|
|
335/2009
REGLUGERÐ
um aðstoð við gerð beiðni um heimild til að leita greiðsluaðlögunar.
1. gr. Ráðgjafarstofa um fjármál heimilanna veitir skuldara endurgjaldslausa aðstoð við gerð beiðni um heimild til að leita greiðsluaðlögunar og fylgigagna með henni.
2. gr. Reglugerð þessi, sem sett er samkvæmt heimild í 5. mgr. 63. gr. c. laga um gjaldþrotaskipti o.fl. nr. 21/1991 sbr. lög nr. 24/2009, öðlast þegar gildi.
Dóms- og kirkjumálaráðuneytinu, 1. apríl 2009.
Ragna Árnadóttir. Bryndís Helgadóttir.

|