Fara beint í efnið
Fyrri útgáfa

Prentað þann 19. apríl 2024

Reglugerð með breytingum síðast breytt 2. okt. 2020

421/2011

Reglugerð um gildistöku reglugerðar framkvæmdastjórnarinnar (EB) nr. 641/2009.

1. gr.

Eftirfarandi reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (EB), sem vísað er til á eftir lið 30 í IV. viðauka við samninginn um Evrópska efnahagssvæðið, eins og honum var breytt með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 1/2011, frá 11. febrúar 2011, um breytingu á II. viðauka (Tæknilegar reglugerðir, staðlar, prófanir og vottun) og IV. viðauka (Orka) við EES-samninginn, skal öðlast gildi hér á landi með þeim breytingum og viðbótum sem leiðir af IV. kafla II. viðauka og IV. viðauka samningsins, bókun 1 um altæka aðlögun og öðrum ákvæðum samningsins:

Reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (EB) nr. 641 frá 22. júlí 2009 um framkvæmd tilskipunar Evrópuþingsins og ráðsins 2005/32/EB að því er varðar kröfur varðandi visthönnun á sjálfstæðum hringrásardælum án ásþéttis og hringrásardælum án ásþéttis sem eru felldar inn í vörur.

Eftirfarandi reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (EB), sem vísað er til í 37. tölul. IV. viðauka við samninginn um Evrópska efnahagssvæðið, eins og honum var breytt með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 79/2013, frá 3. maí 2013, um breytingu á II. viðauka (Tæknilegar reglugerðir, staðlar, prófanir og vottun) og IV. viðauka (Orka) við EES-samninginn, skal öðlast gildi hér á landi með þeim breytingum og viðbótum sem leiðir af IV. kafla II. viðauka og IV. viðauka samningsins, bókun 1 um altæka aðlögun og öðrum ákvæðum samningsins:

Reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) nr. 622/2012 frá 11. júlí 2012 um breytingu á reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (EB) nr. 641/2009 að því er varðar kröfur varðandi visthönnun á sjálfstæðum hringrásardælum án ásþéttis og hringrásardælum án ásþéttis sem eru felldar inn í vörur.

Eftirfarandi reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB), sem vísað er til á eftir liðum 6a, 6b, 6c, 6d, 6e, 6f, 6h, 6i, 6j, 6k, 6l, 6m, 6n, 6o, 6p, 6q, 8, 9, 12, 13, 14, 15 og 16 í kafla IV í II. viðauka og eftir liðum 26b, 26c, 26d, 26e, 26f, 26g, 26i, 26j, 26k, 26l, 26m, 26n, 26o, 26p, 26q, 26r, 31, 32, 35, 36, 37, 38 og 39 í IV. viðauka við samninginn um Evrópska efnahagssvæðið, eins og honum var breytt með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 198/2017, frá 27. október 2017, um breytingu á II. viðauka (Tæknilegar reglugerðir, staðlar, prófanir og vottun) og IV. viðauka (Orka) við EES-samninginn, skal öðlast gildi hér á landi með þeim breytingum og viðbótum sem leiðir af IV. kafla II. viðauka og IV. viðauka samningsins, bókun 1 um altæka aðlögun og öðrum ákvæðum samningsins:

Reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2016/2282 frá 30. nóvember 2016 um breytingu á reglugerðum framkvæmdastjórnarinnar (EB) nr. 1275/2008, (EB) nr. 107/2009, (EB) nr. 278/2009, (EB) nr. 640/2009, (EB) nr. 641/2009, (EB) nr. 642/2009, (EB) nr. 643/2009, (ESB) nr. 1015/2010, (ESB) nr. 1016/2010, (ESB) nr. 327/2011, (ESB) nr. 206/2012, (ESB) nr. 547/2012, (ESB) nr. 932/2012, (ESB) nr. 617/2013, (ESB) nr. 666/2013, (ESB) nr. 813/2013, (ESB) nr. 814/2013, (ESB) nr. 66/2014, (ESB) nr. 548/2014, (ESB) nr. 1253/2014, (ESB) 2015/1095, (ESB) 2015/1185, (ESB) 2015/1188, (ESB) 2015/1189 og (ESB) 2016/2281 að því er varðar beitingu vikmarka í sannprófunaraðferðum.

Eftirtalin reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB), sem vísað er til á eftir lið 6s og 14 í kafla IV í II. viðauka og á eftir lið 26t og 37 í IV. viðauka við samninginn um Evrópska efnahagssvæðið, eins og honum var breytt með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 62/2020, frá 30. apríl 2020, um breytingu á II. viðauka (Tæknilegar reglugerðir, staðlar, prófanir og vottun) og IV. viðauka (Orka) við EES-samninginn, skal öðlast gildi hér á landi með þeim breytingum og viðbótum sem leiðir af IV. kafla II. viðauka samningsins, bókun 1 um altæka aðlögun og öðrum ákvæðum samningsins:

Reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2019/1781, frá 1. október 2019, um kröfur varðandi visthönnun á rafmagnshreyflum og snúningshraðastýringum samkvæmt tilskipun Evrópuþingsins og ráðsins 2009/125/EB, um breytingu á reglugerð (EB) nr. 641/2009 að því er varðar kröfur varðandi visthönnun á sjálfstæðum hringrásardælum án ásþéttis og hringrásardælum án ásþéttis sem eru felldar inn í vörur og um niðurfellingu á reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (EB) nr. 640/2009.

2. gr.

Reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (EB) nr. 641/2009 er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 20/2011, 7. apríl 2011, bls. 193.

Ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 1/2011 er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins, nr. 19/2011, 7. apríl 2011, bls. 1.

Reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) nr. 622/2012 er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 28/2013, 16. maí 2013, bls. 294.

Reglugerð framkvæmdastjórnarinnar 2016/2282 er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 74/2017, 16. nóvember 2017, bls. 80.

Reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2019/1781 er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 62/2020, 24. september 2020, bls. 207.

3. gr.

Reglugerð þessi, sem sett er með stoð í 13. gr. laga nr. 42/2009, um visthönnun vöru sem notar orku, öðlast þegar gildi.

Fyrirvari

Reglugerðir eru birtar í B-deild Stjórnartíðinda skv. 3. gr. laga um Stjórnartíðindi og Lögbirtingablað, nr. 15/2005, sbr. reglugerð um útgáfu Stjórnartíðinda nr. 958/2005.

Sé misræmi milli þess texta sem birtist hér í safninu og þess sem birtur er í útgáfu B-deildar Stjórnartíðinda skal sá síðarnefndi ráða.