REGLUGERÐ
um vörugjald.
I. KAFLI
Gjaldskyldar vörur og undanþágur.
1. gr.
Gjaldskyldar vörur.
Greiða skal í ríkissjóð vörugjald
af innfluttum vörum og vörum sem eru framleiddar, unnið er að eða er pakkað
innanlands.
Gjaldskyldan nær til vara, nýrra
sem notaðra, sem flokkast undir tollskrárnúmer sem talin eru upp í viðauka I
við lög nr. 97/1987, um vörugjald, með síðari breytingum.
Við flokkun til gjaldskyldu skal
fylgt flokkunarreglum tollalaga nr. 55/1987.
Skattstjórar og innlendir
framleiðendur vöru geta óskað eftir ákvörðun tollstjóra um tollflokkun
framleiðsluvöru samkvæmt ákvæðum 142. gr. tollalaga. Skattstjóri og
framleiðandi geta skotið ákvörðun tollstjóra um tollflokkun vöru til
ríkistollanefndar, sbr. 101. gr. tollalaga. Ákvörðun tollyfirvalda um
tollflokkun er bindandi fyrir framleiðanda og skattyfirvöld.
2. gr.
Undanþágur.
Vörur sem seldar eru úr landi eru
ekki gjaldskyldar. Sala á gjaldskyldum vörum til varnarliðsins á
Keflavíkurflugvelli, sbr. lög nr. 110/1951, og sala í tollfrjálsum verslunum,
sbr. VIII. kafla tollalaga, telst sala úr landi í skilningi reglugerðar
þessarar. Sala til einstakra varnarliðsmanna er hins vegar gjaldskyld samkvæmt
almennum reglum.
Sala á hráefni eða efnivöru til handhafa
vörugjaldsskírteina er undanþegin vörugjaldi samkvæmt ákvæðum V. kafla.
Jafnframt vörusala til sérstaklega skráðra heildsala, sbr. 3. mgr. 9. gr.
Vörur sem um ræðir í 5. gr.
tollalaga, eru ekki gjaldskyldar við tollafgreiðslu, enda sé gætt þeirra skilyrða
sem að öðru leyti gilda um tollfrelsi þessara vara. Þeir sem um ræðir í 3. gr.
tollalaga eru og undanþegnir gjaldskyldu við innflutning, enda fullnægi þeir
settum skilyrðum um tollfrjálsan innflutning. Um innflutning sérstaklega
skráðra heildsala fer eftir 3. mgr. 9. gr.
II. KAFLI
Gjaldflokkar og gjaldstofn.
3. gr.
Gjaldflokkar og gjaldstofn magngjalds.
Af vörum sem flokkast undir
tollskrárnúmer í A lið viðauka I við lög um vörugjald skal greiða vörugjald
fyrir hvert kílógramm vörunnar án umbúða, eftir því sem tilgreint er í
viðaukanum. Af vörum sem flokkast undir tollskrárnúmer í B lið viðaukans skal
greiða vörugjald fyrir hvern lítra vörunnar án umbúða, eftir því sem tilgreint
er í viðaukanum.
4. gr.
Gjaldflokkar verðgjalds.
Af vörum sem flokkast undir
tollskrárnúmer í C lið viðauka I við lög um vörugjald skal greiða 15%
vörugjald. Af vörum sem flokkast undir tollskrárnúmer í D lið viðaukans skal
greiða 20% vörugjald. Af vörum sem flokkast undir tollskrárnúmer í E lið
viðaukans skal greiða 25% vörugjald.
5. gr.
Gjaldstofn verðgjalds við innflutning.
Gjaldstofn vörugjalds af
innfluttum vörum, sem flokkast undir tollskrárnúmer sem talin eru upp í C-E
liðum í viðauka I við lög um vörugjald er tollverð þeirra eins og það er
ákveðið í 8.-10. gr. tollalaga, að viðbættum tollum eins og þeir eru ákveðnir
samkvæmt þeim lögum.
6. gr.
Gjaldstofn verðgjalds af innlendri framleiðsluvöru.
Gjaldstofn vörugjalds af vörum sem
framleiddar eru, unnið er að eða er pakkað innanlands og flokkast undir
tollskrárnúmer sem talin eru upp í C-E liðum í viðauka I við lög um vörugjald
er verksmiðjuverð þeirra.
Verksmiðjuverð er söluverð vöru
frá framleiðanda án frádráttar nokkurs kostnaðar eða þjónustugjalds.
