Reglugerð
um refa- og
minkaveiðar.
Orðskýringar.
1. gr.
Í reglugerð þessari merkir:
Friðun: Bann við veiðum og öðrum aðgerðum sem geta aukið
vanhöld eða dregið úr viðkomu refa eða minka.
Veiðar: Að handsama eða drepa refi og minka.
Tjón af völdum refa og minka: Fjárhagslegt tjón sem
einstaklingar, fyrirtæki eða aðrir verða fyrir, heilsufarslegt tjón fólks eða
búfénaðar og tjón á náttúru landsins.
Markmið og umsjón
veiða.
2. gr.
Veiðistjóri hefur umsjón með opinberum
aðgerðum til að meta og draga úr tjóni af völdum refa og minka. Í því skyni
stundar veiðistjóri hagnýtar rannsóknir í samvinnu við Náttúrufræðistofnun
Íslands, aðrar stofnanir eða einstaklinga eftir því sem þörf krefur.
Niðurstöður rannsókna skulu birtar opinberlega og lagðar til grundvallar
aðgerðum til að draga úr tjóni af völdum refa og minka.
3. gr.
Í þeim tilgangi að koma í veg fyrir eða
draga úr tjóni af völdum refa er friðun þeirra aflétt á tímabilinu 1. ágúst til
30. apríl um allt land, nema á svæðum þar sem veiðar eru bannaðar skv.
sérstökum reglum sem settar eru á grundvelli laga nr. 47/1971 um náttúruvernd,
sbr. 1. viðauka.
Heimilt er að veiða mink allt árið um land allt, nema á
svæðum þar sem umhverfisráðherra hefur auglýst friðun hans tímabundið í
rannsóknaskyni og á svæðum þar sem veiðar eru bannaðar skv. sérstökum reglum
sem settar eru á grundvelli laga nr. 47/1971 um náttúruvernd, sbr. 1. viðauka.
Á eignarlöndum eru refa- og minkaveiðar einungis heimilar
með leyfi veiðiréttarhafa.
4. gr.
Þar sem umhverfisráðherra ákveður, að
fengnum tillögum veiðistjóra, að veiðar séu nauðsynlegar til þess að koma í veg
fyrir tjón af völdum refa og minka er sveitarstjórn skylt að ráða skotmenn til
grenjavinnslu og minkaveiða árlega. Svæði sem hér um ræðir eru tilgreind í 2.
viðauka. Eigi fleiri sveitarfélög sameiginlegt upprekstrarland skulu
sveitarfélög fela stjórn viðkomandi upprekstrar- eða fjallskilafélags umsjón
veiðanna.
Telji sveitarstjórn og veiðistjóri ekki þörf á að stunda
grenjavinnslu og minkaveiðar á hluta þeirra svæða sem tilgreind eru í 2.
viðauka er þeim heimilt með samþykki umhverfisráðherra að gera með sér
samkomulag um takmörkun veiða á svæðinu.
Eftirlit með því að sveitarfélög sjái um refa- og
minkaveiðar er í höndum veiðistjóra.
Sérákvæði um
refaveiðar.
5. gr.
Á grenjatíma, sem telst vera frá 1. maí til
31. júlí, eru refaveiðar heimilar skotmönnum sem ráðnir eru til grenjavinnslu
skv. 4. gr. Þó geta bændur og æðarræktendur eða aðilar á þeirra vegum, skotið
refi sem búfénaði eða æðarvarpi stafar bein hætta af. Skal viðkomandi tilkynna
skotmönnum ráðnum skv. 4. gr. um slíka veiði svo fljótt sem auðið er.
Skotmenn sem ráðnir eru samkvæmt 4. gr. skulu einnig vera
til reiðu á grenjatíma ef refir valda tjóni og greni þeirra finnast eigi.
Þar sem veiðistjóra og sveitarstjórn þykir betur henta má
skipuleggja refaveiði að vetrarlagi í stað grenjavinnslu.
6. gr.
