Sjávarútvegsráðuneyti

409/2001

Reglugerð um bann við línuveiðum á Fljótagrunni. - Brottfallin

409/2001

REGLUGERÐ
um bann við línuveiðum á Fljótagrunni.

1. gr.

Allar línuveiðar eru bannaðar á svæði sem markast af línum sem dregnar eru milli eftirgreindra punkta:

1. 66° 2100 N – 19° 2147 V
2. 66° 2100 N – 19° 0999 V
3. 66° 2003 N – 18° 5994 V
4. 66° 1196 N – 18° 5994 V
5. 66° 1247 N – 19° 2916 V


2. gr.

Með mál sem kunna að rísa út af brotum á reglugerð þessari skal farið að hætti opinberra mála og varða brot viðurlögum samkvæmt ákvæðum laga nr. 79, 26. maí 1997, um veiðar í fiskveiðilandhelgi Íslands.


3. gr.

Reglugerð þessi er sett samkvæmt ákvæðum laga nr. 79, 26. maí 1997, um veiðar í fiskveiðilandhelgi Íslands til þess að öðlast gildi 2. júní 2001 og birtist til eftirbreytni öllum þeim, sem hlut eiga að máli. Jafnframt er felld úr gildi reglugerð nr. 913, 14. desember 2000, um bann við línuveiðum á Siglunesgrunni, Fljótagrunni og Haganesdjúpi.


Sjávarútvegsráðuneytinu, 30. maí 2001.

F. h. r.
Jón B. Jónasson.
Arndís Á. Steinþórsdóttir.


Þetta vefsvæði byggir á Eplica