Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneyti

299/2014

Reglugerð um (1.) breytingu á reglugerð nr. 285/2014 um veiðieftirlit á samningssvæði Norðaustur-Atlantshafsfiskveiðinefndarinnar (NEAFC). - Brottfallin

1. gr.

2. ml. 2. mgr. 6. gr. reglugerðarinnar orðast svo:

Þar til búnaðurinn verður kominn í lag skal senda á annan hátt upplýsingar um stað­setningu, stefnu og hraða skipsins á 4 klukkustunda fresti til eftirlitsstöðvarinnar.

2. gr.

Reglugerð þessi er sett samkvæmt lögum nr. 151/1996, um fiskveiðar utan lögsögu Íslands, með síðari breytingum og lögum nr. 116/2006, um stjórn fiskveiða, með síðari breytingum. Reglugerðin öðlast þegar gildi.

Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytinu, 28. mars 2014.

F. h. sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra,

Kristján Freyr Helgason.

Baldur P. Erlingsson.


Þetta vefsvæði byggir á Eplica