Fara beint í efnið

Prentað þann 29. mars 2024

Breytingareglugerð

356/1999

Reglugerð um breytingu á reglugerð nr. 255/1993, um vörugjald af eldsneyti, með síðari breytingum.

1. gr.

2. málsl. 1. mgr. 3. gr. reglugerðarinnar orðast svo:

Af blýlausu bensíni skal greiða gjald sem nemur 28,60 kr. af hverjum lítra. Af öðru bensíni skal greiða gjald sem nemur 30,43 kr. af hverjum lítra.

2. gr.

Reglugerð þessi sem sett er með heimild í 28. gr. laga nr. 29/1993, um vörugjald af ökutækjum, eldsneyti o.fl. öðlast gildi 1. júní 1999 og tekur til innflutnings á bensíni sem tekið er til tollafgreiðslu frá og með þeim degi.

Ákvæði til bráðabirgða.

Þeir aðilar sem gjaldskyldir eru skv. 18. gr. laga nr. 29/1993, skulu greiða bensíngjald af óseldum bensínbirgðum sem þeir eiga þann 1. júní 1999, til viðbótar því bensíngjaldi sem greiða skal samkvæmt reglugerð nr. 255/1993, með síðari breytingum. Gjald þetta skal nema 1,07 kr. af hverjum lítra af blýlausu bensíni og 1,14 kr. af hverjum lítra af öðru bensíni og skal því skilað á sama tíma og bensíngjaldi skv. reglugerð nr. 255/1993, með síðari breytingum.

Hver sá, sem á eða hefur til umráða gjaldskyldar birgðir af bensíni hinn 1. júní 1999, skal ótilkvaddur tilkynna það innheimtumanni ríkissjóðs fyrir 15. júní 1999. Eigandi eða umráðamaður þess skal ótilkvaddur aðstoða við að kanna birgðir óski innheimtumaður slíkrar aðstoðar.

Innheimtumaður ríkissjóðs getur krafist upplýsinga frá innflytjendum bensíns og bensínsölum um sölu skv. verslunarbókum til viðskiptamanna er fram fór fyrir 1. júní 1999.

Fjármálaráðuneytinu, 27. maí 1999.

Geir H. Haarde.

Maríanna Jónasdóttir.

Fyrirvari

Reglugerðir eru birtar í B-deild Stjórnartíðinda skv. 3. gr. laga um Stjórnartíðindi og Lögbirtingablað, nr. 15/2005, sbr. reglugerð um útgáfu Stjórnartíðinda nr. 958/2005.

Sé misræmi milli þess texta sem birtist hér í safninu og þess sem birtur er í útgáfu B-deildar Stjórnartíðinda skal sá síðarnefndi ráða.