Reglugerð um ölkelduvatn
I. KAFLI - Gildissvið og skilgreiningar.
1. gr.
Reglugerð þessi gildir um ölkelduvatn
(mineral water). Ákvæði hennar ná þó ekki til ölkelduvatns sem er ætlað til útflutnings
til ríkja utan Evrópska efnahagssvæðisins og vatns sem er skilgreint sem lyf
samkvæmt tilskipun Evrópusambandsins nr. 65/65/EBE. Ölkelduvatn og eftirlit með
því skal jafnframt uppfylla ákvæði reglugerðar nr. 522/1994 um matvælaeftirlit
og hollustuhætti við framleiðslu og dreifingu matvæla.
2. gr.
Með ölkelduvatni er í reglugerð þessari átt
við vatn sem á upptök sín neðanjarðar og kemur frá einni eða fleiri
náttúrulegum uppsprettum eða borholum. Vatn þetta er einkum frábrugðið öðru
neysluvatni að því leyti að upprunalegt ástand þess og eðli hefur varðveist
sökum þess að vatnið á upptök sín neðanjarðar og er varið fyrir mengun.
Breyting á rennslishraða (flæði) vatnsins skal ekki hafa áhrif á samsetningu
þess, sem skal vera stöðug hvað varðar einkennandi þætti eins og innihald
steinefna, snefilefna og annarra efnisþátta.
II. KAFLI - Skilyrði fyrir hagnýtingu.
3. gr.
Hver sá er hyggst hagnýta ölkelduvatn til
dreifingar þarf til þess leyfi viðkomandi heilbrigðisnefndar, að undangenginni
staðfestingu Hollustuverndar ríkisins, vegna þeirra skilyrða sem fram koma í
þessum kafla reglugerðarinnar. Heilbrigðisnefnd skal auglýsa veitt leyfi í
Lögbirtingablaðinu og Hollustuvernd sér síðan um að koma nauðsynlegum gögnum
til umhverfisráðuneytis sem kemur þeim til birtingar í stjórnartíðindum ESB.
Leyfi samkvæmt 1. mgr. gildir mest í tvö ár og ef það er
endurnýjað áður en sá tími er liðinn er ekki nauðsynlegt að leggja fram að nýju
öll gögn sem krafa er gerð um í þessum kafla. Eftirlitsaðili skal hafa fullan aðgang
að gögnum úr innra eftirliti leyfishafa til að fylgjast með stöðugleika og
gæðum vatnsins.
4. gr.
Hagnýting á ölkelduvatni er eingöngu heimil
ef eftirfarandi skilyrði eru uppfyllt af hálfu umsóknaraðila og vatnið
samræmist þeim skilyrðum sem hér koma fram.
1. Fyrir mat á jarð- og vatnsfræðilegum þáttum skal leggja
fram:
- nákvæma
staðsetningu írennslissvæðis (catchment) og hæð yfir sjávarmáli, skráð á
landakort á kvarða ekki stærri en 1:1000;
- greinargerð
um jarðfræði, uppruna og eðli landsvæðisins;
- lýsingu á
vatnafræði og jarðlögum;
- lýsingu á
írennslissvæðinu og virkni þess;
- afmörkun
svæðisins eða lýsingu á öðrum aðgerðum sem vernda uppsprettuna/borholuna
gegn mengun.
2. Kanna skal eftirfarandi eðlis- og efnafræðilega þætti:
- rennslishraða
vatnsins;
- hitastig
vatnsins við upptöku og hitastig umhverfisins;
- sambandið
milli eðlis landsvæðisins og eðlis og gerðar vatnsins;
- leifar
þurrefnis við 180C og 260C;
- rafleiðni
eða viðnám (tilgreina skal hitastig);
- sýrustig (pH);
- styrk
anjóna og katjóna;
- styrk
ójónaðra efna;
- styrk
snefilefna;
- þar sem
við á, styrk ísótópa súrefnis (O16-O18) og vetnis (H1-H3) í vatninu.
3. Örverufræðilegir þættir sem ekki skulu finnast við
rannsókn á vatninu:
- sníkjudýr
og sýklar;
- Escherichia
coli og aðrir kólígerlar í 250 ml;
- saurkokkar
í 250 ml;
- grómyndandi
loftfælnar súlfítafoxandi örverur í 50 ml;
- Pseudomonas
aeruginosa í 250 ml.
