|
|
420/2002
REGLUGERÐ
um breytingu á skipulagsreglugerð nr. 400/1998, með síðari breytingum.
1. gr. Við grein 1.2. bætist ný málsgrein svohljóðandi:
Þegar sérstaklega stendur á getur ráðherra að fenginni umsögn Skipulagsstofnunar og hlutaðeigandi sveitarstjórnar veitt undanþágu frá einstökum greinum reglugerðar þessarar.
2. gr. Skilgreining á orðinu nýtingarhlutfall í grein 1.3 orðast svo:
Hlutfall milli brúttóflatarmáls bygginga og byggingarhluta í lokunarflokkum A og B sbr. ÍST 50:1998 á lóð eða reit og flatarmáls lóðar eða reits. Lóðanýting segir til um hlutfallið milli brúttóflatarmáls bygginga á lóð og flatarmáls lóðar. Reitanýting segir til um hlutfallið milli brúttóflatarmáls bygginga á landnotkunarreit eða götureit og flatarmáls reitsins.
3. gr. 8. mgr. grein 3.1.4. orðast svo:
Ef gert er ráð fyrir bílastæðum neðanjarðar í deiliskipulagi reiknast þau ekki með við útreikning nýtingarhlutfalls.
4. gr. Við 2. mgr. greinar 7.2.3. bætist nýr málsliður svohljóðandi:
Heimilt er skipulagsnefnd að stytta tímabil grenndarkynningar ef allir sem hagsmuna eiga að gæta hafa lýst skriflega yfir því með áritun á deiliskipulagsuppdrátt, áður en fjórar vikur eru liðnar, að þeir geri ekki athugasemdir við fyrirhugaða breytingu á deiliskipulagi.
5. gr. Reglugerð þessi, sem sett er samkvæmt 10. gr. skipulags- og byggingarlaga nr. 73/1997, með síðari breytingum, öðlast þegar gildi.
Umhverfisráðuneytinu, 3. júní 2002.
F. h. r.
Ingimar Sigurðsson. Sigrún Ágústsdóttir.
Stofnreglugerð: 400/1998 - Skipulagsreglugerð.
|