REGLUGERÐ
um löggildingu
ökukennara og starfsleyfi ökuskóla.
Löggilding ökukennara.
1. gr.
Löggildingu sem ökukennari má
veita þeim sem:
a. er 21 árs að aldri,
b. hefur ekið bifreið, eftir
atvikum bifhjóli, að staðaldri síðustu þrjú árin,
c. hefur staðist sérstakt próf
fyrir ökukennara að afloknu ökukennaranámi, og
d. fullnægir kröfum um líkamlegt
og andlegt hæfi sem gerðar eru til ökumanna sem annast farþegaflutninga í
atvinnuskyni.
Heimilt er að synja um löggildingu
ef ákvæði 2. mgr. 68. gr. almennra hegningarlaga eiga við. Synjunin skal að
kröfu hlutaðeigandi borin undir dómstóla samkvæmt reglum 68. gr. a almennra
hegningarlaga.
2. gr.
Löggilding ökukennara skal veitt
til að annast kennslu fyrir einstaka flokka ökutækja:
- flokk B
(fólksbifreið/sendibifreið),
- flokk A (bifhjól), og
- flokka C, D og E (vörubifreið,
hópbifreið og stór eftirvagn/tengitæki). Löggildingin gildir einnig til kennslu
fyrir farþegaflutninga í atvinnuskyni.
Löggildingu fyrir flokk A og
flokkana C, D og E má einungis veita þeim sem hefur fengið löggildingu fyrir
flokk B. Umsækjandi um löggildingu fyrir flokkana C, D og E skal auk þess hafa
reynslu af akstri slíkra ökutækja í a.m.k. tvö ár.
3. gr.
Ökukennaranám skal fara fram á
vegum Kennaraháskóla Íslands. Námið skal fara fram samkvæmt námskrá sem
Umferðarráð setur, að höfðu samráði við Kennaraháskóla Íslands og
Ökukennarafélag Íslands, og dómsmálaráðherra staðfestir, um nám fyrir
hlutaðeigandi flokk.
Í námskrá skal koma fram hvaða
þekkingu og hæfni umsækjandi þarf að búa yfir til að öðlast löggildingu.
Námskeið til undirbúnings
ökukennaraprófi vegna löggildingar fyrir flokk B skal halda með hæfilegu
millibili enda fáist næg þátttaka. Námskeið fyrir flokk A og flokkana C, D og E
skal halda þegar ástæða þykir til.
4. gr.
Ráðgjafarnefnd, skipuð fulltrúum
tilnefndum af Umferðarráði, sem stýrir vinnu nefndarinnar, Kennaraháskóla
Íslands og Ökukennarafélagi Íslands, skal vera til ráðuneytis um ökukennaranám
og gerð námskrár.
Nefndin skal m.a. ganga frá
kennsluskrá á grundvelli námskrár þar sem eftirfarandi atriði skulu koma fram:
a. tilhögun, lengd og tímasetning
námskeiða og prófa,
b. tegundir námsgreina, tilhögun
kennslu og fjöldi kennslustunda í hverri námsgrein,
c. tilhögun námsmats,
d. náms- og prófkröfur, og
e. fjárhæð námsgjalda.
5. gr.
Nemandi sem lokið hefur
ökukennaranámi skal gangast undir ökukennarapróf. Próf (námsmat) skal fara fram
á vegum Kennaraháskóla Íslands og Umferðarráðs. Próf skal vera fræðilegt og
verklegt samkvæmt nánari ákvæðum í námskrá.
Áður en próf fer fram skal kannað
hvort skilyrðum 1. gr., eða 2. mgr. 2. gr. ef við á, fyrir veitingu
löggildingar, öðrum en prófi, er fullnægt.
6. gr.
Nemandi sem stenst próf skal fá
prófskírteini frá Kennaraháskóla Íslands. Jafnframt skal Kennaraháskólinn senda
dómsmálaráðuneytinu afrit prófskírteinis ásamt framlögðum gögnum skv. 2. mgr.
5. gr.
Að uppfylltum skilyrðum, og að
ósk hlutaðeigandi, gefur dómsmálaráðherra út löggildingu. Löggilding ökukennara
gildir í fimm ár, þó ekki lengur en hlutaðeigandi hefur ökuréttindi. Tilkynna
skal Umferðarráði um útgefna löggildingu.
Ef ökukennari hefur lokið
viðbótarprófi vegna nýrra flokka (flokks A eða flokkanna C, D og E) skal
dómsmálaráðherra, að ósk hlutaðeigandi, gefa út nýja löggildingu og til fimm
ára.
