Fara beint í efnið

Prentað þann 28. mars 2024

Breytingareglugerð

341/2016

Reglugerð um (2.) breytingu á reglugerð nr. 954/2013 um þrávirk lífræn efni.

1. gr.

Við 1. gr. reglugerðarinnar bætist nýr stafliður, j-liður, sem orðast svo:

  1. Reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2015/2030 frá 13. nóvember 2015 um breytingu á reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (EB) nr. 850/2004 um þrávirk lífræn mengunarefni að því er varðar I. viðauka, sem vísað er til í tölulið 12w, XV. kafla, II. viðauka samningsins um Evrópska efnahagssvæðið, eins og honum var breytt með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 19/2016, þann 5. febrúar 2016. Reglugerðin er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 18 frá 31. mars 2016, 2016/EES/18/34, bls. 209-211.

2. gr.

Reglugerðin er sett til innleiðingar á reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2015/2030 frá 13. nóvember 2015 um breytingu á reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (EB) nr. 850/2004 um þrávirk lífræn mengunarefni að því er varðar I. viðauka.

3. gr.

Reglugerð þessi er sett með stoð í 11. tölul. 1. mgr. 11. gr. efnalaga nr. 61/2013 og 43. gr. laga nr. 55/2003 um meðhöndlun úrgangs.

Reglugerðin öðlast þegar gildi.

Umhverfis- og auðlindaráðuneytinu, 11. apríl 2016.

F. h. r.

Sigríður Auður Arnardóttir.

Steinunn Fjóla Sigurðardóttir.

Fyrirvari

Reglugerðir eru birtar í B-deild Stjórnartíðinda skv. 3. gr. laga um Stjórnartíðindi og Lögbirtingablað, nr. 15/2005, sbr. reglugerð um útgáfu Stjórnartíðinda nr. 958/2005.

Sé misræmi milli þess texta sem birtist hér í safninu og þess sem birtur er í útgáfu B-deildar Stjórnartíðinda skal sá síðarnefndi ráða.