Menn sem ráðnir eru til grenjavinnslu skulu
aðeins leita einu sinni á hverju sumri á hverju þekktu greni á viðkomandi
svæði.
Telji sveitarstjórn þörf á að leita áður óþekktra grenja
skal haft um það samráð við veiðistjóra og skal kostnaðaráætlun samþykkt af
veiðistjóra áður en leit hefst.
Grenjaskyttur skulu vera vel vopnum búnar og kappkosta að
vinna hvert greni á sem stystum tíma.
Séu dýrabogar lagðir fyrir yrðlinga í grenjum skal búa
þannig um bogana að sem minnst hætta sé á að yrðlingar meiðist. Gerðir fótboga
og gildra skulu hafa hlotið samþykki ráðgjafarnefndar um villt dýr. Ekki má
yfirgefa greni þar sem bogar hafa verið lagðir fyrir yrðlinga. Yrðlingar skulu
aflífaðir á skjótvirkan hátt.
7. gr.
Skylt er að ganga vel um greni og skilja
þar ekkert rusl eftir. Heimilt er að merkja greni með því að hlaða smávörðu eða
byrgi í námunda við það.
Óheimilt er að eyðileggja greni.
>Ekki má láta hunda hlaupa um á greni á grenjatíma né
hafa þar óþarfa umgang.
Sveitarstjórnir skulu halda skrá yfir öll þekkt greni og er
grenjaskyttum skylt að viðhalda henni með upplýsingum um ný greni sem þeir
kunna að finna. Afrit af grenjaskrá skal vera í vörslu veiðistjóra.
Sérákvæði um
minkaveiðar.
8. gr.
Menn sem ráðnir eru til minkaveiða skulu að
jafnaði veiða á tímabilinu 20. apríl til 30. júní. Þar sem sveitarstjórn og
veiðistjóra þykir betur henta má skipuleggja minkaveiðar á öðrum árstímum.
Skylt er að ganga þannig um minkabæli að ekki hljótist
landspjöll af.
Ráðnir minkaveiðimenn skulu leita meðfram sjó, ám og vötnum
þar sem líklegt telst að minkabæli finnist.
Minkaveiðimenn skulu vera vel tækjum búnir og hafa með sér
vana minkaveiðihunda ef þess er nokkur kostur.
Séu gildrur lagðar fyrir mink skal þannig um þær búið að
öðrum dýrum stafi sem minnst hætta af. Ef fótbogar og dauðagildrur eru notaðar
skal búa um þær þannig að minkurinn láti lífið á sem skjótastan hátt. Gerðir
fótboga og gildra skulu hafa hlotið samþykki ráðgjafarnefndar um villt dýr.
Minkur sem næst lifandi skal aflífaður á sem skjótvirkastan
hátt.
Leiðbeiningar og
uppgjör vegna veiða.
9. gr.
Skylt er veiðistjóra að leiðbeina
grenjaskyttum og minkaveiðamönnum, sem sveitarfélög semja við um refa- og
minkaveiðar, um veiðiaðferðir, veiðitækni og búnað við veiðar. Veiðistjóri skal
og veita allar upplýsingar og aðstoð sem tök eru á, halda námskeið fyrir
veiðimenn eftir þörfum og gera tilraunir með ný tæki og veiðiaðferðir.
Grenjaskyttur og minkaveiðmenn, sem sveitarfélög semja við
um refa- og minkaveiðar, skulu í starfi stuðla að aukinni þekkingu á refum og
minkum í samvinnu við veiðistjóra og láta í té sýni úr felldum dýrum sér að
kostnaðarlausu, fari veiðistjóri fram á það eða aðrir sem hann samþykkir.
10. gr.
Umhverfisráðherra ákveður árlega
viðmiðunartaxta launa grenjaskyttna og minkaveiðimanna og verðlauna fyrir
löglega unna refi og minka. Verðlaun fyrir unnin dýr skulu aðeins greidd sé
skott af hverju unnu dýri lagt fram til sönnunar. Gildir þetta jafnt um ráðnar
grenjaskyttur og minkaveiðimenn sem aðra.