7. gr.
Ríkisborgari í aðildarríki
Evrópska efnahagssvæðisins, sem í öðru aðildarríki hefur öðlast viðurkenningu
til að starfa sem ökukennari með starfsmenntun eða starfsþjálfun sem fellur
undir ákvæði tilskipunar 92/51/EBE um annað almennt kerfi til viðurkenningar á
starfsmenntun og starfsþjálfun, er undanþeginn námi og prófi skv. c-lið 1. mgr.
1. gr. Umsókn um löggildingu á grundvelli slíkrar viðurkenningar skulu fylgja
fullnægjandi gögn.
Ráðherra kannar hvort skilyrðum
til útgáfu löggildingar er fullnægt. Getur ráðherra þá ákveðið að umsækjandi
skuli ljúka aðlögunartíma eða gangast undir hæfnispróf, sbr. 7. gr.
tilskipunarinnar.
8. gr.
Kennaraháskóli Íslands skal í
samvinnu við Umferðarráð og Ökukennarafélag Íslands halda reglulega
endurmenntunarnámskeið fyrir ökukennara. Starfandi ökukennari skal að jafnaði
sækja eitt slíkt námskeið á þriggja ára fresti.
9. gr.
Endurnýja má löggildingu enda
fullnægi umsækjandi ennþá skilyrðum skv. b- og d-lið 1. mgr. og 2. mgr. 1. gr.
til að fá löggildingu og hafi að jafnaði stundað ökukennslu á liðnu
löggildingartímabili.
Nú hefur ökukennari ekki stundað
ökukennslu að jafnaði á liðnu tímabili eða meira en ár er liðið frá því
löggilding féll úr gildi og skal umsækjandi þá gangast undir hæfnispróf.
Hæfnisprófið skal fara fram í samræmi við próflýsingu fyrir verklegt
ökukennarapróf.
Umsókn um endurnýjun skal fylgja
vottorð frá Umferðarráði um ökukennarastarf umsækjanda, prófvottorð skv. 2.
mgr., ef við á, svo og yfirlýsing umsækjanda um að skilyrðum til útgáfu löggildingar
sé að öðru leyti fullnægt.
Að uppfylltum skilyrðum gefur
dómsmálaráðherra út nýja löggildingu, sbr. 2. mgr. 6. gr.
10. gr.
Dómsmálaráðherra getur hvenær sem
er svipt ökukennara ökukennararéttindum, ef ástæða þykir til. Skal það gert ef
ökukennari hefur verið staðinn að háttsemi sem ekki samrýmist starfi ökukennara
eða hann að öðru leyti fullnægir ekki lengur skilyrðum til að öðlast
löggildingu sem ökukennari. Það skal enn fremur gert ef ökukennari hefur
verulega brotið gegn eða vikið frá gildandi reglum um ökukennslu eða ef hann
sem forstöðumaður ökuskóla hefur borið ábyrgð á að slíkt hafi átt sér stað við
skólann.
Ef Umferðarráð telur ökukennara
hafa brotið þannig gegn settum reglum að varðað geti sviptingu réttinda skal
það gera ökukennaranum grein fyrir málavöxtum og gefa honum færi á að koma
sínum sjónarmiðum á framfæri áður en mál er sent dómsmálaráðuneyti til
meðferðar.
Ef ástæða þykir til að ætla að
ökukennari fullnægi ekki lengur kröfum um þekkingu og hæfni til að öðlast
löggildingu getur dómsmálaráðherra ákveðið að ökukennarinn skuli gangast undir
hæfnispróf, sbr. 2. málsl. 2. mgr. 9. gr.
Ef ökukennari hefur verið sviptur
löggildingu vegna ástæðna sem greinir í 3. málsl. 1. mgr. skal leita umsagnar
Umferðarráðs áður en löggilding verður veitt að nýju. Að öðru leyti má veita
löggildingu að nýju þegar skilyrðum til þess er fullnægt.
Starfsleyfi ökuskóla.
11. gr.
Umferðarráð veitir leyfi til
starfsemi ökuskóla til að halda námskeið til undirbúnings ökuprófi. Starfsleyfi
skal binda við kennslu fyrir einn flokk ökutækja eða fleiri, þannig:
- fyrir flokk A,
- fyrir flokk B, og
- fyrir flokkana C, D og E auk
kennslu fyrir farþegaflutninga í atvinnuskyni.
