 3. mgr. 15. gr. reglugerðar þessarar. Skilmálabreyting er háð samþykki síðari veðhafa og skal henni þinglýst. Stjórn Íbúðalánasjóðs setur nánari reglur um breytingar á lánstíma.


2. gr.
Reglugerð þessi, sem sett er með stoð í 21. og 29. gr. laga um húsnæðismál, nr. 44/1998, með síðari breytingum, öðlast þegar gildi.


Félags- og tryggingamálaráðuneytinu, 12. maí 2010.

Árni Páll Árnason.
Óskar Páll Óskarsson.

B_nr_439_2010.docx

Stofnreglugerð:
522/2004 - Reglugerð um ÍLS-veðbréf og íbúðabréf.

 
Stjórnartíðindi - Sölvhólsgötu 7 - 150 Reykjavík Sími 545 9000
Bréfasími 552 7340 - Netfang: reglugerdir@irr.is
Prentvænt