Samsvari verksmiðjuverð ekki
heildarandvirði vöru, t.d. vegna þess að kaupandi eða annar framleiðandi leggur
til hráefni, efnivörur eða annað verðmæti sem vörugjald hefur ekki þegar verið
greitt af, skal heildarandvirði vörunnar teljast gjaldstofn til vörugjalds.
Ef framleiðandi er jafnframt
heildsali eða smásali vöru eða ef verksmiðjuverð vöru liggur ekki fyrir af
öðrum ástæðum skal gjaldstofn vera almennt gangverð á sömu eða sams konar vöru
við sölu frá framleiðendum. Ef slíkt almennt gangverð liggur ekki fyrir skal
gjaldstofn vera verksmiðjuverð framleiðanda á sömu eða sams konar vöru í
sambærilegum viðskiptum við óháða aðila.
Ef framleiðandi og kaupandi eru
háðir hvor öðrum í skilningi 2. mgr. 8. gr. tollalaga er skattyfirvöldum
heimilt að ákvarða gjaldstofn vörugjalds samkvæmt ákvæðum 4. mgr.
III. KAFLI
Gjaldskyldir aðilar og skráning.
7. gr.
Gjaldskyldir aðilar.
Skylda til að standa skil á
vörugjaldi hvílir á þessum aðilum:
1. Innflytjendum, þ.e. öllum þeim sem
flytja til landsins vörugjaldsskyldar vörur hvort sem er til eigin nota,
framleiðslu eða endursölu.
2. Gjaldskyldum framleiðendum, þ.e.
öllum þeim sem framleiða, vinna að eða pakka vörugjaldsskyldum vörum
innanlands.
3. Sérstaklega skráðum heildsölum, þ.e.
þeim sem flytja inn eða kaupa innanlands vörugjaldskyldar vörur til heildsölu
og fengið hafa sérstaka skráningu hjá skattstjóra, sbr. 9. gr.
8. gr.
Tilkynningarskylda og skráning.
Aðilar, sem eru gjaldskyldir skv.
7. gr., að undanskildum þeim sem flytja vörur til landsins til eigin nota,
skulu ótilkvaddir og eigi síðar en 15 dögum áður en vörugjaldsskyld starfsemi
hefst, tilkynna atvinnurekstur sinn eða starfsemi til skráningar hjá
skattstjóranum í Reykjavík sem annast skráningu gjaldskyldra aðila.
Breytingar, sem verða á starfsemi
eftir að skráning hefur farið fram, skal tilkynna eigi síðar en 15 dögum eftir
að breyting átti sér stað.
9. gr.
Sérstök skráning heildsala.
Aðilar, sem flytja inn eða kaupa
innanlands gjaldskyldar vörur til heildsölu, geta sótt um sérstaka skráningu
til skattstjórans í Reykjavík. Slík skráning veitir aðilum heimild til að gera
upp vörugjald miðað við breytingu á birgðastöðu á uppgjörstímabili.
Skilyrði skráningar skv. 1. mgr.
eru:
1. Að aðili hafi heildsöluleyfi.
2. Að aðili haldi sérstakt
birgðabókhald yfir vörur, sem vegna skráningarinnar lúta sérreglum um uppgjör
vörugjalds, í samræmi við reglur sem ríkisskattstjóri setur.
Sérstaklega skráðum heildsölum er
heimilt að flytja gjaldskyldar vörur til landsins eða kaupa gjaldskyldar vörur
innanlands af gjaldskyldum aðilum samkvæmt 2. og 3. tölul. 7. gr. án þess að
með því stofnist skylda til greiðslu vörugjalds á þeim tímapunkti, enda
framvísi þeir skírteini því til staðfestingar.
IV. KAFLI
Uppgjörstímabil, gjalddagar, álagning, álag o. fl.
10. gr.
Uppgjörstímabil og gjalddagar.
Hvert uppgjörstímabil skráðra aðila,
sbr. III. kafla, er tveir mánuðir; janúar og febrúar, mars og apríl, maí og
júní, júlí og ágúst, september og október og nóvember og desember.
Gjalddagi hvers uppgjörstímabils
er 28. dagur annars mánaðar eftir lok þess.
11. gr.
Álagning vörugjalds við innflutning.
Tollstjóri skal annast álagningu
vörugjalds við tollafgreiðslu á innfluttum vörum.
12. gr.
Álagning vörugjalds innanlands.