Starfsleyfi fyrir ökuskóla skal
veita þeim sem fullnægir eftirfarandi skilyrðum:
a. Forstöðumaður skal vera
starfandi ökukennari.
b. Ökuskólinn hafi aðgang að
kennslufræðilegri ráðgjöf. Ráðgjafi skal hafa kennslufræðilega menntun, vera
ökukennari með nám frá Kennaraháskóla Íslands eða ökukennari sem hefur lokið
sérstöku námskeiði um kennslufræði hópkennslu og nýsitækni.
c. Ökuskólinn leggi fram
kennsluskrár (kennsluáætlanir), skrá um kennsluefni og önnur nauðsynleg gögn.
d. Ökuskólinn hafi aðgang að
viðeigandi ökutæki til aksturskennslu
e. Ökuskólinn hafi aðstöðu til
bóklegrar og verklegrar kennslu sem við á.
f. Ökuskólinn skal vera skráður í
fyrirtækjaskrá.
Umsókn um starfsleyfi skal leggja
fram á eyðublaði sem Umferðarráð lætur í té.
Umferðarráð metur umsókn um
starfsleyfi, metur kennsluhúsnæði og aflar frekari upplýsinga eftir því sem
ástæða er til.
Leyfi skal veita til a.m.k. eins
árs í senn, þó ekki lengur en til fimm ára. Lok starfsleyfis skal að jafnaði
miða við áramót.
12. gr.
Nafn forstöðumanns (skólastjóra)
og kennslufræðilegs ráðgjafa, kennitölu og aðsetur skólans, skal skrá í
starfsleyfi ökuskóla. Leyfið skal festa upp á sýnilegum og áberandi stað í
húsakynnum (kennsluhúsnæði) skólans. Skólastjóri og kennslufræðilegur ráðgjafi
bera ábyrgð á að nám og kennsla fari fram í samræmi við námskrá og aðrar
reglur.
Tilkynna skal Umferðarráði ef nýr
skólastjóri eða kennslufræðilegur ráðgjafi tekur til starfa við ökuskóla og
skal þá gefa út nýtt starfsleyfi í stað hins fyrra.
13. gr.
Ökuskóli getur sótt um að halda
námskeið annars staðar en í því húsnæði sem starfsleyfi er gefið út fyrir.
Ákvæði 11. og 12. gr. eiga þá við eftir því sem við á.
14. gr.
Um ökuskóla gildir eftirfarandi:
a. Ökuskóli skal senda
Umferðarráði kennsluáætlun og stundaskrá a.m.k. fimm virkum dögum áður en
námskeið hefst. Með sama hætti skal ökuskóli tilkynna um veigamiklar breytingar
á kennslutilhögun.
b. Ökuskóli skal árlega senda
Umferðarráði skýrslu um starfsemi skólans þar sem fram koma m.a. upplýsingar um
fjölda nemenda, nýmæli í starfseminni og frávik frá kennsluskrá.
c. Ökuskóli skal halda skrá um
öll námskeið og nemendur sem hefja nám og ljúka námi. Ennfremur skal skrá
viðveru nemenda.
d. Kennarar skulu vera
ökukennarar eða hafa kennaramenntun. Þó má fela sérhæfðum leiðbeinanda kennslu
einstakra námsþátta.
e. Ökuskóli skal kynna nemendum
fyrirfram tilhögun náms, svo sem lengd námskeiðs, stundaskrá, lengd
kennslustunda og kostnað við nám, svo og helstu kröfur sem fullnægja þarf til
að öðlast ökuréttindi í hlutaðeigandi flokki, svo sem um búsetu, líkamlegt og
andlegt hæfi, reglusemi, reynslu og aldur.
15. gr.
Ökuskóli sem hefur starfsleyfi
fyrir flokkana C, D og E skal senda Umferðarráði námsvottorð með einkunnum
útskrifaðra nemenda að loknu bóklegu námi og eintak af prófum. Ökuskólinn skal
varðveita prófúrlausnir og úrlausnir verkefna í a.m.k tvö ár frá útskrift.
16. gr.
Umferðarráð skal endurnýja
starfsleyfi fyrir ökuskóla að uppfylltum skilyrðum um skil á starfsskýrslu og
endurskoðun kennsluáætlana, kennsluskrám eða öðrum jafngildum gögnum eftir því
sem við á.
Um endurnýjun gilda að öðru leyti
ákvæði 11. og 12. gr. eftir því sem við á.
17. gr.
Starfsleyfi skal afturkalla ef
Umferðarráð telur að skilyrði fyrir leyfisveitingu séu ekki lengur fyrir hendi
eða ef ökuskóli fer ekki eftir reglum um starfsemi ökuskóla.