5. gr.
Óheimilt er að sótthreinsa vatnið eða
meðhöndla það á annan hátt sem gæti haft áhrif á líftölu þess, að undanskildum
ákvæðum 6. gr. Líftala örvera, þ.e. fjöldi kóloníumyndandi eininga, í vatninu á
upptökustað, skal vera í samræmi við eðlilega líftölu vatnsins og vera næg
sönnun þess að upptökin séu varin gegn allri mengun. Líftala skal ákvarðast með
ræktun við 20-22C í 72 klst. og við 37C +/- 1C í 48 klst.
Á upptökustað skal miðað við að líftalan fari ekki yfir 20
í ml eftir 72 klst. við 20-22C og 5 í ml eftir 48 klst. við 37C. Eftir átöppun
er óheimilt að þessi gildi fari yfir 100 í ml eftir 72 klst. ræktun við 20-22C
og 20 í ml eftir 48 klst. ræktun við 37C +/- 1C. Líftalan skal mæld innan 12
klst. frá átöppun og skal halda vatninu við 4C +/- 1C á þessu 12 klst.
tímabili. Við upptök og í neytendaumbúðum skal vatnið jafnframt uppfylla
skilyrði 3. tölul. 4. gr.
6. gr.
Ölkelduvatn, í upprunalegu ástandi, er
óheimilt að meðhöndla nema á eftirfarandi hátt:
- Með síun
eða fellingu til að fjarlægja óstöðug efni þess svo sem járn og
brennisteinssambönd, mögulega að undangenginni súrefnisbindingu. Meðferðin
má ekki hafa áhrif á samsetningu vatnsins hvað varðar þau undirstöðuefni
sem gefa því séreiginleika.
- Með
eðlisfræðilegum aðferðum til eyðingar óbundins koltvísýrings, algjörlega
eða að hluta.
- Með því að
bæta koltvísýringi í vatnið, ef það er gert í samræmi við skilgreiningar á
freyðandi ölkelduvatni í 9. gr.
Ákvæði þessarar greinar koma ekki í veg fyrir notkun
ölkelduvatns við framleiðslu svaladrykkja.
7. gr.
Hollustuvernd ríkisins gefur út
leiðbeiningar um hagnýtingu og markaðssetningu ölkelduvatns og þau skilyrði sem
slíkt vatn þarf að uppfylla, svo sem kröfur um efnarannsóknir og stöðugleika í
efnasamsetningu.
III. KAFLI - Umbúðir og merking.
8. gr.
Umbúðir átappaðs ölkelduvatns skulu vera
þannig gerðar að þær komi í veg fyrir að vatnið spillist með einhverjum hætti.
9. gr.
Heiti eða nánari vörulýsing átappaðs
ölkelduvatns skal vera "ölkelduvatn". Heiti eða vörulýsing freyðandi
ölkelduvatns skal vera: "náttúrulega kolsýrt ölkelduvatn",
"ölkelduvatn bætt kolsýru frá upptökustað" eða "kolsýrt
ölkelduvatn", sbr. eftirfarandi skilgreiningar:
- "Náttúrulega
kolsýrt ölkelduvatn" merkir ölkelduvatn sem inniheldur sama
koltvísýringsmagn við átöppun og það gerði við upptök að undangenginni
fellingu ef við á. Með fyrirvara um leyfileg tæknileg viðmiðunarmörk, er
heimilt að bæta í vatnið jafnmiklum koltvísýringi frá upptökustað og þeim
sem tapaðist við vinnslu.
- "Ölkelduvatn
bætt kolsýru frá upptökustað" merkir ölkelduvatn sem við átöppun
inniheldur koltvísýring sem fenginn er frá upptökustað vatnsins.
- "Kolsýrt
ölkelduvatn" merkir ölkelduvatn bætt koltvísýringi sem ekki er
fenginn frá upptökustað.
Hafi vatnið verið meðhöndlað eins og um getur í 2. tl. 6.
gr. skal bæta við heitið eða vörulýsinguna: "afkolsýrt" eða
"afkolsýrt að hluta".
10. gr.
Auk þess að uppfylla ákvæði reglugerðar nr.
588/1993 um merkingu, auglýsingu og kynningu matvæla skulu eftirfarandi
upplýsingar koma fram:
- Annað
hvort orðin "samsetning í samræmi við niðurstöður viðurkenndrar greiningar
frá: (dagsetning greiningar)", eða lýsing á samsetningu vörunnar með
upplýsingum um einkennandi efnisþætti.