Vörugjald innanlands, sbr. 2. og
3. tölul. 7. gr., reiknast við sölu eða afhendingu gjaldskyldrar vöru og
skiptir ekki máli hvenær eða með hvaða hætti greiðsla kaupanda fer fram.
Gjaldskyldir aðilar skv. 2. og 3.
tölul. 7. gr. skulu eigi síðar en á gjalddaga hvers uppgjörstímabils skila
vörugjaldsskýrslu vegna sölu eða afhendingar á því tímabili. Þeir sem selja
gjaldskyldar vörur án vörugjalds skv. 1. og 2. mgr. 2. gr. skulu gera grein
fyrir þeirri sölu á vörugjaldsskýrslu. Að öðru leyti skal vörugjaldsskýrsla
vera í því formi sem ríkisskattstjóri ákveður. Ríkisskattstjóri getur ákveðið
að mismunandi vörugjaldsskýrslur verði fyrir gjaldskylda framleiðendur og
sérstaklega skráða heildsala.
Skattstjóri ákvarðar vörugjald
aðila samkvæmt þessari grein. Skattstjóri áætlar vörugjald af viðskiptum þeirra
aðila sem skila ekki vörugjaldsskýrslu innan tilskilins tíma, senda enga skýrslu
eða ef skýrslu eða fylgigögnum er ábótavant. Skattstjóri tilkynnir
innheimtumanni og gjaldskyldum aðila um áætlanir og leiðréttingar sem gerðar
hafa verið.
13. gr.
Innheimta vörugjalds.
Tollstjóri innheimtir vörugjald af
innflutningi aðila sem flytja inn vörur til eigin nota við tollafgreiðslu.
Skráðir innflytjendur skv. 1. mgr.
8. gr. skulu eigi síðar en á gjalddaga hvers uppgjörstímabils ótilkvaddir
greiða innheimtumanni ríkissjóðs vörugjald af gjaldskyldum vörum sem voru
tollafgreiddar á tímabilinu í samræmi við álagningu samkvæmt 11. gr.
Gjaldskyldir framleiðendur skv. 2.
tölul. 7. gr. skulu eigi síðar en á gjalddaga hvers uppgjörstímabils
ótilkvaddir greiða innheimtumanni ríkissjóðs vörugjald af gjaldskyldum vörum
sem voru seldar eða afhentar á tímabilinu.
Sérstaklega skráðir heildsalar
skv. 3. tölul. 7. gr. skulu eigi síðar en á gjalddaga hvers uppgjörstímabils
ótilkvaddir greiða innheimtumanni ríkissjóðs vörugjald af gjaldskyldum vörum
sem þeir hafa keypt eða fengið tollafgreiddar á tímabilinu eða voru til staðar
í birgðum í upphafi tímabilsins en eru ekki til staðar í birgðum við lok þess
samkvæmt birgðabókhaldi.
14. gr.
Álag og dráttarvextir.
Sé vörugjald ekki greitt á
tilskildum tíma skal aðili sæta álagi til viðbótar því vörugjaldi sem honum ber
að standa skil á. Sama gildir ef vörugjaldsskýrslu hefur ekki verið skilað eða
henni er ábótavant og vörugjald því áætlað, nema aðili hafi greitt fyrir
gjalddaga vörugjaldsins upphæð er til áætlunarinnar svarar eða gefið fyrir lok
kærufrests fullnægjandi skýringu á vafaatriðum. Vörugjald telst greitt á
tilskildum tíma hafi greiðsla sannanlega verið póstlögð á gjalddaga.
Álag skv. 1. mgr. skal vera 1% af
þeirri upphæð sem vangreidd er fyrir hvern byrjaðan dag eftir gjalddaga, þó
ekki hærri en 10%.
Sé vörugjald ekki greitt innan
mánaðar frá gjalddaga skal greiða ríkissjóði dráttarvexti af því sem
gjaldfallið er.
V. KAFLI
Vörugjaldsskírteini og endurgreiðslur.
15. gr.
Skírteini framleiðenda sem nota vörugjaldsskylt hráefni eða efnivöru.
Framleiðendur vöru, sem nota í
framleiðslu sína hráefni eða efnivöru sem ber vörugjald, geta fengið heimild
hjá skattstjóranum í Reykjavík til að kaupa slíkt hráefni eða efnivöru án
vörugjalds, sbr. 1. málsl. 2. mgr. 2. gr.
