Fara beint í efnið

Prentað þann 28. mars 2024

Breytingareglugerð

347/2015

Reglugerð um breytingu á reglugerð um lofthæfi- og umhverfisvottun loftfara og tilheyrandi framleiðsluvara, hluta og búnaðar og vottun hönnunar- og framleiðslufyrirtækja, nr. 380/2013.

1. gr.

Við 3. gr. bætist nýr töluliður svohljóðandi:

  1. Reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) nr. 69/2014 frá 27. janúar 2014, sem breytir reglugerð (ESB) nr. 748/2012 um framkvæmdareglur varðandi lofthæfi- og umhverfisvottun loftfara og tilheyrandi framleiðsluvara, hluta og búnaðar og varðandi vottun hönnunar- og framleiðslufyrirtækja, samkvæmt ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 193/2014 frá 25. september 2014 um breytingu á XIII. viðauka við EES-samninginn nr. 193/2014 frá 25. september 2014, birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 64 frá 30. október 2014, bls 344.

2. gr. Gildistaka.

Reglugerð þessi er sett samkvæmt heimild í 7. mgr. 28. gr., sbr. 145. gr. laga um loftferðir nr. 60/1998, með síðari breytingum og öðlast þegar gildi.

Innanríkisráðuneytinu, 14. apríl 2015.

F. h. r.

Sigurbergur Björnsson.

Gunnar Örn Indriðason.

Fyrirvari

Reglugerðir eru birtar í B-deild Stjórnartíðinda skv. 3. gr. laga um Stjórnartíðindi og Lögbirtingablað, nr. 15/2005, sbr. reglugerð um útgáfu Stjórnartíðinda nr. 958/2005.

Sé misræmi milli þess texta sem birtist hér í safninu og þess sem birtur er í útgáfu B-deildar Stjórnartíðinda skal sá síðarnefndi ráða.