Vilji veiðimaður hagnýta sér skinn af unnu dýri getur hann
sannað veiði sína með því að leggja skinnið fram hjá sveitarstjórn. Skal þá
skinnið auðkennt með merkibleki á innanvert skottið og skal stungið í merkið
með oddhvassri nál.
Við uppgjör skulu grenjaskyttur og menn sem ráðnir eru til
minkaveiða leggja fram sundurliðaða reikninga og útdrátt úr dagbók þar sem
skráð er hvar og hvenær grenjaleit og veiðar fóru fram. Skulu afrit af
kvittunum og útdráttur úr dagbók fylgja árlegu reikningsyfirliti til
veiðistjóra, sbr. 11. gr.
11. gr.
Uppgjörstímabil vegna refa- og minkaveiða
er frá 1. september ár hvert til 31. ágúst næsta ár. Skylt er oddvitum,
sveitarstjórum, bæjarstjórum og öðrum þeim, er sjá um framkvæmd refa- og
minkaveiða, að senda veiðistjóra skýrslu um veiðina ásamt reikningsyfirliti
innan 6 vikna frá lokum uppgjörstímabils.
Veiðistjóri endurskoðar reikninga vegna refa- og
minkaveiða. Úrskurði veiðistjóri að reikningar séu réttir og hóflegir
endurgreiðir ríkissjóður viðkomandi sveitarfélagi helming útlagðs kostnaðar við
veiðarnar.
Veiðistjóri skal árlega birta upplýsingar um veiðarnar og
kostnað við þær.
Vanræki sveitarstjórn að framfylgja fyrirmælum þessarar
greinar er umhverfisráðherra heimilt að svipta það sveitarfélag framlagi því úr
ríkissjóði sem gert er ráð fyrir í reglugerðinni, eitt ár í senn.
Refsiákvæði.
12. gr.
Brot gegn reglugerð þessari varða sektum,
varðhaldi eða fangelsi, upptöku skotvopna og sviptingu veiðileyfis, sbr. 19.
gr. laga nr. 64/1994. Mál út af slíkum brotum sæta meðferð opinberra mála.
Heimildarákvæði.
13. gr.
Reglugerð þessi er sett samkvæmt 7., 12. og
13. gr. laga nr. 64/1994 um vernd, friðun og veiðar á villtum fuglum og villtum
spendýrum og öðlast þegar gildi. Jafnframt er felld úr gildi reglugerð nr.
358/1994 um að aflétta friðun refa og um veiðar á refum og minkum.
Umhverfisráðuneytið,
31. júlí 1995.
F. h. r.
Magnús Jóhannesson.
Sigurður Á.
Þráinsson.
1. VIÐAUKI
Friðlýst svæði, skv. lögum nr. 47/1971 um
náttúruvernd, þar sem veiðar eru óheimilar, sbr. 10. gr. laga nr. 64/1994.
|
Heiti
|
Eðli friðlýsingar
|
Auglýsing í Stjórnartíð.
|
|
Ástjörn
|
friðland
|
189/1978
|
|
Borgir
|
náttúruvætti
|
269/1981
|
|
Búðahraun
|
friðland
|
357/1979
|
|
Díma í Lóni
|
náttúruvætti
|
523/1975
|
|
Dverghamrar
|
náttúruvætti
|
446/1987
|
|
Eldey
|
friðland
|
119/1974
|
|
Esjufjöll
|
friðland
|
188/1978
|
|
Geitland
|
friðland
|
283/1988
|
|
Grótta
|
friðland
|
131/1984
|
|
Gullfoss
|
friðland
|
141/1979
|
|
Herdísarvík
|
friðland
|
121/1988
|
|
Hornstrandir
|
friðland
|
332/1985
|
|
Hraunfossar og Barnafossar
|
náttúruvætti
|
410/1987
|
|
Húsafellsskógur
|
friðland
|
217/1974
|
|
Hvannalindir
|
friðland
|
32/1973
|
|
Ingólfshöfði
|
friðland
|
388/1978
|
|
Jökulsárgljúfur
|
þjóðgarður
|
359/1993
|
|
Kringilsárrani
|
friðland
|
524/1975
|
|
Melrakkaey
|
friðland
|
118/1974
|
|
Skaftafell
|
þjóðgarður
|
319/1984
|
|
Skógarfoss
|
náttúruvætti
|
477/1987
|
|
Spákonufellshöfði
|
fólkvangur
|
444/1980
|
|
Surtsey
|
friðland
|
122/1974
|
|
Varmárósar
|
friðland
|
506/1987
|
|
Víghólasvæðið
|
náttúruvætti
|
778/1983
|
|
Þjórsárver
|
friðland
|
507/1987
|
2. VIÐAUKI
Svæði þar sem refa- og minkaveiðar skulu stundaðar, sbr.
