Stjórnarráðið  |  Ríkisstjórn  |  Réttarheimildir  |  Alþingi  |
 
Stjórnarráð Íslands    
  Forsíða  
 

  Reglugerðir

með breytingum
eftir ráðuneytum
eftir ártali
eftir köflum í safninu
brottfallnar
Leit
 

428/2003

REGLUGERÐ
um breytingu á reglugerð nr. 184/2002 um skrá yfir spilliefni og annan úrgang.

1. gr.
Við reglugerðina bætist nýr viðauki, VII. viðauki, sem birtur er í fylgiskjali 1 með reglugerð þessari.

Við reglugerðina bætist nýr viðauki, VIII. viðauki, sem birtur er í fylgiskjali 2 með reglugerð þessari.


2. gr.
Reglugerð þessi er sett með stoð í lögum nr. 7/1998 um hollustuhætti og mengunarvarnir. Einnig er höfð hliðsjón af tölul. 32a, XX. viðauka EES-samningsins tilskipun 91/689/EBE.

Reglugerðin öðlast gildi við birtingu.


Umhverfisráðuneytinu, 26. maí 2003.

F. h. r.
Ingimar Sigurðsson.
Sigríður Auður Arnardóttir.




    Fylgiskjal 1.
    VII. VIÐAUKI


    Flokkar eða helstu gerðir af spilliefnum flokkað eftir því hvers eðlis úrgangurinn er eða frá hvaða starfsemi hann kemur((*) Vissar hliðstæður við færslur í VIII. viðauka eru af ásettu ráði.*) (úrgangurinn getur verið fljótandi, eðja eða í föstu formi).


    Listi I.A:


    Úrgangur sem hefur einhvern af eiginleikunum í III. viðauka og er:
    1.anatómísk efni; úrgangur frá sjúkrahúsum;
    2.lækningavörur, lyf og dýralækningaefni;
    3.viðarvarnarefni;
    4.sæfiefni og varnarefni,
    5.leifar efna sem eru notuð sem leysar;
    6.halógeneruð lífræn efni sem eru ekki notuð sem leysar, að undanskildum hvarfgjörnum fjölliðuefnum;
    7.vökvar til yfirborðsmeðferðar sem innihalda sýaníð;
    8.jarðolíur og efni sem innihalda olíu (t.d. sögunarolía);
    9.olíu/vatns- eða kolvatnsefna/vatnsblöndur, fleyti;
    10.efni sem innihalda PCB og/eða PCT (t.d. rafeinangrandi efni);
    11.tjöruborin efni úr hreinsun, eimingu eða hitasundrun (t.d. botnfall úr eimingu);
    12.blek, litarefni, dreifulitir, málning, lökk, fernis;
    13.trjákvoða, latex, plastmýkingarefni, lím;
    14.óþekkt og/eða ný efni úr rannsóknum, þróun eða kennslustarfi og sem ekki er vitað hvaða áhrif hafa á menn og/eða umhverfi (t.d. rannsóknarstofuúrgangur);
    15.flugeldar og annað sprengiefni;
    16.ljósmyndunar- og framköllunarefni;
    17.efni sem er mengað með einhvers konar fjölklóruðu díbensófúrani;
    18.efni sem er mengað með einhvers konar fjölklóruðu díbensó-p-díoxíni.


    Listi I.B:


