Fara beint í efnið

Prentað þann 19. apríl 2024

Breytingareglugerð

322/2006

Reglugerð um breytingu á reglugerð um framkvæmd raforkulaga nr. 1040/2005, með síðari breytingum.

1. gr.

Eftirfarandi breytingar verða á 15. gr.:

  1. Orðið "dreifiveitur" í 1. málsl. 14. mgr. fellur brott.
  2. Við bætist ný málsgrein, er verður 15. mgr., svohljóðandi:

    Landsnet skal senda nýja gjaldskrá til dreifiveitna a.m.k. 2 vikum áður en hún öðlast gildi.

2. gr.

Töluliður 1.1. í 23. gr. reglugerðarinnar orðist svo: Neysluveitur skulu uppfylla skilyrði tæknilegra tengiskilmála, sem samþykktir hafa verið af öllum dreifiveitum, staðfestir af ráðherra og birtir með auglýsingu í B-deild Stjórnartíðinda.

3. gr.

Reglugerð þessi, sem er sett samkvæmt 10. mgr. 12. gr. og 6. mgr. 16. gr. raforkulaga, tekur þegar gildi.

Iðnaðarráðuneytinu, 5. apríl 2006.

Valgerður Sverrisdóttir.

Kristján Skarphéðinsson.

Fyrirvari

Reglugerðir eru birtar í B-deild Stjórnartíðinda skv. 3. gr. laga um Stjórnartíðindi og Lögbirtingablað, nr. 15/2005, sbr. reglugerð um útgáfu Stjórnartíðinda nr. 958/2005.

Sé misræmi milli þess texta sem birtist hér í safninu og þess sem birtur er í útgáfu B-deildar Stjórnartíðinda skal sá síðarnefndi ráða.