Reglugerð
um veiðikort
og hæfnispróf veiðimanna.
1. gr.
Í reglugerð þessari merkir:
Villt dýr: allir fuglar og spendýr, önnur en selir, hvalir,
gæludýr og bústofn. Dýr, sem er handsamað og haft í haldi, telst villt.
Veiðar: að handsama eða drepa villt dýr. Þegar um er að
ræða fuglaveiðar er einnig átt við eggjatöku.
Tjón af völdum villtra dýra: fjárhagslegt tjón sem
einstaklingar, fyrirtæki eða aðrir verða fyrir, heilsufarslegt tjón fólks eða
búfénaðar og tjón á náttúru landsins.
2. gr.
Allir sem stunda veiðar á villtum dýrum,
öðrum en rottum og músum, sbr. lög nr. 64/1994, skulu afla sér veiðikorts.
Veiðikort þarf ekki til eggjatöku.
Embætti veiðistjóra annast útgáfu veiðikorta.
3. gr.
Veiðikort veitir handhafa þess rétt til að
stunda veiðar á villtum dyrum á Íslandi og í íslenskri efnahagslögsögu.
4. gr.
Gefa skal út þrenns konar veiðikort;
almennt veiðikort, hlunnindakort fyrir þá sem eingöngu ætla að nýta hlunnindi
sem þeir hafa rétt á að nýta (sbr. 18. gr. laga nr. 64/1994) eða til að verjast
tjóni af völdum villtra dýra, og almennt veiði- og hlunnindakort, enda eigi
korthafi rétt á almennu veiðikorti samkvæmt ákvæðum 9. og 11 gr. þessarar
reglugerðar.
Einungis handhafar veiðikorta mega stunda skotveiðar, enda
hafi þeir skotvopnaleyfi hér á landi.
Veiðikort skal veiðimaður bera á sér á veiðum, ásamt
fullnægjandi persónuskilríkjum.
Landeigandi sem veitir heimild til veiða á sínu landi skal
ganga úr skugga um að veiðimaður hafi gilt veiðikort.
5. gr.
Ábúendur hlunnindajarða og aðrir rétthafar
hefðbundinna hlunninda sem nýta vilja hlunnindi býlanna eða verjast tjóni af
völdum villtra dýra geta einir sótt um hlunnindakort eða almennt veiði- og
hlunnindakort. Hvert hlunnindakort skal gefið út á nafn eins ábúenda lögbýlis
eða rétthafa hlunninda og er hann handhafi kortsins. Ef hlunnindum lögbýla
hefur verið skipt formlega skal hver rétthafi hlunninda sækja um hlunnindakort.
Hlunnindakort gilda fyrir eiganda eða ábúanda og það fólk
sem honum er nauðsynlegt að hafa með sér við nýtingu hlunninda og verjast tjóni
af völdum villtra dýra. Handhafi hlunnindakorts er ábyrgur fyrir framkvæmd
veiðanna og að sjá um að útfylla veiðiskýrslu.
Sé hlunnindaréttur í eigu sveitarfélags, hlutafélags eða
félagasamtaka þarf hver sá sem nýtir hlunnindi að hafa hlunnindakort og skila
veiðiskýrslu.
Þegar hlunnindaréttur er í eigu sveitarfélags er
veiðistjóra heimilt með sérstökum samningi að fela sveitarstjórn útgáfu
hlunnindakorta sbr. 4. gr. til þeirra sem hlunnindin nýta, innheimtu gjalda
fyrir hlunnindakort skv. 6. gr. og skil á veiðiskýrslum skv. 7. og 8. grein.
Við útgáfu hlunnindakorts skal ávallt liggja fyrir
staðfesting á rétti umsækjanda til hlunnindanýtingar og skal eigandi afla
staðfestingar viðkomandi sveitarstjórnar eða sýslumanns á rétti sínum.
Gjald fyrir hlunnindakort og almennt veiði- og
hlunnindakort skal vera hið sama og fyrir almennt veiðikort og um endurnýjun
þess gilda sömu reglur.
6. gr.
Veiðikort gildir að jafnaði í eitt ár í
senn frá 1. apríl ár hvert.
Árlegt gjald fyrir veiðikort skal vera fimmtán hundruð
krónur. Gjald þetta skal taka breytingum í samræmi við framfærsluvísitölu
Hagstofu Íslands eins og hún er 1. janúar ár hvert, sbr. lög nr. 5/1984.
Gjald fyrir veiðikort skal renna í sjóð sem notaður skal
til að greiða fyrir umsýslu á veiðikortum, rannsókna og stýringar á stofnum
villtra dýra. Umhverfisráðherra ákveður hvernig sjóðnum skuli varið.
7. gr.
Veiðistjóraembættið leggur til eyðublöð
fyrir veiðiskýrslu og umsókn um veiðikort sem send skulu í upphafi hvers árs
til allra handhafa veiðikorta í landinu.
Í umsókn um veiðikort skal skrá nafn handhafa, kennitölu
hans, heimilisfang og tegundir dýra sem handhafi óskar eftir að fá heimild til
að veiða.
