|
|
439/2000
felld brott með rg. nr. 899/2011
REGLUGERÐ
um breytingu á reglugerð nr. 588/1993 um merkingu,
auglýsingu og kynningu matvæla.
1. gr. Við 30. gr. bætist eftirfarandi málsgrein:
Á umbúðir alifugla og afurða þeirra skal skrá leiðbeiningar um meðhöndlun og matreiðslu. Skal það gert með merki því sem fram kemur í viðauka með reglugerð þessari merktum viðauki X, og skal merkið að lágmarki vera 3 x 5 cm að stærð. Yfirskrift á merki skal vera í 14 punkta letri og annar texti að lágmarki 9 punktar. Texti í merki skal vera skýr og auðlesinn og þannig að hann sé annaðhvort dökkur á ljósum grunni eða ljóst letur á dökkum grunni.
2. gr. Reglugerð þessi er sett með stoð í matvælalögum nr. 93/1995 til þess að öðlast gildi 1. júní 2000. Reglugerð þessi hefur verið tilkynnt í samræmi við ákvæði tilskipunar nr. 98/34 EB.
Umhverfisráðuneytinu, 13. júní 2000.
F. h. r.
Magnús Jóhannesson. Ingimar Sigurðsson.
Stofnreglugerð: 588/1993 - Reglugerð um merkingu, auglýsingu og kynningu matvæla
|