Fara beint í efnið
Fyrri útgáfa

Prentað þann 16. apríl 2024

Reglugerð með breytingum síðast breytt 30. maí 2018

438/2012

Reglugerð um sameiginlegar reglur um flæðisstjórnun flugumferðar.

1. gr. Markmið.

Markmið reglugerðar þessarar er að koma á sameiginlegum reglum um ráðstafanir vegna flæðisstjórnunar flugumferðar í því skyni að hámarka tiltæka getu til nýtingar loftrýmis og efla flæðisstjórnunarferli flugumferðar.

2. gr. Gildissvið.

Reglugerð þessi gildir um loftrými Alþjóðaflugmálastofnunarinnar innan Evrópusvæðis (ICAO EUR) og Afríku- og Indlandshafssvæðis (ICAO AFI).

3. gr. Lögbært yfirvald.

Flugmálastjórn Íslands telst lögbært yfirvald samkvæmt reglugerð þessari.

4. gr. Innleiðing.

Með reglugerð þessari öðlast gildi eftirfarandi reglugerð framkvæmdastjórnar Evrópusambandsins með þeim breytingum og viðbótum sem leiðir af XIII. viðauka samningsins um Evrópska efnahagssvæðið, bókun 1 um altæka aðlögun og öðrum ákvæðum hans:

  1. Reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) nr. 255/2010 frá 25. mars 2010 um sameiginlegar reglur um flæðisstjórnun flugumferðar, sbr. ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar nr. 27/2012 frá 10. febrúar 2012. Reglugerðin er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 12, 1. mars 2012, bls. 647.
  2. Framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2016/1006 frá 22. júní 2016 um breytingu á reglugerð (ESB) nr. 255/2010 að því er varðar ákvæði Alþjóðaflugmálastofnunarinnar sem um getur í 1. mgr. 3. gr., sbr. ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 213 frá 28. október 2016. Reglugerðin er birt í EES-viðbæti við Stjónartíðindi Evrópusambandsins nr. 63 17. nóvember 2016, bls. 90-91.
  3. Framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2017/2159 frá 20. nóvember 2017 um breytingu á reglugerð (ESB) nr. 255/2010 að því er varðar tilteknar tilvísanir í ákvæði Alþjóðaflugmálastofnunarinnar, sbr. ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 67 frá 23. mars 2018. Reglugerðin er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðinda Evrópusambandsins nr. 25 frá 19. apríl 2018, bls. 306.

5. gr. Gildistaka.

Reglugerð þessi er sett samkvæmt heimild í 57. gr. a., sbr. 145. gr. laga um loftferðir nr. 60/1998 með síðari breytingum og öðlast þegar gildi.

Fyrirvari

Reglugerðir eru birtar í B-deild Stjórnartíðinda skv. 3. gr. laga um Stjórnartíðindi og Lögbirtingablað, nr. 15/2005, sbr. reglugerð um útgáfu Stjórnartíðinda nr. 958/2005.

Sé misræmi milli þess texta sem birtist hér í safninu og þess sem birtur er í útgáfu B-deildar Stjórnartíðinda skal sá síðarnefndi ráða.