Stjórnarráđiđ  |  Ríkisstjórn  |  Réttarheimildir  |  Alţingi  |
 
Stjórnarráđ Íslands    
  Forsíđa  
 

  Reglugerđir

međ breytingum
eftir ráđuneytum
eftir ártali
eftir köflum í safninu
brottfallnar
Leit
 

372/1998

Reglugerđ

REGLUGERĐ

um kennslu fatlađra nemenda í framhaldsskólum.

1. gr.

Fatlađir nemendur í framhaldsskólum, samkvćmt skilgreiningu á hugtakinu fatlađur í 2. gr. laga nr. 59/1992 um málefni fatlađra, eiga rétt á kennslu og sérstökum stuđningi í námi. Stuđningurinn getur veriđ veittur af sérhćfđum starfsmönnum, ađstođarfólki og/eđa í formi tćkjabúnađar.

Fatlađir nemendur skulu stunda nám viđ hliđ annarra nemenda eftir ţví sem kostur er.

Víkja má frá almennum reglum um framkvćmd námsmats og fyrirlögn prófa eftir ţví sem fötlun nemanda gefur tilefni til samkvćmt ákvćđum í ađalnámskrá framhaldsskóla.

2. gr.

Kennsla fatlađra byggir á rökstuddri námsáćtlun fyrir nemendahóp eđa einstakling. Námsáćtlunin skal byggđ á meginmarkmiđum ađalnámskrár framhaldsskóla og upplýsingum um ţarfir nemenda og mati á stöđu ţeirra í námi og ţroska. Tilgreind skulu langtíma- og skammtímamarkmiđ međ kennslunni. Námsáćtlun skal endurskođa reglulega.

Skipuleggi skóli sérstakt námsframbođ fyrir fatlađa skal ţađ birt í skólanámskrá. Gerđ skal grein fyrir markmiđum námsins, tímalengd miđađ viđ lok ţess og ađstöđu til kennslu.

3. gr.

Kennsla fatlađra nemenda getur fariđ fram međ eftirfarandi hćtti:

 a.            Međ stuđningi inni í nemendahópi/bekkjardeild.

 b.            Međ stuđningi utan nemendahóps eđa í sérstökum námshópum ađ hluta eđa ađ öllu leyti.

 c.            Í sérstökum deildum viđ framhaldsskóla.

4. gr.

Skólameistari metur ţörf fyrir stuđning viđ fatlađa nemendur í skóla sínum og skipuleggur hann í samráđi viđ starfsliđ skólans m.a. međ hliđsjón af greiningu sérfrćđinga á fötlun sbr. 2. gr. laga nr. 59/1992 um málefni fatlađra. Áćtlun um framkvćmd skal taka miđ af námsáćtlun fyrir námshópa og/eđa einstaka nemendur eftir ţví sem viđ á.

Í starfsáćtlun skólans skal sérstaklega gera grein fyrir námsframbođi fyrir fatlađa nemendur, ráđningu sérhćfđs starfsliđs, sérfrćđilegri ađstođ, sérstökum búnađi og námsefni og breytingu á húsnćđi ef fötlun nemanda krefst ţess. Skólameistari skal sćkja um sérgreinda fjárveitingu vegna kostnađar sem af ţessu hlýst.

5. gr.

Menntamálaráđherra getur heimilađ stofnun sérstakra deilda fyrir fatlađa nemendur er ekki geta nýtt sér almennt námsframbođ framhaldsskóla, sbr. c-liđ 3. greinar. Í sérdeildum getur námsframbođ og kennslufyrirkomulag vikiđ frá ţví sem ađalnámskrá gerir ráđ fyrir og starfiđ fariđ ađ sérstakri námskrá sem menntamálaráđherra samţykkir og miđuđ er viđ sérţarfir nemenda viđkomandi deildar. Námiđ skal veita nemendum almennan undirbúning fyrir lífiđ og búa ţá undir ţátttöku í atvinnulífinu eđa frekara nám eftir ţví sem kostur er.

6. gr.

Gögn í vörslu skóla og/eđa yfirvalda menntamála sem hafa ađ geyma persónulegar upplýsingar um nemendur skal fariđ međ í samrćmi viđ ákvćđi laga um međferđ og skráningu persónuupplýsinga og upplýsingalaga eftir ţví sem viđ á.

7. gr.

Reglugerđ ţessi er sett samkvćmt heimild í 19. laga nr. 80/1996 um framhaldsskóla og öđlast ţegar gildi.

Menntamálaráđuneytinu, 9. júní 1998.

Björn Bjarnason.

Stefán Baldursson.

 

 

Word útgáfa af reglugerđ

372-1998.doc - 372-1998.doc

 
Stjórnartíđindi - Sölvhólsgötu 7 - 150 Reykjavík Sími 545 9000
Bréfasími 552 7340 - Netfang: reglugerdir@irr.is
Prentvćnt