Hoppa beint í aðalvalmynd
Stjórnarráðið  |  Ríkisstjórn  |  Réttarheimildir  |  Alþingi  |
 
Stjórnarráð Íslands    
  Forsíða  
 

  Reglugerðir

með breytingum
eftir ráðuneytum
eftir ártali
eftir köflum í safninu
brottfallnar
Leit
 

340/1986
felld brott með rg. nr. 165/2007

REGLUGERÐ

REGLUGERÐ

um breytingu á reglugerð um loðdýrarækt

og innflutning loðdýra, nr. 444 22. júlí 1982.

 

1. gr.

1. mgr. 17. gr. orðist svo:

Sala loðdýra innanlands er aðeins heimil til þeirra er hafa leyfi landbúnaðarráðuneytis­ins til reksturs loðdýrabús. Seljanda ber að fullvissa sig um að kaupandi hafi slíkt leyfi. Búnaðarfélag Íslands hefur yfirumsjón með mati á lífdýrum. Kaupendum lífdýra skal gefinn kostur á því að trúnaðarmaður Búnaðarfélags Íslands meti þau lífdýr, sem hann áformar að kaupa. Skulu þá dýrin merkt og skráð í þríriti og heldur seljandi einu eintaki, kaupandi fær annað og Búnaðarfélag Íslands hið þriðja.

 

2. gr.

Reglugerð þessi, sem sett er samkvæmt 7. gr. laga nr. 51 29. maí 1981 um loðdýrarækt, öðlast gildi þegar í stað.

 

Landbúnaðarráðuneytið, 14. júlí 1986.

 

Jón Helgason.

Jón Höskuldsson.

Word útgáfa af reglugerð

340-1986.doc - 340-1986.doc

Stofnreglugerð:
444/1982 - Reglugerð um loðdýrarækt og innflutning loðdýra

 
Stjórnartíðindi - Sölvhólsgötu 7 - 150 Reykjavík Sími 545 9000
Bréfasími 552 7340 - Netfang: reglugerdir@irr.is
Prentvænt