Framleiðandi sem óskar eftir
heimild skv. 1. mgr. skal sækja um hana til skattstjórans í Reykjavík í því
formi sem ríkisskattstjóri ákveður. Í umsókn skal m.a. tilgreina heiti og
tollflokkun hráefnis eða efnivöru sem nýtt er til framleiðslunnar.
Telji skattstjórinn í Reykjavík að
fullnægjandi upplýsingar séu fram komnar gefur hann út sérstakt skírteini til
framleiðanda. Skírteinið heimilar viðkomandi framleiðanda að kaupa innanlands
án vörugjalds hráefni eða efnivöru til nota í eigin framleiðslu. Skírteinið
veitir framleiðanda jafnframt rétt til niðurfellingar eða endurgreiðslu
vörugjalds af innflutningi á hráefni eða efnivöru til nota í eigin framleiðslu.
Tilgreina skal í skírteinið til hvaða vörutegunda það tekur.
Heimild til undanþágu og réttur
til endurgreiðslu samkvæmt þessari grein nær einungis til hráefnis eða efnivöru
sem verður hluti af hinni endanlegu framleiðsluvöru. Heimildin nær hins vegar
hvorki til kaupa eða innflutnings á efnivörum til byggingar eða viðhalds á
fasteignum né til nýsmíði eða viðgerðar á ökutækjum.
16. gr.
Niðurfelling eða endurgreiðsla vörugjalds af innfluttu hráefni eða
efnivöru.
Innflytjandi getur á gjalddaga
hvers uppgjörstímabils fengið fellt niður eða endurgreitt vörugjald af vöru sem
hann hefur flutt til landsins og vörugjald reiknaðist af við innflutning, hafi
hann á uppgjörstímabilinu selt vöruna sem hráefni eða efnivöru til handhafa
vörugjaldsskírteinis skv. 15. gr. Sama gildir um innflutning handhafa
vörugjaldsskírteinis skv. 15. gr. á hráefni eða efnivöru til nota í eigin
framleiðslu.
Skilyrði niðurfellingar eða
endurgreiðslu samkvæmt 1. málsl. 1. mgr. er að kaupandi framvísi
vörugjaldsskírteini skv. 15. gr. við kaupin og innflytjandi skrái númer þess og
gildistíma á sölureikninginn.
Sækja skal um niðurfellingu eða
endurgreiðslu skv. 1. mgr. í sérstakri skýrslu til skattstjórans í Reykjavík,
sem vera skal í því formi sem ríkisskattstjóri ákveður. Í endurgreiðsluskýrslu
skulu m.a. koma fram upplýsingar um sölu eða nýtingu þess hráefnis eða efnivöru
sem endurgreiðslubeiðnin snertir, þar með talið heiti kaupenda, heiti vöru,
heildarmagn hennar og fjárhæð vörugjalds sem óskað er endurgreiðslu á.
Innflytjanda er heimilt að láta skattstjóra í té yfirlit yfir þá viðskiptavini
sem kaupa af honum hráefni eða efnivöru án vörugjalds á grundvelli
vörugjaldsskírteinis skv. 15. gr. og þarf hann þá ekki að tilgreina nöfn
kaupenda á skýrslu hverju sinni. Skýrslu skal skilað eigi síðar en 15 dögum
fyrir gjalddaga uppgjörstímabils.
Fallist skattstjórinn í Reykjavík
á skýrsluna án frekari skýringa skal niðurfelling eða endurgreiðsla fara fram á
gjalddaga. Sé endurgreiðsluskýrslu ekki skilað fyrr en að loknum tilgreindum
tímafresti skal endurgreiðsla fara fram að að liðnum 15 dögum frá skilum
hennar.
Flytji handhafi
vörugjaldsskírteinis skv. 15. gr. inn hráefni eða efnivörur eingöngu til nota í
eigin framleiðslu getur hann fengið sjálfkrafa niðurfellingu samkvæmt þessari
grein, þ.e. án umsóknar skv. 3. mgr., enda óski hann þess við skattstjórann í
Reykjavík.
Niðurfelling eða endurgreiðsla
vörugjalds samkvæmt þessari grein er kæranleg skv. 23. gr. Kæru skal þó beint
til skattstjórans í Reykjavík.
17. gr.
Skírteini heildsala.
Fái heildsali sérstaka skráningu
skv. 9. gr. gefur skattstjóri út viðeigandi skírteini honum til handa, sbr. 3.
mgr. 9. gr.
18. gr.
Gildistími vörugjaldsskírteina o.fl.
