REGLUGERÐ
um útibú og
umboðsskrifstofu lánastofnunar
með staðfestu í
öðru ríki
innan Evrópska
efnahagssvæðisins.
1. gr.
Í reglugerð þessari merkir hugtakið lánastofnun
viðskiptabanka og sparisjóð, sbr. lög nr. 43/ 1993, um viðskiptabanka og
sparisjóði, og aðra lánastofnun, sbr. lög nr. 123/ 1993, um lánastofnanir aðrar
en viðskiptabanka og sparisjóði.
Reglugerð þessi gildir um starfsemi útibúa erlendra
viðskiptabanka, sparisjóða og annarra lánastofnana á Íslandi sem hafa staðfestu
í öðru ríki innan Evrópska efnahagssvæðisins og hlotið hafa starfsleyfi
lögbærra yfirvalda í því ríki. Hún gildir einnig um umboðsskrifstofur eftir því
sem við á.
2. gr.
Stjórnandi útibús skal fullnægja skilyrðum 38. gr. laga nr.
43/1993, um viðskiptabanka og sparisjóði, auk þess að vera mæltur á íslenska
tungu.
3. gr.
Bankaeftirlit Seðlabanka Íslands hefur með höndum eftirlit
með útibúum sem starfa samkvæmt þessari reglugerð í samræmi við ákvæði laga um
Seðlabanka Íslands, laga um viðskiptabanka og sparisjóði og eftir atvikum
annarra starfsheimilda sinna.
4. gr.
Útibú sem starfa hér á landi samkvæmt reglugerð þessari
skulu hlíta sömu lögum og reglum og lánastofnanir með höfuðstöðvar á Íslandi,
svo sem reglum um bindingu og laust fé og upplýsingagjöf til íslenskra
stjórnvalda samkvæmt gildandi lögum og reglum á hverjum tíma.
5. gr.
Útibú sem starfa hér á landi samkvæmt reglugerð þessari
skulu birta eftirtalin gögn og upplýsingar:
1. Vegna þeirrar lánastofnunar sem útibúið er hluti af:
a. Ársreikning ásamt ársskýrslu.
b. Samstæðureikning ásamt samstæðuársskýrslu.
c. Álit þess aðila sem ber ábyrgð á endurskoðun árs- og
samstæðureiknings.
2. Vegna útibúsins sjálfs:
a. Tekjur og gjöld útibús, sem rekja má til atriða 1, 3, 4,
6, 7, 8 og 15 í 27. gr. eða atriða 4 og 9 í lið A og atriða 1-4 og 7 í lið B í
28. gr. tilskipunar 86/635/EBE um ársreikninga og samstæðureikninga banka og
annarra fjármálastofnana, sem birt er í sérriti EES-gerða nr. 36, sbr.
auglýsingu í C-deild Stjórnartíðinda nr. 31/1993.
b. Meðalfjölda starfsmanna útibús.
c. Heildarkröfur og skuldbindingar tengdar útibúi,
sundurliðaðar annars vegar í þær sem varða lánastofnanir og hins vegar þær sem
varða aðra viðskiptavini, ásamt heildarfjárhæð slíkra krafna og skuldbindinga
tilgreindra í íslenskum krónum.
d. Heildareignir og fjárhæðir er samsvara atriðum 2-6 um
eignir, 1-3 um skuldbindingar og 1-2 um liði utan efnahagsreiknings eins og
skilgreint er í 4. gr. og hliðstæðum greinum fyrrgreindrar tilskipunar
86/635/EBE og - í þeim tilvikum sem greinir í atriðum 2, 5 og 6 um eignir -
sundurliðun verðbréfa eftir því hvort þau hafi verið talin til áhættufjármuna
eða ekki samkvæmt 35. gr. fyrrgreindrar tilskipunar 86/635/EBE.
Upplýsingar samkvæmt 2. tölul. 1. mgr. þessarar greinar
skulu staðfestar af endurskoðanda, sem öðlast hefur löggildingu samkvæmt
íslenskum lögum, um réttmæti þeirra og hvort þær samræmist ársreikningnum.
Senda skal upplýsingarnar til bankaeftirlitsins innan tíu daga frá áritun en í
síðasta lagi þremur mánuðum eftir lok reikningsárs. Gögn samkvæmt 1. tölul. 1.
mgr. skulu send bankaeftirlitinu innan fjögurra mánaða frá lokum reikningsárs.
Bankaeftirlitið getur krafist þess að gögn og upplýsingar
samkvæmt þessari grein séu birt á íslensku í þýðingu löggilts skjalaþýðanda.
6. gr.
Erlend lánastofnun sem opnar umboðsskrifstofu hér á landi
skal tilkynna það til viðskiptaráðherra í síðasta lagi er skrifstofan er opnuð.
Í tilkynningunni skulu vera upplýsingar um heimilisfang umboðsskrifstofunnar og
nafn stjórnanda hennar.
Umboðsskrifstofu er heimilt að miðla upplýsingum og veita
ráðgjöf hér á landi á vegum erlendrar lánastofnunar. Umboðsskrifstofu er
óheimilt að taka við innlánum, veita útlán, stunda verðbréfaviðskipti eða aðra
þá starfsemi sem greinir í 44. gr. laga um viðskiptabanka og sparisjóði.
7. gr.
Reglugerð þessi, sem sett er samkvæmt heimild í 1. mgr. 85.
gr. laga nr. 43/1993, um viðskiptabanka og sparisjóði, sbr. 13. gr. laga nr.
123/1993, um lánastofnanir aðrar en viðskiptabanka og sparisjóði, öðlast þegar
gildi.
Viðskiptaráðuneytið,
25. maí 1994.
F. h. r.
Þorkell Helgason.
Finnur
Sveinbjörnsson.
Word útgáfa af reglugerð