|
|
303/2009
REGLUGERÐ
um (1.) breytingu á reglugerð nr. 1254/2008 um heilbrigðiskröfur
vegna lagareldisdýra og afurða þeirra og um forvarnir
og varnir gegn tilteknum sjúkdómum í lagardýrum.
1. gr.
Skráðir sjúkdómar. IV. viðauka í reglugerð nr. 1254/2008 er breytt í samræmi við viðauka þessarar reglugerðar.
2. gr.
Gildistaka. Reglugerð þessi er sett til innleiðingar á tilskipun 2008/53/EB að því er varðar vorveiru í vatnakarpa (SVC). Reglugerð þessi er sett með heimild í lögum nr. 55/1998, um meðferð, vinnslu og dreifingu sjávarafurða, lögum nr. 71/2008, um fiskeldi, lögum nr. 54/1990, um innflutning dýra, lögum nr. 25/1993, um dýrasjúkdóma og varnir gegn þeim og lögum nr. 60/2006, um varnir gegn fisksjúkdómum. Reglugerðin öðlast þegar gildi.
Sjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneytinu, 9. mars 2009.
F. h. r.
Sigurgeir Þorgeirsson.
Baldur P. Erlingsson.
VIÐAUKI
II. hluti, IV. viðauka reglugerðar nr. 1254/2008 verður svohljóðandi:
II. HLUTI
Skráðir sjúkdómar
FRAMANDI SJÚKDÓMAR |
 | SJÚKDÓMUR | SMITNÆMAR TEGUNDIR |
| FISKUR | Blóðmyndandi drep, EHN-veiki (Epizootic haematopoietic necrosis) | Regnbogasilungur (Oncorhynchus mykiss) og vatnaborri (Perca fluviatilis) |
 | Húðsveppadrep
(Epizootic ulcerative syndrome) | Ættkvísl: Catla, Channa, Labeo, Mastacembelus, Mugil, Puntius og Trichogaster |
| LINDÝR | Sýking af völdum Bonamia exitiosa (Bonamia exitiosa) | Ostrea angasi og O. chilensis |
 | Perkinsusveiki
(Perkinsus marinus) | Risaostra (Crassostrea gigas) og meyjarostra (C. virginica) |
 | Mycrocytosveiki
(Microcytos mackini) | Risaostra (Crassostrea gigas), meyjarostra (C. virginica), Ostrea conchaphila og O. edulis |
| KRABBADÝR | Rauðhali
(Taura syndrome) | Penaeus setiferus, P. stylirostris og P. vannamei |
 | Gulhöfðaveiki
(Yellowhead disease) | Indíánarækja (Penaeus aztecus), P. duorarum, japönsk rækja (P. japonicus), tígrisrækja (P. monodon), P. setiferus, P. stylirostris og P. vannamei. |
 |
SJÚKDÓMAR SEM ERU EKKI FRAMANDI |
 | SJÚKDÓMUR | SMITNÆMAR TEGUNDIR |
| FISKUR | Veirublæði
(VHS) | Síld (Clupea spp.), tjarnasíld (Coregonussp.), gedda (Esox lucius), ýsa (Gadusaeglefinus), kyrrahafsþorskur (G. macrocephalus), þorskur (G. morhua), kyrrahafslax (Oncorhynchus spp.), regnbogasilungur (O. mykiss), keilubróðir (Onos mustelus), urriði (Salmo trutta), sandhverfa (Scophthalmus maximus), tannsíld (Sprattussprattus) og harri (Thymallus thymallus) |
 | Iðradrep
(IHN) | Hundlax (Oncorhynchus keta), silfurlax (O. kisutch), O. masou, regnbogasilungur (O. mykiss), rauðlax (O. nerka), hnúðlax (O. rhodurus), kóngalax (O. tshawytscha) og lax (Salmo salar) |
 | Skjónakarpaherpesveiki
(Koi herpes virus disease) | Vatnakarpi og koi-karpi (Cyprinus carpio) |
 | Blóðþorri
(ISA) | Regnbogasilungur (Oncorhynchus mykiss), lax (Salmo salar) og silungur (S. trutta) |
| LINDÝR | Marteilíuveiki
(Marteilia refringens) | Ostrea angasi, O. chilensis, O. edulis, O. puelchana, kræklingur (Mytilus edulis) og miðjarðarhafskræklingur (M. galloprovincialis) |
 | Ostruveiki
(Bonamia ostreae) | Ostrea angasi, O. chilensis, O. conchaphila, O. denselammellosa, O. edulis og O. puelchana |
| KRABBADÝR | Hvítblettaveikin | Öll tífætt krabbadýr (ættbálkurinn Decapoda) |

Stofnreglugerð: 1254/2008 - Reglugerð um heilbrigðiskröfur vegna lagareldisdýra og afurða þeirra og um forvarnir og varnir gegn tilteknum sjúkdómum í lagardýrum.
|