|
|
428/2010
felld brott með rg. nr. 218/2012
REGLUGERÐ
um gjaldtöku vegna tjaldstæða og þjónustu í Vatnajökulsþjóðgarði.
1. gr. Gjaldtaka er heimil innan Vatnajökulsþjóðgarðs fyrir veitta þjónustu og aðgang að svæðinu, eftir því sem nánar er kveðið á um í 2. og 3. gr. Virðisaukaskattur er innifalinn í gjaldi.
2. gr. Gjald fyrir einn í gistingu í eina nótt á tjaldstæði í tjaldi, fellihýsi, hjólhýsi eða húsbíl:
| 1. | Almennt gjald | kr. | 950 |
| 2. | 13 til 16 ára börn, í fylgd með fullorðnum | kr. | 500 |
| 3. | Örorkulífeyrisþegar | kr. | 500 |
| 4. | Ellilífeyrisþegar (67 ára og eldri) | kr. | 750 |
Aðgangur 12 ára og yngri barna, í fylgd með fullorðnum, að tjaldstæði er gjaldfrjáls.
3. gr. Gjald fyrir aðra þjónustu:
4. gr. Reglugerð þessi, sem er sett samkvæmt heimild í 21. gr. laga nr. 60/2007, um Vatnajökulsþjóðgarð, öðlast þegar gildi. Frá sama tíma fellur úr gildi reglugerð um gjaldtöku vegna tjaldstæða og þjónustu í Vatnajökulsþjóðgarði, nr. 530/2009.
Umhverfisráðuneytinu, 30. apríl 2010.
F. h. r.
Magnús Jóhannesson. Sigríður Auður Arnardóttir.

|