Fara beint í efnið

Prentað þann 18. apríl 2024

Breytingareglugerð

307/2016

Reglugerð um breytingu á reglugerð nr. 260/2012 um úðabrúsa.

Birta efnisyfirlit

1. gr.

Á eftir orðunum "er reglugerð þessi gildir um" í 3. mgr. 1. gr. kemur: þar á meðal um merkingar.

2. gr.

d. liður 1. mgr. 3. gr. orðast svo: Upplýsingar skv. lið 2.2 í viðauka reglugerðar þessarar.

3. gr.

Á eftir lið 1.7 í viðauka reglugerðarinnar bætast liðir 1.7.1 og 1.7.2, svohljóðandi:

1.7.1. Efni.

"Efni" er frumefni og sambönd þeirra, bæði náttúruleg og manngerð, þ.m.t. aukaefni sem eru nauðsynleg til að viðhalda stöðugleika efnisins, og óhreinindi sem verða til í vinnslu, en þó ekki leysiefni sem skilja má frá án þess að það hafi áhrif á stöðugleika efnisins eða breyti samsetningu þess, sbr. 7. tölul. 3. gr. efnalaga, nr. 61/2013, með síðari breytingum.

1.7.2. Efnablanda.

"Efnablanda" er blanda eða lausn tveggja eða fleiri efna í föstu, fljótandi eða loftkenndu formi, sbr. 5. tölul. 3. gr. efnalaga, nr. 61/2013, með síðari breytingum.

4. gr.

Eftirfarandi breytingar verða á 2. lið viðauka reglugerðarinnar:

a) Liður 2.2 orðast svo:

2.2. Áletranir.

Með fyrirvara um ákvæði efnalaga, nr. 61/2013, með síðari breytingum, skulu eftirfarandi áletranir vera á öllum úðabrúsum með skýrum, læsilegum og óafmáanlegum stöfum:

  1. Fyrir allar tegundir innihalds:

    1. Hættusetningin H229: "Þrýstiílát: Getur sprungið við upphitun.".
    2. Varnaðarsetningarnar V210 og V251, sem kveðið er á um í töflu 6.2 í 1. hluta IV. viðauka við reglugerð (EB) nr. 1272/2008. Reglugerðin er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 52 frá 20. september 2012, 2012/EES/52/01, bls. 1-1355.
    3. Varnaðarsetningarnar V410 og V412, sem kveðið er á um í töflu 6.4 í 1. hluta IV. viðauka við reglugerð (EB) nr. 1272/2008. Reglugerðin er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 52 frá 20. september 2012, 2012/EES/52/01, bls. 1-1355.
    4. Varnaðarsetningin V102, sem kveðið er á um í töflu 6.1 í 1. hluta IV. viðauka við reglugerð (EB) nr. 1272/2008, þegar úðabrúsinn er neysluvara. Reglugerðin er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 52 frá 20. september 2012, 2012/EES/52/01, bls. 1-1355.
    5. Hvers konar viðbótarvarúðarráðstafanir, sem vekja athygli neytenda á sérstakri hættu, sem varan hefur í för með sér; ef úðabrúsa fylgja sérstakar notkunarleiðbeiningar skulu slíkar varúðarráðstafanir einnig koma fram í þeim.
  2. Ef úðaefnið flokkast sem "óeldfimt", samkvæmt viðmiðunum í lið 1.9, er viðvörunarorðið "varúð".
  3. Ef úðaefnið flokkast sem "eldfimt", samkvæmt viðmiðunum í lið 1.9, er viðvörunarorðið "varúð" og aðrar áletranir samkvæmt "2. flokki fyrir eldfim úðaefni", sem kveðið er á um í töflu 2.3.2 í I. viðauka við reglugerð (EB) nr. 1272/2008. Reglugerðin er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 52 frá 20. september 2012, 2012/EES/52/01, bls. 1-1355.
  4. Ef úðaefnið flokkast sem "afar eldfimt", samkvæmt viðmiðunum í lið 1.9, er viðvörunarorðið "hætta" og aðrar áletranir samkvæmt "1. flokki fyrir eldfim úðaefni", sem kveðið er á um í töflu 2.3.2 í I. viðauka við reglugerð (EB) nr. 1272/2008. Reglugerðin er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 52 frá 20. september 2012, 2012/EES/52/01, bls. 1-1355.

b) Liður 2.3 orðast svo:

2.3. Rúmmál vökva.

Rúmmál vökva við 50°C má ekki fara yfir 90% af nettórúmtaki.

c) Liður 2.4 fellur brott.

5. gr.

Reglugerð þessi er sett samkvæmt heimild í 3. mgr. 3. gr., 34., 38. og 47. gr. laga nr. 46/1980, um aðbúnað, hollustuhætti og öryggi á vinnustöðum, með síðari breytingum, að fenginni umsögn stjórnar Vinnueftirlits ríkisins til innleiðingar á tilskipun 2013/10/ESB um breytingu á tilskipun ráðsins 75/324/EBE um samræmingu laga aðildarríkjanna varðandi úðabrúsa til þess að aðlaga ákvæði hennar um merkingu að reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (EB) nr. 1272/2008 um flokkun, merkingu og pökkun efna og blandna, sem vísað er til í 1. tölul. VIII. kafla II. viðauka samningsins um Evrópska efnahagssvæðið eins og honum var breytt með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar, nr. 120/2014.

6. gr.

Reglugerð þessi öðlast þegar gildi.

Velferðarráðuneytinu, 18. mars 2016.

Eygló Harðardóttir
félags- og húsnæðismálaráðherra.

Hanna Sigr. Gunnsteinsdóttir.

Fyrirvari

Reglugerðir eru birtar í B-deild Stjórnartíðinda skv. 3. gr. laga um Stjórnartíðindi og Lögbirtingablað, nr. 15/2005, sbr. reglugerð um útgáfu Stjórnartíðinda nr. 958/2005.

Sé misræmi milli þess texta sem birtist hér í safninu og þess sem birtur er í útgáfu B-deildar Stjórnartíðinda skal sá síðarnefndi ráða.