Hoppa beint í aðalvalmynd
Stjórnarráðið  |  Ríkisstjórn  |  Réttarheimildir  |  Alþingi  |
 
Stjórnarráð Íslands    
  Forsíða  
 

  Reglugerðir

með breytingum
eftir ráðuneytum
eftir ártali
eftir köflum í safninu
brottfallnar
Leit
 

393/1999
REGLUGERÐ

REGLUGERÐ

um breytingu á reglugerð nr. 189/1990 um innflutning

og útflutning á plöntum og plöntuafurðum.

1. gr.

F-liður 4. gr. reglugerðarinnar orðist svo:

f.        Jarðveg, safnhaugamold, óunninn eða kurlaðan trjábörk og húsdýraáburð. Undanskilin er þó mold, sem að

meginhluta samanstendur af mosa (Sphagnum), enda sé hún tekin frá óræktuðum svæðum og hafi aldrei verið notuð til ræktunar. Þá er undanskilin mold, sem fylgir rótum plantna eða rótarávöxtum, enda sé hún í óverulegum mæli. Frá löndum þar sem nýsjálenski flatormurinn (Artioposthia triangulata) er útbreiddur skulu plöntur og plöntuafurðir vera alveg lausar við mold nema sérstök yfirlýsing sé um það á heilbrigðisvottorði að plönturnar séu frá ræktunarstað þar sem flatormurinn finnst ekki.

2. gr.

Reglugerð þessi er sett samkvæmt heimild í lögum nr. 51/1981 um varnir gegn sjúkdómum og meindýrum á plöntum og í samræmi við tilskipun nr. 83/189/EBE um reglur um tilhögun upplýsingaskipta vegna tæknilegra staðla og reglugerða og öðlast gildi þegar í stað. Jafnframt er úr gildi felld reglugerð nr. 123/1995.

Landbúnaðarráðuneytinu, 1. júní 1999.

Guðni Ágústsson.

Hjördís Halldórsdóttir.

 

Word útgáfa af reglugerð
- 393-1999.doc

Stofnreglugerð:
189/1990 - Reglugerð um innflutning og útflutning á plöntum og plöntuafurðum

 
Stjórnartíðindi - Sölvhólsgötu 7 - 150 Reykjavík Sími 545 9000
Bréfasími 552 7340 - Netfang: reglugerdir@irr.is
Prentvænt