Stjórnarráðið  |  Ríkisstjórn  |  Réttarheimildir  |  Alþingi  |
 
Stjórnarráð Íslands    
  Forsíða  
 

  Reglugerðir

með breytingum
eftir ráðuneytum
eftir ártali
eftir köflum í safninu
brottfallnar
Leit
 

378/2008

REGLUGERÐ
um breytingu á reglugerð um húsaleigubætur, nr. 118/2003.

1. gr.
1. og 2. mgr. 2. gr. verða svohljóðandi:
Grunnfjárhæðir húsaleigubóta skal ákvarða þannig, að grunnstofn til útreiknings húsaleigubóta á mánuði skal vera 13.500 kr. fyrir hverja íbúð. Að auki bætast við 14.000 kr. fyrir fyrsta barn, 8.500 kr. fyrir annað og 5.500 kr. fyrir þriðja. Til viðbótar koma 15% þess hluta leigufjárhæðar er liggur á milli 20.000 – 50.000 kr.

Húsaleigubætur samkvæmt grunnfjárhæðum 1. mgr. geta þó aldrei orðið hærri en sem nemur 50% af leigufjárhæð, að hámarki 46.000 kr. á mánuði.


2. gr.
Reglugerð þessi, sem sett er á grunvelli 3. mgr. 5. gr., sbr. 21. gr., laga nr. 138/1997, um húsaleigubætur, öðlast þegar gildi og gildir um útreikning húsaleigubóta frá og með 1. apríl 2008.


Félags- og tryggingamálaráðuneytinu, 7. apríl 2008.

Jóhanna Sigurðardóttir.
Ágúst Geir Ágústsson.

B_nr_378_2008.doc

Stofnreglugerð:
118/2003 - Reglugerð um húsaleigubætur.

 
Stjórnartíðindi - Sölvhólsgötu 7 - 150 Reykjavík Sími 545 9000
Bréfasími 552 7340 - Netfang: reglugerdir@irr.is
Prentvænt