Áður en ákvörðun er tekin um
afturköllun starfsleyfis skal forstöðumanni gefinn kostur á að tjá sig um
málsefni.
Eftirlit með ökukennslu og ökuskólum.
18. gr.
Ökukennarar og ökuskólar skulu
haga starfsemi sinni í samræmi við ákvæði umferðarlaga og reglugerðar um
ökuskírteini, einstakar námskrár og ákvæði reglugerðar þessarar.
19. gr.
Umferðarráð skal hafa eftirlit
með ökukennslu og ökuskólum.
Lögreglan skal tilkynna
Umferðarráði ef ökukennari brýtur ákvæði í umferðarlöggjöf, svo og um önnur
brot eða aðra háttsemi, sem varðað getur löggildingu ökukennara, sbr. 10. gr.
20. gr.
Starfsmenn Umferðarráðs skulu
heimsækja ökuskóla eftir því sem þurfa þykir, a.m.k. einu sinni á ári, fylgjast
með kennslu og fara yfir gögn sem tilheyra kennslu. Að heimsókn lokinni skal
ökuskóla send skrifleg greinargerð um skoðunina.
Prófúrlausnir nemenda og önnur
gögn sem notuð eru við námsmat skulu vera starfsmönnum Umferðarráðs tiltæk.
Skylt er ökuskóla að láta starfsmönnum Umferðarráðs í té þær upplýsingar sem
hann fer fram á í tengslum við eftirlit.
Umferðarráð getur lagt fyrir
samræmt próf í einum námsþætti eða fleirum í ökuskóla. Skal það tilkynnt
ökuskóla með a.m.k. 14 daga fyrirvara.
Upplýsingar sem starfsmenn
Umferðarráðs verða áskynja við eftirlit skal skoða sem trúnaðarmál í þeim
skilningi að óheimilt er að kynna öðrum ökuskólum atriði sem varða
viðskiptahagsmuni.
Gjöld.
21. gr.
Fyrir verklegt próf til
ökukennararéttinda skal greiða 8.000 krónur.
Fyrir hæfnispróf skal greiða sama
gjald.
Fyrir löggildingu ökukennara skal
greiða 3.000 krónur.
Fyrir útgáfu starfsleyfis fyrir
ökuskóla skal greiða 5.000 krónur.
Gildistaka.
22. gr.
Reglugerð þessi sem sett er
samkvæmt 56. gr. umferðarlaga nr. 50 30. mars 1987, sbr. lög nr. 138 18.
desember 1996, og 4. gr. laga um viðurkenningu á menntun og prófskírteinum, nr.
83 18. maí 1993, sbr. lög nr. 76 19 maí 1994 og nr. 37 16. maí 1997, svo og með
hliðsjón af lið 1a í VII. viðauka (tilskipun 92/51/EBE) við EES samninginn,
öðlast gildi 1. júní 1999.
EBE gerðin sem vitnað er til er
birt í EES viðbæti við Stjórnartíðindi EB, Sérstök útgáfa, bók 4, bls. 90-104,
sbr. og EES viðbæti við Stjórnartíðindi EB, 17. hefti 1994, bls. 55-58.
Jafnframt falla úr gildi:
a. Reglugerð um ökukennslu, próf
ökumanna o.fl., nr. 787 13. desember 1987, með síðari breytingum.
b. 1. og 2. gr. reglugerðar um
prófgjöld ökumanna, gjöld fyrir ökuskírteini o.fl., nr. 634 30. desember 1991,
með síðari breytingum.
c. d-liður ákvæðis til
bráðabirgða í reglugerð um ökuskírteini, nr. 501 11. ágúst 1997.
Ákvæði til bráðabirgða.
Ökukennarar sem við gildistöku
reglugerðar þessarar hafa löggildingu til kennslu í akstri bifreiða mega annast
kennslu fyrir þá flokka bifreiða sem ökuskírteinið heimilar þeim þá að stjórna.
Gildandi námskrá fyrir
ökukennaranám skal gilda sem námskrá fyrir nám og próf vegna löggildingar fyrir
réttindaflokk B þar til ný námskrá hefur verið sett.
Ökuskólar sem starfað hafa að
kennslu til undirbúnings ökuréttinda í flokki A og B hafa frest til 1.
september 1999 til að afla starfsleyfis.
Dóms- og kirkjumálaráðuneytinu, 3. maí 1999.
Þorsteinn Pálsson.
Ólafur W.
Stefánsson.
Word útgáfa af reglugerð