Gildistími skírteina skv. 15. og
17. gr. skal að jafnaði vera 12 mánuðir í senn.
Noti skírteinishafi skv. 15. gr.
vöru, sem hann hefur keypt gegn framvísun skírteinis, á annan hátt en til
framleiðslu skal hann innheimta og standa skil á vörugjaldi af heildarandvirði
vörunnar við afhendingu hennar til annars aðila eða við úttekt til eigin nota.
Jafnframt getur skattstjóri þá afturkallað samþykki til sjálfkrafa
endurgreiðslu skv. 5. mgr. 16. gr.
Brjóti sérstaklega skráður
heildsali gegn reglum, sem ríkisskattsjóri setur, getur skattstjóri afturkallað
skírteini skv. 17. gr. og eftir atvikum endurákvarðað vörugjald frá og með þeim
tíma sem aðili telst hafa brotið gegn reglunum.
VI. KAFLI
Bókhald o.fl.
19. gr.
Vörugjald sem stofn til virðisaukaskatts.
Vörugjald myndar stofn til
virðisaukaskatts hvort sem vara er flutt inn eða keypt innanlands.
20. gr.
Bókhald.
Gjaldskyldir aðilar, sbr. 7. gr.,
aðrir en þeir sem flytja inn gjaldskyldar vörur til eigin nota, skulu haga
bókhaldi sínu þannig að skattyfirvöld geti á hverjum tíma gengið úr skugga um
réttmæti skýrslna um vörugjald.
Sala og önnur afhending
gjaldskyldra aðila skv. 2. og 3. tölul. 7. gr. á gjaldskyldum vörum er
gjaldskyld að því marki sem þeir geta ekki sýnt fram á með bókhaldi og gögnum
þess að hún sé undanþegin. Vanræki aðili að leggja vörugjald á gjaldskylda vöru
ber honum eigi að síður að standa skil á gjaldinu.
Í bókhaldi gjaldskyldra aðila skv.
2. og 3. tölul. 7. gr. skal færa sérstaka reikninga fyrir innkaup og sölu
gjaldskyldrar vöru. Reikninga þessa má færa í lok hvers uppgjörstímabils, enda
sé á grundvelli þeirra hægt að reikna með beinum hætti fjárhæðir vörugjalds.
Þeir sem selja bæði gjaldskyldar og gjaldfrjálsar vörur skulu halda sölu
gjaldskyldra vara greinilega aðgreindri í bókhaldi sínu. Jafnframt skal
aðgreina gjaldskylda sölu frá undanþeginni samkvæmt 1. og 2. mgr. 2. gr. Loks
skal aðgreina sölu og innkaup gjaldsskyldrar starfsemi eftir gjaldtegund og
gjaldflokkum, sbr. 3. og 4. gr. Auk framangreinds ber sérstaklega skráðum
heildsölum að haga bókhaldi sínu eftir reglum, sem ríkisskattstjóri setur.
Ríkisskattstjóri getur sett nánari
reglur um færslur bókhalds samkvæmt þessari grein.
21. gr.
Útgáfa sölureikninga.
Gjaldskyldur aðili skv. 2. og 3.
tölul. 7. gr. skal færa sölu og aðra afhendingu á sölureikning þannig að magn,
tegund og heildarverð vöru ásamt fjárhæð vörugjalds komi fram.
Sé fallið frá innheimtu vörugjalds
vegna undanþágu skv. 2. mgr. 2. gr., sbr. 15. eða 17. gr., skal tilgreina á
sölureikningi númer og gildistíma vörugjaldsskírteinis sem kaupandi framvísar.
Til sönnunar á undanþágu vegna
sölu úr landi skal seljandi varðveita útflutningsskýrslur eða sambærileg
útflutningsgögn með viðkomandi sölureikningi. Til sönnunar á undanþágu vegna
sölu til varnarliðsins skal varðveita pöntunarseðla eða önnur sambærileg gögn
frá varnarliðinu með viðkomandi sölureikningi.
Þegar heildsali sem fengið hefur
sérstaka skráningu skv. 9. gr. kaupir gjaldskyldar vörur án vörugjalds skal
tilgreina á sölureikningi það magn eða það verð sem myndar gjaldstofn
vörugjalds.
