|
|
375/2002
felld brott með rg. nr. 1150/2008
REGLUGERÐ
um breyting á reglugerð nr. 98/2000
um innritun nemenda í framhaldsskóla.
1. gr. 4. gr. orðist svo:
Skólameistara er heimilt að setja skilyrði í skólanámskrá til viðbótar því sem segir í 2. gr. til inngöngu á starfsnámsbrautir. Slík skilyrði skulu miðast við frammistöðu nemenda í verk- eða listgreinum í grunnskóla og/eða aðra þætti sem snerta sérsvið brautarinnar sérstaklega eða starfsþjálfun sem henni tengist.
2. gr. Ákvæði til bráðabirgða orðist svo:
Á meðan ekki eru haldin samræmd lokapróf í samfélagsgreinum miðast ákvæði 3. gr. b-liðar við skólaeinkunn við lok grunnskóla eingöngu.
3. gr. Með reglugerð þessari hefur reglugerð nr. 98/2000 um innritun nemenda í framhaldsskóla verið endurskoðuð í samræmi við 10. gr. hennar. Reglugerð þessi er sett samkvæmt 15. gr. laga nr. 80/1996 um framhaldsskóla og öðlast þegar gildi.
Menntamálaráðuneytinu, 21. maí 2002.
Tómas Ingi Olrich. Örlygur Geirsson.

Stofnreglugerð: 098/2000 - Reglugerð um innritun nemenda í framhaldsskóla.
|