|
|
480/2005
REGLUGERÐ
um (4.) breytingu á reglugerð nr. 233/2001 um ávana- og fíkniefni
og önnur eftirlitsskyld efni.
1. gr. Í fylgiskjali II við reglugerðina verða eftirfarandi breytingar.
| Efni | Annað nafn | D I-II | Hámark án innflutningsleyfis |
| Acetic anhydride | Ediksýruanhýdríð | D I | 100 l |
| Potassium permanganate | Kalíumpermanganat | D I | 100 kg |
2. gr. Reglugerð þessi, sem sett er með heimild í 12. gr. og 49. gr. lyfjalaga nr. 93/1994 með síðari breytingum og 2. gr., 3. gr. og 4. gr. laga um ávana- og fíkniefni nr. 65/1974 með síðari breytingum, öðlast þegar gildi.
Heilbrigðis- og tryggingamálaráðuneytinu, 25. maí 2005.
Jón Kristjánsson. Ragnheiður Haraldsdóttir.
Stofnreglugerð: 233/2001 - Reglugerð um ávana- og fíkniefni og önnur eftirlitsskyld efni.
|