Seljendum vöru, sem ekki er
vörugjaldsskyld, er óheimilt að tilgreina vörugjald á sölureikning. Geri þeir
það skulu þeir skila gjaldinu í ríkissjóð, nema leiðréttingu verði komið við
gagnvart kaupanda vörunnar. Sama gildir um gjaldskylda aðila sbr. 7. gr. sem
tilgreina á reikningum sínum of hátt vörugjald eða vörugjald af viðskiptum sem
ekki eru gjaldskyld. Til sönnunar á leiðréttingu skal gefa út kreditreikning
til kaupanda.
VII. KAFLI
Kærur, málsmeðferð o. fl.
22. gr.
Kærur.
Heimilt er að kæra ákvörðun
vörugjalds innan 30 daga frá því gjaldið var ákveðið. Kærufrestur reiknast frá
póstlagningu tilkynningar um gjaldákvörðun. Við ákvörðun vörugjalds án
sérstakrar tilkynningar til kæranda reiknast kærufrestur þó frá gjalddaga uppgjörstímabilsins.
Kæru skal beint til þess tollstjóra eða þess skattstjóra sem annaðist ákvörðun
gjaldsins. Varði kæra eingöngu skráningu aðila skv. 8. eða 9. gr. skal kæru þó
beint til skattstjórans í Reykjavík. Kæru skal fylgja skriflegur rökstuðningur.
Innsend fullnægjandi vörugjaldsskýrsla skal tekin sem kæra þegar um er að ræða
áætlanir skv. 3. mgr. 12. gr. Tollstjóri eða skattstjóri skal kveða upp
skriflegan rökstuddan úrskurð um kæruna og tilkynna hann í ábyrgðarbréfi innan
30 daga frá lokum kærufrests.
Gjaldskyldur aðili og
ríkistollstjóri geta skotið úrskurði tollstjóra skv. 1. mgr. til
ríkistollanefndar sem kveður upp fullnaðarúrskurð.
Gjaldskyldur aðili og
ríkisskattstjóri geta skotið úrskurði skattstjóra skv. 1. mgr. til
yfirskattanefndar sem kveður upp fullnaðarúrskurð.
23. gr.
Gildissvið gagnvart tollalögum og lögum um virðisaukaskatt.
Að því leyti sem eigi er ákveðið í
reglugerð þessari um gjaldskyldu, álagningu, tilhögun bókhalds, eftirlit,
viðurlög, málsmeðferð, kærur, innheimtu, stöðvun tollafgreiðslu eða
atvinnurekstrar og aðra framkvæmd varðandi vörugjald skulu gilda, eftir því sem
við geta átt, ákvæði tollalaga um vörugjald við innflutning, svo og reglugerða
og annarra fyrirmæla settra samkvæmt þeim, og laga um virðisaukaskatt um
vörugjald innanlands, svo og reglugerða og annarra fyrirmæla settra samkvæmt
þeim.
24. gr.
Gildistökuákvæði.
Reglugerð þessi, er sett samkvæmt
heimild í 1. mgr. 13. gr., sbr. 8. gr. laga nr. 97/1987, um vörugjald, með
síðari breytingum, og öðlast gildi þegar í stað. Frá sama tíma fellur úr gildi
reglugerð nr. 356/1996, um vörugjald, með síðari breytingum.
Ákvæði til bráðabirgða.
I
Ákvæði reglugerðar þessarar taka
til innfluttra vara sem tollafgreiddar eru frá og með 1. júlí 1998. Jafnframt
til allra innlendra framleiðsluvara sem seldar eða afhentar eru frá og með
uppgjörstímabilinu júlí og ágúst 1998.
II
Vörugjaldsskírteini gjaldskyldra
framleiðenda, er fengið hafa vörugjaldsskírteini á grundvelli 21. gr.
reglugerðar nr. 356/1996, sem í gildi eru við gildistöku reglugerðar þessarar,
halda gildi sínu, þó ekki varðandi innflutning, til og með 31. janúar 1999.
III
Víkja má frá reglunni í 2. mgr.
16. gr. ef kaupandi hefur ekki fengið vörugjaldsskírteini útgefið hjá
skattstjóra, enda staðfesti skattstjóri þá skriflega gagnvart seljanda að
viðkomandi hafi sótt um vörugjaldsskírteini skv. 15. gr. vegna kaupa á nánar
tilteknu hráefni og efnivöru. Staðfestingin er þá fylgiskjal með
reikningsafriti seljanda. Ákvæðið gildir til 31. ágúst 1998.
Fjármálaráðuneytinu, 14. júlí 1998.
Geir H. Haarde.
Bergþór Magnússon.
Word útgáfa af reglugerð