Stjórnarráðið  |  Ríkisstjórn  |  Réttarheimildir  |  Alþingi  |
 
Stjórnarráð Íslands    
  Forsíða  
 

  Reglugerðir

með breytingum
eftir ráðuneytum
eftir ártali
eftir köflum í safninu
brottfallnar
Leit
 

396/2008

REGLUGERÐ
um breytingu á reglugerð um aðgerðir til að tryggja flugöryggi og
skrá yfir flugrekendur er ekki uppfylla viðeigandi öryggiskröfur nr. 277/2008.

1. gr.
Eftirfarandi breytingar eru gerðar á reglugerð um aðgerðir til að tryggja flugöryggi og skrá yfir flugrekendur er ekki uppfylla viðeigandi öryggiskröfur nr. 277/2008:
a)Við 3. tl. 4. gr. reglugerðarinnar bætist nýr stafliður g, sem er svohljóðandi:
Reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (EB) nr. 331/2008 frá 11. apríl 2008.
b)Fylgiskjal I með reglugerð þessari kemur í stað fylgiskjals I við reglugerðina.
c)Viðauki A og B við reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (EB) nr. 474/2006 frá 22. mars 2006 um að stofna skrá Bandalagsins yfir flugrekendur sem bannað er að stunda flugrekstur innan Bandalagsins sem um getur í II. kafla reglugerðar Evrópuþingsins og ráðsins (EB) nr. 2111/2005 í fylgiskjali IV við reglugerðina falla niður.


2. gr.
Með reglugerð þessari öðlast gildi hér á landi reglugerð framkvæmdastjórnarinnar nr. 331/2008 frá 11. apríl 2008 um breytingu á reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (EB) nr. 474/2006 frá 22. mars 2006 um að stofna skrá Bandalagsins yfir flugrekendur sem bannað er að stunda flugrekstur innan Bandalagsins sem um getur í II. kafla reglugerðar Evrópuþingsins og ráðsins (EB) nr. 2111/2005 með þeim breytingum og viðbótum sem leiðir af XIII. viðauka EES-samningsins, bókun 1, um altæka aðlögun og öðrum ákvæðum hans, sem merkt er fylgiskjal V með reglugerð þessari.


3. gr.
Reglugerð þessi er sett samkvæmt heimild í 2. mgr. 3. gr., 1. mgr. 4. gr. og 5. gr., sbr. 145. gr. laga um loftferðir nr. 60/1998 sem síðari breytingum og öðlast þegar gildi.


Samgönguráðuneytinu, 22. apríl 2008.

Kristján L. Möller.
Ragnhildur Hjaltadóttir.

B_nr_396_2008_an_fylgiskjals.doc

Stofnreglugerð:
277/2008 - Reglugerð um aðgerðir til að tryggja flugöryggi og skrá yfir flugrekendur er ekki uppfylla viðeigandi öryggiskröfur.

 
Stjórnartíðindi - Sölvhólsgötu 7 - 150 Reykjavík Sími 545 9000
Bréfasími 552 7340 - Netfang: reglugerdir@irr.is
Prentvænt