REGLUGERÐ
um reiknilíkan
til að reikna út kennslukostnað framhaldsskóla.
1. gr.
Hlutverk reiknilíkansins er
að tryggja jafnræði skóla til fjárveitinga í samræmi við stærð, gerð,
staðsetningu og samsetningu náms. Líkanið skal tryggja eftir því sem frekast er
unnt faglegt starf skólanna um leið og það stuðlar að aðhaldi í meðferð
fjármuna vegna kennslu, rekstrar og stofnkostnaðar. Í gerð líkansins skulu
felast möguleikar til þess að auka eða draga úr stuðningi við tiltekin markmið
skólastarfs með samræmdum hætti um leið og unnt verði með hliðstæðum hætti að
taka tillit til sérstakra aðstæðna.
2. gr.
Reiknilíkanið tekur til
fjárveitinga til kennslu, kennslutengdra starfa, annarra starfa í skólum og
rekstrarþátta sem skólar geta óhindrað fært á milli fjárlagaliða.
3. gr.
Reiknilíkanið skal vera í
formi tölvuforrits, aðgengilegt öllum skólum og opið þeim sem vilja kynna sér
hvernig það vinnur.
4. gr.
Forsendur reiknilíkansins
eru hinar sömu fyrir alla skóla en greinast í tvennt; annars vegar þær sem hafa
sama tölugildi fyrir alla skóla en hins vegar sérstakar forsendur fyrir hvern
skóla.
5. gr.
Almennar forsendur líkansins
skulu taka til eftirfarandi:
Kennslustundafjölda pr. nemenda á
viku; almennrar bekkja- og hópstærða; almennrar nýtingarkröfu eða meðalfjölda
nemenda í bekk eða hópum; launatengdra gjalda; hlutfallstengingar
kennslutengdra starfa við kennslukostnað; hlutfallslegrar skiptingar útreiknaðs
kennslustundafjölda milli dagvinnu og eftirvinnu.
6. gr.
Sérstakar forsendur hvers skóla
skulu vera:
Skráðir nemendur næstliðins
almanaksárs eftir önnum (höfðatala); áætlaður nemendafjöldi næsta fjárlagaárs,
meðaltal beggja anna; nemendur kvöldskóla (öldungadeilda), meðaltal beggja anna
næsta fjárlagaárs, hlutfall kennslustunda nemenda í fornámi eða hægferðum af
heildarnemendastundum skólans; fermetrar húsnæðis skólans eftir bóknáms- og
stjórnunarhluta, verknámshluta, heimavist og mötuneyti; leigugjöld vegna
kennsluhúsnæðis, verð á rúmmetra heits vatns, verð á kílówattstund raforku;
fjarlægð frá Reykjavík, meðalárslaun kennara; árslaun og yfirvinnu
skólameistara/rektors.
7. gr.
Um skil skóla á upplýsingum
um kennslu, skráða nemendur og prófaða eftir áföngum/bekkjum, fjölda
hópa/bekkja og annað er viðkemur árangri skólastarfsins skal nánar kveðið á í
skólasamningi.
8. gr.
Reiknilíkanið skal
endurskoða í heild eigi sjaldnar en á fjögurra ára fresti. Þess á milli má
fella niður einstakar almennar og sértækar forsendur eða auka við eftir
umfjöllun á samstarfsnefndarfundi framhaldsskólastigsins. Einstökum tölulegum
viðmiðum líkansins getur ráðherra breytt í fjárlagaundirbúningi hverju sinni.
9. gr.
Reglugerð þessi er sett með stoð
í 39. gr. laga nr. 80/1996 um framhaldsskóla og öðlast þegar gildi.
Menntamálaráðuneytinu, 7. maí 1999.
Björn Bjarnason.
Þórunn J. Hafstein.
Word útgáfa af reglugerð