    Úrgangur sem inniheldur eitthvert efnanna í VIII. viðauka og hefur einhvern af eiginleikunum í III. viðauka og er:
    19.dýra- eða jurtasápur, -feiti, -vax;
    20.óhalógeneruð lífræn efni sem eru ekki notuð sem leysar;
    21.ólífræn efni, án málma eða málmsambanda;
    22.aska og/eða gjall;
    23.mold, sandur, leir, þar á meðal dýpkunargröftur;
    24.vökvar til yfirborðsmeðferðar sem innihalda ekki sýaníð;
    25.málmryk, duft;
    26.notaðir hvatar;
    27.vökvar eða eðja sem inniheldur málma eða málmsambönd;
    28.úrgangur úr mengunarvarnarmeðferð (t.d. ryk frá loftsíum), að undanskildum 29., 30. og 33. lið;
    29.þvottaskólp;
    30.eðja frá vatnshreinsistöðvum;
    31.leifar úr afkolsýringu;
    32.leifar frá jónaskiptisúlu;
    33.seyra, ómeðhöndluð og óhæf til notkunar í landbúnaði;
    34.leifar frá hreinsun geyma og/eða búnaðar;
    35.óhreinn búnaður;
    36.óhrein ílát (t.d. pakkningar, gaskútar o.s.frv.) sem í hefur verið eitt eða fleiri af efnunum í VIII. viðauka;
    37.rafgeymar og rafhlöður;
    38.jurtaolíur;
    39.efni sem er ættað úr flokkuðu heimilissorpi og hefur einhvern af eiginleikunum í III. viðauka;
    40.annar úrgangur sem í eru efni tilgreind í VIII. viðauka og sem hefur einhvern af eiginleikunum í III. viðauka.




    Fylgiskjal 2.
    VIII. VIÐAUKI


    Efni sem gera úrgang tilgreindan í lista I.B í VII. viðauka hættulegan þegar hann hefur eiginleikana sem lýst er í III. viðauka:
    Úrgangur sem inniheldur:
    C1beryllíum, beryllíumsambönd;
    C2vanadíumsambönd;
    C3króm-6-sambönd;
    C4kóbolt-sambönd;
    C5nikkelsambönd;
    C6koparsambönd;
    C7sinksambönd;
    C8arsen, arsensambönd;
    C9selen, selensambönd;
    C10silfursambönd;
    C11kadmíum, kadmíumsambönd;
    C12tin-sambönd;
    C13antímon, antímonsambönd;
    C14tellúr, tellúrsambönd;
    C15baríumsambönd; nema baríumsúlfat;
    C16kvikasilfur, kvikasilfurssambönd;
    C17þallíum, þallíumsambönd;
    C18blý, blýsambönd;
    C19ólífræn súlfíð;
    C20ólífræn flúorsambönd, nema kalsíumflúoríð;
    C21ólífræn sýaníð;
    C22eftirfarandi alkalí- eða jarðalkalímálmar: litíum, natríum, kalíum, kalsíum, magníum í ósamsettu formi;
    C23súrar lausnir eða sýrur í föstu formi;
    C24basískar lausnir eða basar í föstu formi;
    C25asbest (ryk og trefjar);
    C26fosfór: fosfór-sambönd, nema málmfosföt;
    C27málmkarbónýl;
    C28peroxíð;
    C29klóröt;
    C30perklóröt;
    C31asíð;
    C32PCB og/eða PCT;
    C33efnasambönd til lækninga- eða dýralækninga;
    C34sæfiefni og varnarefni;
    C35smitandi efni;
    C36kreósót;
    C37ísósýanöt, þíósýanöt;
    C38lífræn sýaníð (t.d. nítríl) o.s.frv.;
    C39fenól, fenólsambönd;
    C40halógeneraðir leysar;
    C41lífrænir óhalógeneraðir leysar;
    C42lífræn halógensambönd, nema óhvarfgjörn fjölliðuefni og önnur efni sem eru nefnd í þessum viðauka;
    C43arómatísk sambönd; fjölhringa og heteróhringliða lífræn sambönd;
    C44alífatísk amín;
    C45arómatísk amín;
    C46eterar;
    C47sprengiefni, nema sprengiefni nefnt annars staðar í viðaukanum;
    C48lífræn brennisteinssambönd;
    C49allar gerðir fjölklóraðs díbensófúrans;
    C50allar gerðir fjölklóraðs díbensó-p-díoxíns;
    C51vetniskolefni og súrefni þeirra; köfnunarefnis- og/eða brennisteinssambönd, ótiltekin annars staðar í þessum viðauka.

    nr_428_2003.doc
Stofnreglugerð:
184/2002 - Reglugerð um skrá yfir spilliefni og annan úrgang.

 
Stjórnartíðindi - Sölvhólsgötu 7 - 150 Reykjavík Sími 545 9000
Bréfasími 552 7340 - Netfang: reglugerdir@irr.is
Prentvænt