Sjávarútvegsráðuneyti

303/1995

Reglugerð um úthafsrækjuveiðisvæði og notkun seiðaskilju við rækjuveiðar. - Brottfallin

Reglugerð um úthafsrækjuveiðisvæði og notkun seiðaskilju við rækjuveiðar.

1. gr.

Skipum, sem heimild hafa til veiða á úthafsrækju, er heimilt að stunda veiðar á rækju utan viðmiðunarlínu sbr. lög nr. 81/1976, um veiðar í fiskveiðilandhelgi Íslands, með eftirfarandi takmörkunum:

Fyrir Suðurlandi eru allar rækjuveiðar bannaðar á svæði milli 14Infinity30'V og 23Infinity00'V allt árið.

Við Eldey eru rækjuveiðar bannaðar á svæði, sem að sunnan markast af línu, sem dregin er réttvísandi 245Infinity frá Reykjanesaukavita. Að vestan markast svæðið af 23Infinity40'V og að norðan af 64Infinity05'N.

Fyrir Vesturlandi austan 25Infinity30'V milli 64InfinityN og 65Infinity30'N eru úthafsrækjuveiðar bannaðar öllum skipum, sem eru 39 metrar að mestu lengd eða lengri og ennfremur skipum með 1100 hestafla aðalvél eða stærri. Dragi tvö veiðiskip saman rækjuvörpu, skal miða við samanlagða mestu lengd þeirra.

Fyrir Norðurlandi, á svæði milli lína, sem dregnar eru réttvísandi norður frá Horni og Rauðanúp, eru úthafsrækjuveiðar bannaðar öllum skipum, sem eru 200 brúttórúmlestir og stærri, sunnan 66Infinity40'N, á tímabilinu frá og með 15. maí til og með 31. október ár hvert.

2. gr.

Þrátt fyrir 1. gr. eru rækjuveiðar heimilar á svæði í Héraðsflóa inn að línu, sem dregin er frá Bjarnareyjarvita í Ósfles. Að norðan markast svæðið af línu, sem dregin er réttvísandi austnorðaustur frá Bjarnareyjarvita og að sunnan af línu, sem dregin er réttvísandi austnorðaustur frá Ósfles.

Þá er og bátum, 100 rúmlestir og minni, heimilar rækjuveiðar á utanverðum Húnaflóa frá og með 15. ágúst til og með 31. október ár hvert, utan línu sem dregin er milli eftirgreindra staða: Selskers, Gjögurs, Kálfshamars, Rifsness og Ásbúðarrifs.

3. gr.

Frá og með 15. júní 1995 er skylt við rækjuveiðar á skuttogurum, sem eru 40 metrar að mestu lengd eða lengri, að nota seiðaskilju við allar rækjuveiðar utan viðmiðunarlínu, sbr. lög nr. 31/1976, og á svæðum, sem skilgreind eru í 1. og 2. mgr. 2. gr. reglugerðar þessarar. Skuttogarar teljast hér togskip, sem taka vörpuna inn um skutrennu að aftan og losa afla úr henni á millidekk eða vinnsludekk.

Frá og með 15. júlí 1995 er skylt við rækjuveiðar á öllum veiðiskipum að nota seiðaskilju á svæði, sem skilgreint er í 1. mgr. þessarar greinar.

Seiðaskilja skal þannig gerð, að bil milli rimla skal mest vera 22 mm. Skiljunni skal komið fyrir í belg vörpunnar með u.þ.b. 45-50 gráðu halla þannig að neðri kantur skiljunnar nái lengra fram. Skiljan skal fylla út í belginn og skulu allir jaðrar hennar festir við netið í belgnum. Á efra byrði vörpunnar fyrir framan skiljuna skal vera gat þar sem fiskur skilst út.

4. gr.

Brot á reglugerð þessari varða viðurlögum skv. lögum nr. 81, 31. maí 1976, um veiðar í fiskveiðilandhelgi Íslands. Með mál út af brotum skal farið að hætti opinberra mála.

5. gr.

Reglugerð þessi er sett samkvæmt ákvæðum laga nr. 81, 31. maí 1976, um veiðar í fiskveiðilandhelgi Íslands til þess að öðlast gildi 1. júní 1995 og birtist til eftirbreytni öllum þeim, sem hlut eiga að máli. Jafnframt er frá sama tíma felld úr gildi reglugerð nr. 612, 25. nóvember 1994, um veiðisvæði við úthafsrækjuveiðar. Þá fellur þann 15. júlí 1995 úr gildi reglugerð nr. 73, 3. febrúar 1995, um notkun seiðaskilju og bann við rækjuveiðum fyrir Norðurlandi og reglugerð nr. 269, 25. maí 1994, um bann við veiðum í Breiðafirði.

Ákvæði til bráðabirgða.

Þrátt fyrir ákvæði 1. og 2. mgr. 3. gr. er ekki skylt að nota seiðaskilju við rækjuveiðar á svæði fyrir Vestur- og Suðvesturlandi sunnan og vestan línu, sem þannig er dregin:

Frá punkti 65Infinity00'N - 26Infinity32'V í 270Infinity réttvísandi.

Frá punkti 65Infinity00'N - 26Infinity32'V um eftirgreinda punkta:
64Infinity41'N - 25Infinity18'V
65Infinity04'N - 24Infinity01'V
64Infinity56'N - 24Infinity02'V
64Infinity48'N - 24Infinity16'V
64Infinity32'N - 24Infinity22'V
64Infinity22'N - 24Infinity52'V
64Infinity08'N - 24Infinity58'V
64Infinity28'N - 23Infinity54'V
64Infinity18'N - 23Infinity44'V
63Infinity28'N - 24Infinity34'V
63Infinity28'N - 23Infinity00'V og þaðan í réttvísandi suður.

Ákvæði þetta til bráðabirgða gildir til 1. janúar 1996. Heimilt er að setja sérstakar reglugerðir, sem áskilja notkun á seiðaskilju innan svæðisins.

Sjávarútvegsráðuneytið, 23. maí 1995.
Þorsteinn Pálsson.
Árni Kolbeinsson.


Þetta vefsvæði byggir á Eplica