Hoppa beint í aðalvalmynd
Stjórnarráðið  |  Ríkisstjórn  |  Réttarheimildir  |  Alþingi  |
 
Stjórnarráð Íslands    
  Forsíða  
 

  Reglugerðir

með breytingum
eftir ráðuneytum
eftir ártali
eftir köflum í safninu
brottfallnar
Leit
 

693/2006

REGLUGERÐ
um breytingu á reglugerð um áhafnir íslenskra
farþegaskipa og flutningaskipa, nr. 416/2003.

1. gr.
Við 2. gr. bætast tvær nýjar orðskýringar, sem verða 11. og 12. liður, svohljóðandi:
11.Tankflutningaskip; er skip sem er sérstaklega smíðað og notað til flutninga á miklu magni gastegunda eða vökva í farmgeymum. Til tankflutningaskipa teljast olíuflutningaskip, gasflutningaskip og efnaflutningaskip.
12.Ekjufarþegaskip; er farþegaskip sem búið er sérstökum ekjufarmrýmum eða „sérstökum farmrýmum“ eins og þau eru á hverjum tíma skilgreind í Alþjóðasamþykktinni um öryggi mannslífa á hafinu.


2. gr.
2. mgr. 4. gr. orðast svo:
Skilyrði skírteina.
Sérhver umsækjandi skírteinis skal fullnægja ákvæðum þessarar reglugerðar um aldur, menntun, siglingatíma og, ef við á, fræðslu um borð í skipum. Jafnframt skal hann fullnægja ákvæðum I. viðauka þessarar reglugerðar um sjón, heyrn og aðrar heilbrigðiskröfur. Þá skal umsækjandi hafa gengist undir námskeið eftir því sem nánar er greint í V. viðauka reglugerðarinnar um tiltekin skírteini og námskeið vegna þeirra atvinnuskírteina sem óskað er eftir að fá útgefin og vegna réttinda til að mega gegna sérstökum sérhæfðum störfum um borð í skipum.


3. gr.
Nýr viðauki, V. viðauki, bætist við reglugerðina og er meðfylgjandi.


4. gr.
Reglugerð þessi, sem sett er samkvæmt 17. gr. laga um áhafnir íslenskra farþegaskipa og flutningaskipa, nr. 76/2001, með síðari breytingum, öðlast þegar gildi og birtist til eftirbreytni öllum þeim sem hlut eiga að máli. Reglugerðin er sett til innleiðingar á tilskipun framkvæmdastjórnarinnar 2005/23/EB frá 8. mars 2005 um breytingu á tilskipun Evrópuþingsins og ráðsins 2001/25/EB um lágmarksþjálfun sjómanna, sem vísað er til í 56j lið í XIII. viðauka EES-samningsins eins og honum var breytt með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 150/2005 frá 3. desember 2005.


Samgönguráðuneytinu, 18. júlí 2006.

Sturla Böðvarsson.
Ragnhildur Hjaltadóttir.
B_nr_693_2006.doc
Stofnreglugerð:
416/2003 - Reglugerð um áhafnir íslenskra farþegaskipa og flutningaskipa.

 
Stjórnartíðindi - Sölvhólsgötu 7 - 150 Reykjavík Sími 545 9000
Bréfasími 552 7340 - Netfang: reglugerdir@irr.is
Prentvænt