|
|
374/2001
REGLUGERÐ
um eftirlitsnefnd með fjármálum sveitarfélaga.
I. KAFLI
Almenn ákvæði.
1. gr. Félagsmálaráðherra skipar þriggja manna eftirlitsnefnd með fjármálum sveitarfélaga. Einn fulltrúi er skipaður samkvæmt tilnefningu Sambands íslenskra sveitarfélaga og tveir án tilnefningar og skal annar þeirra vera löggiltur endurskoðandi. Þrír varamenn skulu skipaðir með sama hætti. Ráðherra skipar formann nefndarinnar.
Félagsmálaráðuneytið leggur eftirlitsnefndinni til sérstakan starfsmann sem undirbýr fundi hennar og útvegar og vinnur ýmsar nauðsynlegar upplýsingar fyrir störf nefndarinnar.
2. gr. Hlutverk eftirlitsnefndarinnar er að fylgjast með fjármálum sveitarfélaga og gera nauðsynlegar athuganir á þróun þeirra, sbr. önnur ákvæði reglugerðar þessarar. Leiði athugun í ljós að fjármál sveitarfélags stefni í óefni skal nefndin aðvara viðkomandi sveitarstjórn og grípa til nauðsynlegra ráðstafana í samræmi við ákvæði reglugerðar þessarar. Samhliða skal nefndin upplýsa ráðuneytið um álit sitt.
Nefndinni er heimilt að gera samning við sveitarfélag um aðgerðir, eftirlit og eftirfylgni er leitt gæti til lausnar á fjárhagsvanda þess sem staðfestur skal af ráðherra.
Ráðherra er rétt að beina einstökum málum er varða fjármál sveitarfélaga til eftirlitsnefndar og þarfnast nauðsynlega athugunar og aðgerða í samræmi við reglugerð þessa.
3. gr. Umsýsla eftirlitsnefndarinnar er á ábyrgð félagsmálaráðuneytisins. Þóknun nefndarmanna og annar kostnaður af starfi nefndarinnar greiðist úr ríkissjóði.
4. gr.
Skilgreiningar. Málaflokkar: Verkefni sveitarfélaga og útgjaldaþættir eftir málaflokkum. Í reglugerð þessari eru fjármunatekjur og fjármagnsgjöld ekki talin með málaflokkum.
Rekstur málaflokka: Rekstrargjöld málaflokka. Gjaldfærð og eignfærð fjárfesting eru ekki hluti af rekstrargjöldum.
Framlegð: Skatttekjur sveitarfélags að frádregnum rekstri málaflokka.
Lykiltala: Hlutfallslegt gildi til að fá samanburðarhæfar upplýsingar milli sveitarfélaga, óháðar stærð eða umfangi þeirra.
Skuldaþak: Útreiknað skuldaþak sýnir hversu miklar skuldir sveitarfélagið þolir til lengri tíma miðað við greiðslugetu þess á grundvelli framlegðar og forsendna um meðalvexti lána og endurgreiðslutíma. Skuldaþak sveitarfélags er reiknað sem núvirði þeirrar framlegðar sem ráðstafa má til hreinna afborgana og vaxta á þeim tíma sem eðlilegt getur talist að sveitarfélag greiði upp núverandi skuldir sínar.
II. KAFLI
Mat á fjárhagsstöðu sveitarfélaga.
5. gr. Sveitarstjórn skal gæta þess svo sem kostur er að heildarútgjöld sveitarfélags fari ekki fram úr heildartekjum þess.
6. gr. Við árlega athugun eftirlitsnefndar skal nefndin kanna reikningsskil, fjárhagsáætlun og þriggja ára áætlun sveitarfélags, reikna út lykiltölur, sbr. 3. mgr., og bera þær saman við viðmið, sbr. 8. gr.
Gögn, sbr. 1. mgr., skulu ná til sveitarsjóðs og annarra sjóða og stofnana er falla undir a-lið 60. gr. sveitarstjórnarlaga.
