|
|
291/2007
REGLUGERÐ
um breyting á reglugerð um útlendinga,
nr. 53 23. janúar 2003, með síðari breytingum.
1. gr. Eftirfarandi breytingar verða á viðauka 3, I. kafla:
- Orðið Bólivía fellur brott.
- Við orðið „Brúnei“ bætist orðið „Darússalam“.
- Í stað orðanna „Stóra-Bretland, þ.m.t.: Bermúda, Turks- og Caicos-eyjar, Cayman-eyjar, Anguilla, Montserrat, Bresku Jómfrúreyjar, St. Helena, Falklandseyjar og Gíbraltar“ kemur: Stóra-Bretland, þ.m.t. handhafar vegabréfa fyrir „British Nationals (Overseas)“.
2. gr. Eftirfarandi breytingar verða á viðauka 3, II. kafla:
- 10. tl. orðist svo: Viðurkenndir flóttamenn og þeir sem eru án ríkisfangs, sem búsettir eru í Evrópusambandsríki og eru handhafar ferðaskilríkja sem gefin eru út af því ríki.
- Við bætist nýr töluliður, númer 13, er orðast svo:
| 13. | Skólanemendur, sem þurfa að hafa vegabréfsáritun til að mega koma til landsins en búsettir eru í Evrópusambandsríki sem beitir Evrópuráðsákvörðun 94/795/JHA frá 30. nóvember 1994, þegar þeir eru á skólaferðalagi með kennara frá skólanum. |
3. gr. Reglugerð þessi sem sett er með heimild í 58. gr. laga um útlendinga nr. 96 15. maí 2002 öðlast gildi þegar í stað.
Dóms- og kirkjumálaráðuneytinu, 30. mars 2007.
Björn Bjarnason. Bryndís Helgadóttir.

Stofnreglugerð: 053/2003 - Reglugerð um útlendinga.
|