Hoppa beint í aðalvalmynd
Stjórnarráðið  |  Ríkisstjórn  |  Réttarheimildir  |  Alþingi  |
 
Stjórnarráð Íslands    
  Forsíða  
 

  Reglugerðir

með breytingum
eftir ráðuneytum
eftir ártali
eftir köflum í safninu
brottfallnar
Leit
 

361/2009

REGLUGERÐ
um breytingu á reglugerð nr. 524/2008 um afmörkun siglingaleiða,
svæði sem ber að forðast og tilkynningaskyldu skipa fyrir Suðvesturlandi.

1. gr.
3. mgr. 4. gr. orðast svo:

Forðast skal að sigla skipum sem falla undir reglur þessar inn á afmörkuð svæði samkvæmt 1. mgr. Það tekur þó ekki til skipa sem taka höfn á Selvogsbankasvæði, farþegaskipa á tímabilinu 1. maí til 1. október og skipa allt að 20.000 BT sem hvorki flytja hættuleg efni né eiturefni í búlka eða farmtönkum og hafa heimild til að sigla innri leið skv. 2. mgr. 6. gr. reglugerðar þessarar. Slíkum skipum er heimil sigling um Selvogsbankasvæðið fyrir sunnan 63°45´N. Við siglingu slíkra skipa yfir Selvogsbankasvæðið ber skipstjórnarmönnum að sýna fyllstu aðgát og taka sérstaklega tillit til veðurs og veður- og ölduspár ef um álandsvind er að ræða.


2. gr.
Á eftir 1. mgr. 6. gr. kemur ný málsgrein, svohljóðandi:

Heimilt er að sigla farþegaskipum óháð stærð þeirra um innri leið á tímabilinu frá 1. maí til 1. október.


3. gr.
2. tölul. athugasemda undir „Mörk svæða sem ber að forðast“ í II. hluta I. viðauka orðast svo:
    2. Skipum sem sigla til hafna innan Selvogsbankasvæðisins er heimil sigling um svæðið. Farþegaskip á tímabilinu 1. maí til 1. október og skip allt að 20.000 BT sem flytja hvorki hættuleg efni né eiturefni í búlka eða farmtönkum og hafa heimild til að sigla innri leið skv. 2. mgr. 6. gr. reglugerðar þessarar mega sigla um Selvogsbankasvæðið fyrir sunnan 63°45´N.

4. gr.
Reglugerð þessi, sem sett er samkvæmt heimild í 13. gr. laga nr. 41/2003 um vaktstöð siglinga, 12. gr. laga um vitamál nr. 132/1999 og 2. gr. laga nr. 7/1975 um heimild fyrir ríkisstjórnina til þess að staðfesta fyrir Íslands hönd samþykkt um alþjóðareglur til að koma í veg fyrir árekstra á sjó, 1972 með síðari breytingum, tekur þegar gildi og birtist til eftirbreytni öllum sem hlut eiga að máli.


Samgönguráðuneytinu, 26. mars 2009.

Kristján L. Möller.
Ragnhildur Hjaltadóttir.

B_nr_361_2009.doc

Stofnreglugerð:
524/2008 - Reglugerð um afmörkun siglingaleiða, svæði sem ber að forðast og tilkynningaskyldu skipa fyrir Suðvesturlandi.

 
Stjórnartíðindi - Sölvhólsgötu 7 - 150 Reykjavík Sími 545 9000
Bréfasími 552 7340 - Netfang: reglugerdir@irr.is
Prentvænt