Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneyti

369/2013

Reglugerð um (2.) breytingu á reglugerð nr. 136/2010 um gildistöku reglugerðar framkvæmdastjórnarinnar (EB) nr. 2075/2005 um sértækar reglur um opinbert eftirlit með tríkínu í kjöti, auk áorðinna breytinga. - Brottfallin

1. gr.

Ákvæði samningsins um Evrópska efnahagssvæðið sem vísað er til í I. kafla, I. viðauka, skulu öðlast gildi með breytingum og viðbótum sem leiðir af I. viðauka, bókun 1 við samninginn og öðrum ákvæðum hans. Á grundvelli ákvörðunar sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 153/2012, frá 1. nóvember 2012, öðlast eftirfarandi ESB-gerð gildi hér á landi:

Framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) nr. 1109/2011 um breytingu á I. viðauka við reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (EB) nr. 2075/2005 að því er varðar jafngildar aðferðir við tríkínuprófanir. Reglugerðin er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 67, frá 29. nóvember 2012, bls. 471.

2. gr.

Matvælastofnun og heilbrigðisnefndir sveitarfélaga undir yfirumsjón Matvælastofnunar fara með eftirlit með því að ákvæðum þessarar reglugerðar sé framfylgt í samræmi við 6. og 22. gr. laga nr. 93/1995.

3. gr.

Um brot gegn reglugerð þessari fer samkvæmt 30. gr., 30. gr. a - 30. gr. e og 31. gr. laga nr. 93/1995 um matvæli.

4. gr.

Reglugerð þessi er sett samkvæmt heimild í 31. gr. a laga nr. 93/1995 um matvæli, með síðari breytingum.

5. gr.

Reglugerðin öðlast þegar gildi.

Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytinu, 24. apríl 2013.

F. h. r.

Halldór Runólfsson.

Eggert Ólafsson.


Þetta vefsvæði byggir á Eplica