Eftirfarandi lykiltölur skal reikna út og bera saman við viðmið:
| 1. | Rekstur málaflokka í hlutfalli við skatttekjur. |
 | Lykiltalan sýnir hversu miklum hluta af skatttekjum er ráðstafað til reksturs málaflokka. |
 | Með rekstrargjöldum er átt við rekstur allra málaflokka án fjármunatekna og fjármagnsgjalda. |
| 2. | Fjárfestingarútgjöld í hlutfalli við framlegð. |
 | Lykiltalan sýnir hversu miklu af rekstrarafgangi sveitarfélagsins er ráðstafað til framkvæmda og fjárfestinga. |
 | Með framlegð er átt við mismun skatttekna og reksturs málaflokka, sbr. 1. tölulið. |
| 3. | Peningaleg staða í hlutfalli við skatttekjur. |
 | Ef hlutfallið er neikvætt sýnir lykiltalan hversu miklu af skatttekjum hvers árs þyrfti að ráðstafa til að jafna stöðu peningalegra eigna og skulda. |
 | Með peningalegri stöðu er átt við veltufjármuni og langtímakröfur sveitarfélags í efnahagsreikningi að frádregnum skammtíma- og langtímaskuldum þess. |
| 4. | Heildarskuldir í hlutfalli við skatttekjur. |
 | Lykiltalan sýnir hversu miklu af skatttekjum hvers árs þyrfti að ráðstafa til að greiða upp skuldir sveitarfélagsins. |
 | Með heildarskuldum er átt við skammtíma- og langtímaskuldir sveitarfélagsins. |
| 5. | Heildarskuldir í hlutfalli við skuldaþak (skuldaþakshlutfall). |
 | Lykiltalan sýnir hvað heildarskuldir sveitarfélagsins eru miklar í hlutfalli við útreiknað skuldaþak. |
 | Í vinnureglum sem eftirlitsnefnd setur sér skal hún tilgreina forsendur fyrir útreikningi skuldaþaks um meðalvexti (ávöxtunarkröfu), endurgreiðslutíma lána og eðlilegt hlutfall framlegðar sem varið er til hreinna afborgana og fjármagnsgjalda af lánum sveitarfélagsins. |
| 6. | Peningaleg staða í hlutfalli við skuldaþak (hreint skuldaþakshlutfall). |
 | Lykiltalan sýnir hversu miklar hreinar skuldir sveitarfélagsins eru í hlutfalli af útreiknuðu skuldaþaki. Ef peningalega staðan er neikvæð er um hreinar skuldir að ræða en hreinar eignir ef um jákvæða peningalega stöðu er að ræða. |
Í samningi skv. 1. mgr. skal m.a. tilgreina:
| A. | Markmið samningsins. |
| B. | Fjárhags- og/eða stjórnunarlega aðkomu annarra aðila en sveitarstjórnar. |
| C. | Fjárhags- og/eða stjórnunarlegar aðgerðir sveitarstjórnar. |
| D. | Ýmis viðmið m.a. varðandi: |
 | i. | hámark heildarskulda og hreinna skulda, |
 | ii. | framlegð og rekstur málaflokka, |
 | iii. | ráðstöfun fjármuna til afborgana og fjármagnsgjalda af lánum, |
 | iv. | ráðstöfun fjármuna til viðhalds, |
 | v. | ráðstöfun fjármuna til framkvæmda. |
| E. | Kröfur um fjárhagsáætlanagerð er lúta m.a. að: |
 | i. | hvað fjárhagsáætlanir skuli ná til langs tíma, |
 | ii. | hversu ítarlegar áætlanir skuli vera, |
 | iii. | forsendum, |
 | iv. | skilum. |
| F. | Eftirlitshlutverk og ábyrgð eftirlitsnefndar: |
 | Eftirlitsnefnd skal hafa heildaryfirsýn yfir fjármál og stjórnun sveitarfélags og taka virkan þátt í stefnumörkun þess. Engar ákvarðanir, sem telja verður að skipti verulegu máli í stjórnun, rekstri og framkvæmdum sveitarfélags og geti m.a. haft áhrif á þætti er fram koma í D-lið þessarar greinar, skulu teknar án samþykkis nefndarinnar. Enn fremur skal eftirlitsnefndin hafa aðgang að upplýsingum úr bókhaldi og öðrum gögnum er sýna þróun í fjármálum sveitarfélagsins hverju sinni. |
| G. | Ákvæði um vinnuframlag starfsmanns á vegum eftirlitsnefndar ef þurfa þykir. Þar komi fram m.a. hlutverk og ábyrgðarsvið starfsmannsins ásamt nánari ákvæðum um tegund og umfang starfsins. |
| H. | Lengd samnings. |
18. gr. Leiði aðgerðir eftirlitsnefndar, sbr. 14. og 15. gr., hvorki til samnings milli aðila né raunhæfra viðbragða sveitarstjórnar í rekstri og fjármálastjórn sveitarfélags eða fari sveitarfélag ekki eftir ákvæðum samnings í verulegum mæli að mati nefndarinnar skal nefndin meta hvort leggja skuli til við ráðherra að sveitarstjórn verði svipt fjárforræði. Sama máli gegnir lýsi sveitarstjórn sig mótfallna nýjum samningi, sbr. 16. gr.
19. gr. Ráðuneytinu er heimilt að tillögu eftirlitsnefndar að veita sveitarfélagi styrk eða lán úr Jöfnunarsjóði sveitarfélaga til að koma fjárhag þess á réttan kjöl með þeim skilyrðum sem ráðuneytið setur, enda hafi komið í ljós við rannsókn að fjárhagur sveitarfélagsins sé slíkur að það geti ekki með eðlilegum rekstri staðið straum af lögboðnum útgjöldum.
Ráðuneytið getur einnig heimilað eða lagt fyrir viðkomandi sveitarstjórn, að fengnum tillögum eftirlitsnefndar, að álag sé lagt á útsvar og fasteignaskatt sem nemi allt að 25%.
20. gr. Reglugerð þessi, sem sett er samkvæmt ákvæðum 74. gr. sveitarstjórnarlaga nr. 45/1998, öðlast þegar gildi.
Félagsmálaráðuneytinu, 3. maí 2001.
Páll Pétursson.
Garðar Jónsson.
Breytingar: 829/2003 - Reglugerð um breytingu á reglugerð um eftirlitsnefnd með fjármálum sveitarfélaga, nr. 374/2001. 352/2005 - Reglugerð um breytingu á reglugerð um eftirlitsnefnd með fjármálum sveitarfélaga, nr. 374/2001, með síðari breytingum. 1030/2008 - Reglugerð um breytingu á reglugerð nr. 374/2001, um eftirlitsnefnd með fjármálum sveitarfélaga með síðari breytingum.
|