Landbúnaðarráðuneyti

302/2004

Reglugerð um (13.) breytingu á reglugerð nr. 340/2001 um eftirlit með fóðri. - Brottfallin

1. gr.

1. ml. 1. mgr. 27. gr. orðist svo:
Til að standa straum af kostnaði við framkvæmd aðfangaeftirlitsins skal innheimta eftirlitsgjald sem skal vera 0,9% af innflutningsverði (c.i.f.) fóðurvöru að undanskildu fiskimjöli og lýsi en þar skal gjaldið vera 0,17% af innflutningsverði (c.i.f.), sem innheimt skal við tollafgreiðslu vörunnar og 0,9% af söluverði innlendrar fóðurvöru að undanskildu fiskimjöli og lýsi en þar skal gjaldið vera 0,17% (án vsk) af söluverði, sem innheimt skal tvisvar á ári samkvæmt söluskýrslum framleiðenda, á eyðublöðum aðfangaeftirlitsins.


2. gr.

Reglugerð þessi er sett samkvæmt heimild í lögum nr. 22/1994 um eftirlit með fóðri, áburði og sáðvöru og tekur þegar gildi.


Landbúnaðarráðuneytinu, 1. apríl 2004.

Guðni Ágústsson.
Ingibjörg Ólöf Vilhjálmsdóttir.


Þetta vefsvæði byggir á Eplica