Fara beint í efnið

Prentað þann 29. mars 2024

Breytingareglugerð

294/2013

Reglugerð um breytingu á reglugerð nr. 579/2011 um gildistöku reglugerðar framkvæmdastjórnarinnar (EB) nr. 245/2009 er varðar visthönnun vöru sem notar orku.

1. gr.

Við 1. gr. bætist ný málsgrein svohljóðandi:

Eftirfarandi reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (EB), sem vísað er til í 34. tölul. IV. viðauka við samninginn um Evrópska efnahagssvæðið, eins og honum var breytt með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 67/2011, frá 1. júlí 2011, um breytingu á II. viðauka (Tæknilegar reglugerðir, staðlar, prófanir og vottun) og IV. viðauka (Orka) við EES-samninginn, skal öðlast gildi hér á landi með þeim breytingum og viðbótum sem leiðir af IV. kafla II. viðauka og IV. viðauka samningsins, bókun 1 um altæka aðlögun og öðrum ákvæðum samningsins:

Reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) nr. 347/2010 frá 21. apríl 2010 um breytingu á reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (EB) nr. 245/2009 að því er varðar kröfur varðandi visthönnun flúrpera án innbyggðrar straumfestu, háþrýstra úrhleðslupera og varðandi straumfestu og lampa fyrir slíkar ljósaperur.

2. gr.

Við 2. gr. bætist ný málsgrein svohljóðandi:

Reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) nr. 347/2010 er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 7/2012, 2. febrúar 2012, bls. 324. Ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 1/2011 er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins, nr. 19/2011, 7. apríl 2011, bls. 1.

3. gr.

Reglugerð þessi, sem sett er með stoð í 12. gr. laga nr. 42/2009, um visthönnun vöru sem notar orku ásamt síðari breytingum, öðlast þegar gildi.

Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytinu, 26. mars 2013.

F. h. r.

Kristján Skarphéðinsson.

Ólafur Egill Jónsson.

Fyrirvari

Reglugerðir eru birtar í B-deild Stjórnartíðinda skv. 3. gr. laga um Stjórnartíðindi og Lögbirtingablað, nr. 15/2005, sbr. reglugerð um útgáfu Stjórnartíðinda nr. 958/2005.

Sé misræmi milli þess texta sem birtist hér í safninu og þess sem birtur er í útgáfu B-deildar Stjórnartíðinda skal sá síðarnefndi ráða.