12. gr. laga nr. 64/1994.
Til þess að draga úr tjóni af völdum refa og minka skal
stunda skipulega grenjaleit, grenjavinnslu og minkaveiðar um allt land á öðrum
svæðum en þeim sem óheimilt er að veiða á, sbr. 1. viðauka, og á svæði á
miðhálendi landsins sem afmarkast af línu er hugsast dregin milli eftirtalinna
hnita, sbr. kort Landmælinga Íslands:
Mýra- og Borgarfjarðarsýsla
- ÞÓRISJÖKULL,
hæðarpunktur 1350
- EIRÍKSJÖKULL,
hæðarpunktur 1675
- VEIÐITJÖRN,
vesturendi
Vestur- og Austur-Húnavatnssýsla
- HALLDÓRSHÓLL,
hæðarpunktur 475
- SAUÐAFELL,
hæðarpunktur 679
Skagafjarðarsýsla
- SANDFELL,
hæðarpunktur 827
Suður-Þingeyjarsýsla
- SANDMÚLAVATN,
norðurendi
- BLÁFJALL,
hæðarpunktur 1222
- BÚRFELL,
hæðarpunktur 953
- ÁRMÓT
JÖKULSÁR Á FJÖLLUM OG SKARÐSÁR
Norður-Múlasýsla
- ÞRÍHYRNINGUR,
hæðarpunktur 958
- ÁRMÓT
SAUÐÁR OG JÖKULSÁR Á BRÚ
Suður-Múlasýsla
- ÞRÁNDARJÖKULL,
hæðarpunktur 1248
- HOFSJÖKULL,
hæðarpunktur 1190, sýslumörk
Austur-Skaftafellssýsla
- EFSTAFELL,
hæðarpunktur 1275
- MÁFABYGGÐIR,
hæðarpunktur 1440
- FREMRIMENN,
hæðarpunktur 834
Vestur-Skaftafellssýsla
- HOLTASKER,
hæðarpunktur 834
- LEIÐÓLFSFELL,
hæðarpunktur 548
- EINHYRNINGUR,
hæðarpunktur 684
- SANDFELL,
hæðarpunktur 597
Rangárvallasýsla
- ENTA,
hæðarpunktur 1350
- HEKLA,
hæðarpunktur 1491
- HRAUNEYJARFOSS
Í TUNGNAÁ
Árnessýsla
- LAMBAFELL,
hæðarpunktur 714
- BLÁFELL,
hæðarpunktur 1204
- ELDBORGIR
Í LAMBAHRAUNI, hæðarpunktur 678, hreppamörk
- SKJALDBREIÐUR,
hæðarpunktur 1060, bein lína í hnit 1
Undantekning er þó gerð að því er varðar minkaveiðar (A) í
Herðubreiðarfriðland, sbr. auglýst mörk friðlandsins í auglýsingu nr. 272/1974
í B-deild Stjórnartíðinda og (B) í Veiðivötnum í Rangárvallasýslu, á svæði sem
takmarkast af eftirfarandi hnitum:
I.HÓFSVAÐ í Tungnaá
II.FONTUR, hæðarpunktur 738
III. TUNGNAÁ við Jökulvatn
(Jökullón) með vesturbakka Tungnaár í hnit I.
Word útgáfa af reglugerð