- Heiti
svæðis þar sem vatnið er tekið og heiti upptökustaðar. Heiti svæðis getur
verið hluti af heiti vörunnar eða nánari vörulýsingu, sbr. 9. gr., ef
þetta er ekki á nokkurn hátt villandi um uppruna vörunnar.
Heimilt er að sérmerkja umbúðir ölkelduvatns með þeim
upplýsingum sem fram koma í viðauka, þegar tryggt er að viðeigandi skilyrðum um
þær er fullnægt.
11. gr.
Þegar uppspretta eða borhola er nýtt til
hagnýtingar og markaðssetningar á ölkelduvatni er óheimilt að nota fleiri en
eina vörulýsingu fyrir vatn úr þeirri uppsprettu eða borholu. Með vörulýsingu
er átt við ákvæði þessa kafla reglugerðarinnar um merkingar.
IV. KAFLI - Eftirlit.
12. gr.
Heilbrigðisnefndir hafa undir yfirumsjón
Hollustuverndar ríkisins, hver á sínum stað, eftirlit með því að ákvæðum
þessarar reglugerðar sé framfylgt.
13. gr.
Tryggt skal að reglubundið eftirlit sé haft
með þeim búnaði sem notaður er við hagnýtingu og markaðssetningu ölkelduvatns
og skal hann uppfylla eftirfarandi skilyrði:
- Búnaður
sem notaður er verður að vera þannig að hann spilli ekki vatninu og tryggi
að eiginleikar þess við upptöku varðveitist.
- Vernda
skal uppsprettuna/borholuna gegn mengun.
- Leiðslur,
geymar og annar búnaður verður að vera úr efni sem hæfir vatninu og er
þannig hannaður að komið verði í veg fyrir efna-, eðlis- og
örverufræðilegar breytingar á vatninu.
- Aðstæður
við vinnslu, sérstaklega þvotta- og átöppunarhúsnæði, skulu samrýmast
almennum kröfum um hollustuhætti. Sérstaklega verður að gæta þess að ílát
og umbúðir séu þannig gerð og meðhöndluð að örveru- og efnafræðilegir
eiginleikar vatnsins breytist ekki.
- Bannað er
að flytja ölkelduvatn í öðrum ílátum en þeim sem ætluð eru til dreifingar
til neytenda.
14. gr.
Komi í ljós mengun ölkelduvatns við vinnslu
eða að vatnið uppfyllir ekki lengur ákvæði 5. gr., skal stöðva átöppun þegar í
stað og ekki hefja hana að nýju fyrr en mengunin er upprætt og/eða sýnt þykir
að vatnið uppfyllir örverufræðileg skilyrði samkvæmt 4. og 5. gr. Sömu
starfsaðferðir skulu viðhafðar ef gallar koma fram við skynmat.
V. KAFLI - Ýmis ákvæði og gildistaka.
15. gr.
Með brot gegn reglugerð þessari skal farið
samkvæmt lögum nr. 93/1995 um matvæli, sbr. og lög nr. 81/1988 um hollustuhætti
og heilbrigðiseftirlit, með síðari breytingum, nema þyngri refsing liggi við
samkvæmt öðrum lögum.
Með mál sem rísa út af brotum gegn reglugerð þessari skal
farið að hætti opinberra mála.
16. gr.
Reglugerð þessi er sett með stoð í lögum
nr. 93/1995 um matvæli og lögum nr. 81/1988 um hollustuhætti og
heilbrigðiseftirlit, með síðari breytingum og öðlast gildi við birtingu. Einnig
var höfð hliðsjón af ákvæðum samningsins um Evrópskt efnahagssvæði, sem vísað
er til í II. viðauka XII. kafla, 26. tölul., tilskipun 80/777/EBE um samræmingu
laga aðildarríkjanna varðandi hagnýtingu og markaðssetningu ölkelduvatns, og
þeim breytingum og viðbótum sem leiða af II. viðauka, bókun 1 við samninginn og
öðrum ákvæðum hans.
Umhverfisráðuneytið, 6. júlí 1995.
Guðmundur Bjarnason.
Ingimar Sigurðsson.
Viðauki:
Sjá B-deild Stjórnartíðinda.
Word útgáfa af reglugerð