Stjórnarráðið  |  Ríkisstjórn  |  Réttarheimildir  |  Alþingi  |
 
Stjórnarráð Íslands    
  Forsíða  
 

  Reglugerðir

með breytingum
eftir ráðuneytum
eftir ártali
eftir köflum í safninu
brottfallnar
Leit
 

420/2009

REGLUGERÐ
um gildistöku reglugerða Evrópusambandsins um almannatryggingar
(lífeyristryggingar, atvinnuleysistryggingar og greiðslur í fæðingarorlofi) (XIII).

1. gr.
Reglugerðir Evrópuþingsins og ráðsins (EB) nr. 647/2005 frá 13. apríl 2005 og nr. 629/2006 frá 5. apríl 2006 um breytingu á reglugerð ráðsins (EBE) nr. 1408/71 um beitingu almannatryggingareglna gagnvart launþegum, sjálfstætt starfandi einstaklingum og aðstandendum þeirra sem flytjast á milli aðildarríkja og reglugerð ráðsins (EBE) nr. 574/72 sem kveður á um framkvæmd reglugerðar (EBE) nr. 1408/71 skulu öðlast gildi hér á landi að því leyti sem ákvæði þeirra lúta að lífeyristryggingum, atvinnuleysistryggingum og greiðslum í fæðingarorlofi, sbr. ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 102/2008 frá 26. september 2008 um breytingu á VI. viðauka (félagslegt öryggi) við EES-samninginn. Reglugerðirnar skulu gilda á Íslandi með þeirri aðlögun sem fram kemur í ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar.

Reglugerðir (EB) nr. 647/2005 og nr. 629/2006 fjalla að hluta til um sjúkratryggingar, slysatryggingar, barnabætur og réttindi úr lífeyrissjóðum. Í reglugerð frá heilbrigðisráðuneytinu er mælt fyrir um gildistöku þess hluta sem fjallar um sjúkra- og slysatryggingar. Í reglugerð frá fjármálaráðuneytinu er mælt fyrir um gildistöku þess hluta sem fjallar um barnabætur og réttindi úr lífeyrissjóðum.


2. gr.
Reglugerðir Evrópuþingsins og ráðsins (EB) nr. 647/2005 og 629/2006 og ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 102/2008 sem birt er í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi EB, nr. 70, 20. nóvember 2008, bls. 16, eru birtar sem fylgiskjal með reglugerð þessari.


3. gr.
Reglugerð þessi, sem sett er með stoð í 70. gr. laga um almannatryggingar, nr. 100/2007, með síðari breytingum, 6. mgr. 42. gr. og 64. gr. laga um atvinnuleysistryggingar, nr. 54/2006, að fenginni umsögn stjórnar Atvinnuleysistryggingasjóðs, og 35. gr. laga um fæðingar- og foreldraorlof, nr. 95/2000, með síðari breytingum, öðlast þegar gildi.


Félags- og tryggingamálaráðuneytinu, 15. apríl 2009.

Ásta R. Jóhannesdóttir.
Ágúst Þór Sigurðsson.

B_nr_420_2009_an_fylgiskjals.doc

 
Stjórnartíðindi - Sölvhólsgötu 7 - 150 Reykjavík Sími 545 9000
Bréfasími 552 7340 - Netfang: reglugerdir@irr.is
Prentvænt