REGLUGERÐ
um
sérfræðiþjónustu skóla.
I. KAFLI
Skyldur sveitarfélaga og skilgreining sérfræðiþjónustu.
1. gr.
Öllum sveitarfélögum, sem standa
að rekstri grunnskóla, er skylt að sjá skólunum fyrir sérfræðiþjónustu, bæði
almennri og greinabundinni kennsluráðgjöf, er taki til þeirra námsgreina sem
tilgreindar eru í 30. gr. grunnskólalaga og sálfræðiþjónustu. Sveitarstjórn
skipuleggur sérfræðiþjónustu skóla og ræður starfsmenn til að sinna henni.
2. gr.
Þar sem sérfræðiþjónusta skóla er
ekki rekin á vegum sveitarfélaga er sveitarstjórn skylt að semja um þjónustu
við önnur sveitarfélög, stofnanir, svo sem kennaramenntunarstofnanir, eða aðra
aðila er veita þjónustu á þessu sviði.
Þegar um slík þjónustukaup er að ræða
skal sveitarstjórn fylgjast með því að sérfræðiþjónusta uppfylli fyrirmæli laga
og reglugerða.
3. gr.
Sérfræðiþjónustu skóla er ætlað að
stuðla að því að kennslufræðileg og sálfræðileg þekking nýtist sem best í
skólastarfi. Störf sérfræðiþjónustu skóla skulu því fyrst og fremst beinast að
því að efla grunnskólana sem faglegar stofnanir sem geti leyst flest þau
viðfangsefni sem upp koma í skólastarfi og veita starfsmönnum skóla
leiðbeiningar og aðstoð við störf sín eftir því sem við á.
Kennurum og skólastjórnendum skal
standa til boða ráðgjöf og stuðningur sérfræðiþjónustu vegna skólastarfs.
Þjónustan felst m.a. í faglegri ráðgjöf vegna almennrar kennslu einstakra
námsgreina og aðstoð og leiðbeiningum við kennara vegna sérkennslu.
Einnig skal sérfræðiþjónusta skóla
veita grunnskólum aðstoð og leiðbeiningar vegna nýbreytni- og þróunarstarfa.
Sérfræðiþjónusta skóla skal gefa
forráðamönnum kost á leiðbeiningum um uppeldi nemenda eftir því sem aðstæður
leyfa.
II. KAFLI
Starfshættir sérfræðiþjónustu skóla.
4. gr.
Starfsmenn sérfræðiþjónustu skóla
vinna störf sín samkvæmt því skipulagi sem sveitarstjórn ákveður í samræmi við
42. og 43. gr. laga nr. 66/1995 um grunnskóla. Starfsmenn sérfræðiþjónustu
skulu vinna að forvarnarstarfi í samvinnu við starfsmenn skóla m.a. með
kennslufræðilegum og sálfræðilegum athugunum og greiningu á nemendum sem eiga í
erfiðleikum sem hafa áhrif á nám þeirra. Forráðamenn nemenda geta komið með ósk
um slíka athugun. Starfsmenn skóla og heilsugæslu geta lagt fram ósk um athugun
að fengnu samþykki forráðamanna. Að athugun lokinni gera starfsmenn
sérfræðiþjónustu tillögur um viðeigandi meðferð og úrbætur.
5. gr.
Allar athuganir og rannsóknir sem
varða einstaka nemendur skulu gerðar í samráði við og með samþykki
forráðamanna.
6. gr.
Foreldrum og/eða forsjármönnum er
heimilt að kynna sér gögn í vörslu sérfræðiþjónustu skóla með persónulegum
upplýsingum varðandi börn þeirra að viðstöddum sérfræðingi viðkomandi
starfsstéttar. Með allar slíkar upplýsingar skal farið sem trúnaðarmál.
III. KAFLI
Stjórnun og skipulag.
7. gr.
Sveitarfélag, sem stendur að
rekstri grunnskóla og hefur falið sérstakri stofnun á sínum vegum, eða í
samvinnu við önnur sveitarfélög, að hafa umsjón með kennslu og skólahaldi fyrir
hönd viðkomandi sveitarfélags/sveitarfélaga, getur jafnframt falið henni að
annast sérfræðiþjónustu skóla á viðkomandi svæði.
IV. KAFLI
Sérfræðingar.
8. gr.
Sérmenntaðir starfsmenn
sérfræðiþjónustu skóla skulu vera kennarar með framhaldsmenntun, sálfræðingar
og aðrir sérfræðingar á sviði kennslu-, uppeldis- eða félagsmála. Umfang
sérfræðiþjónustu skal miða við fjölda nemenda í viðkomandi sveitarfélagi, eða
sveitarfélögum, sbr. 2. mgr. 11. gr. laga nr. 66/1995 um grunnskóla ef um
samrekstur er að ræða.
Lágmark sérfræðivinnu á
kennsluviku skal að jafnaði miðast við samtölu eftirfarandi tveggja liða:
1. Á fyrstu 2000 nemendur reiknast 0,0625 klukkustundir á
hvern nemanda.
2. Ef nemendur eru fleiri en 2000 reiknast að auki 0,05
klukkustundir á hvern nemanda sem er umfram 2000.
Í þeim tilvikum þar sem
sveitarfélög reka sérfræðiþjónustu sameiginlega skal miða við samanlagðan
nemendafjölda í viðkomandi sveitarfélögum.
V. KAFLI
Annað.
9. gr.
Sveitarfélögum er skylt að gera
menntamálaráðuneytinu grein fyrir skipulagi sérfræðiþjónustu skóla í sveitarfélaginu
innan tveggja ára frá gildistöku reglugerðar þessarar. Gera skal
menntamálaráðuneytinu grein fyrir starfsemi sérfræðiþjónustunnar á þriggja ára
fresti þaðan í frá.
VI. KAFLI
Gildistaka.
10. gr.
Reglugerð þessi er sett samkvæmt
heimild í 42. gr. laga nr. 66/1995 um grunnskóla og öðlast gildi frá og með 1.
ágúst 1996.
Menntamálaráðuneytinu, 26. júní 1996.
Björn Bjarnason.
Guðríður
Sigurðardóttir.
Word útgáfa af reglugerð