Sá sem óskar eftir að fá veiðikort sitt endurnýjað útfyllir
og skrifar undir umsókn þess efnis, fyllir út veiðiskýrslu og sendir hvort
tveggja til veiðistjóraembættisins. Þar er veiðiskýrslan skilin frá umsókninni
og veiðimanni sent nýtt kort gegn póstkröfu.
Veiðistjóraembætti skal óheimilt, án leyfis korthafa, að
skrá veiði þannig að hægt sé að rekja saman nafn korthafa og veiðiskýrslu hans.
Í veiðikorti skal koma fram nafn handhafa, kennitala hans,
heimilisfang og þær tegundir dýra sem kortið veitir heimild til að veiða.
8. gr.
Veiðimaður skal skrá alla veiði sína á
veiðiárinu og skila veiðiskýrslu árlega á þar til gerðu eyðublaði. Veiðiár
telst vera frá 1. janúar til 31. desember.
Skilyrði fyrir endurnýjun veiðikorts er að veiðiskýrslu um
veiði síðasta árs sé skilað með umsókn um endurnýjun á veiðikorti.
Handahafa veiðikorta ber að skila veiðiskýrslu þótt ekki sé
óskað endurnýjunar á veiðikorti.
9. gr.
Rétt til að fá veiðikort öðlast menn sem
hafa náð fullnægjandi árangri á hæfnisprófi fyrir verðandi veiðimenn sem
umhverfisráðuneytið lætur halda árlega eða oftar í samvinnu við veiðistjóra.
Á hæfnisprófi (veiðiprófi) skal m.a. könnuð þekking manna á
undirstöðuatriðum í stofnvistfræði, náttúruvernd, dýravernd, greiningu fugla og
spendýra, hlunnindanýtingu, veiðisiðfræði, þekkingu manna á meðferð veiðitækja,
sem og í lögum og reglum um ofangreind atriði. Umhverfisráðuneytið lætur útbúa
námsefni fyrir hæfnispróf í samvinnu við veiðistjóra.
Umhverfisráðuneytið gengst fyrir námsskeiðum eða felur
öðrum framkvæmd og umsjón hæfnisprófa og námskeiða. Heimilt er að fella þessa
fræðslu inn í námskeið fyrir umsækjendur um byssuleyfi með samvinnu við
lögregluyfirvöld.
Líði 10 ár án þess að veiðikort sé endurnýjað þarf
umsækjandi að gangast undir hæfnispróf að nýju og ná þar fullnægjandi árangri
áður en nýtt veiðikort er gefið út.
10. gr.
Erlendir ríkisborgarar, sem ekki hafa
lögheimili hér á landi, geta fengið veiðikort sem gildir skemur en eitt ár og
stundað veiðar á eignarlöndum að uppfylltum eftirtöldum skilyrðum:
i. Viðkomandi hafi sambænleg
réttindi til veiða í sínu heimalandi og krafist er hér að mati veiðistjóra, svo
sem veiðikort eða heimild til veiða.
ii. Viðkomandi hafi
fullnægjandi þekkingu á þeim reglum sem gilda hér á landi um veiðar á villtum
dýrum.
Þeir sem sækja um veiðikort samkvæmt 1. mgr. skulu sýna
fram á að þeir uppfylli skilyrði laga um skotvopn, sprengiefni og skotelda nr.
46/1977 með áorðnum breytingum og reglugerða settum samkvæmt þeim áður en þeir
fá veiðikort afhent.
Fylgi útgáfu veiðikorta skv. þessari grein aukin vinna
fyrir veiðistjóra er honum heimilt að taka gjald fyrir hana sem nemur kr. 3.500
á klukkustund.
Veiðistjóri getur telji hann ástæðu til sett sem skilyrði
að handhafi veiðikorts skv. þessari grein sé í fylgd manns sem hefur gilt
veiðikort og lögheimili hér á landi.
Fyrir brottför af landinu skal handhafi veiðikorts samkvæmt
1. mgr. skila veiðiskýrslu, óháð því hver veiði hans var.
11. gr.
Brot gegn reglugerð þessari varða sektum,
varðhaldi eða fangelsi og sviptingu skotvopna- og veiðileyfis. Virða skal það
refsingu til þyngingar ef um sjaldgæfar eða fágætar fuglategundir er að ræða,
sbr. 7. gr. laga nr. 64/1994.
Tilraun til brota gegn reglugerð þessari varðar refsingu
sem fullframið brot, sbr. III. kafla almennra hegningarlaga. Hið sama gildir um
hlutdeild í brotum.
Gera má upptækt til ríkissjóðs: Ólöglegt veiðifang,
veiðitæki og annan búnað sem notaður hefur verið við framkvæmd brots, svo og
hagnað af ólöglegri veiði og sölu framangreindra verðmæta. Ekki er það upptöku
til fyrirstöðu þótt annar sé eigandi veiðitækis eða annars sem upptaka er
heimil á en sá sem sekur hefur reynst um brot á ákvæðum reglugerðarinnar. Að
öðru leyti skal fara um eignaupptöku samkvæmt ákvæðum 69. gr. laga nr. 19/1940.
12. gr.
Mál út af brotum gegn reglugerð þessari skulu
rekin að hætti opinberra mála.
13. gr.
Reglugerðin tekur gildi þegar við birtingu
hennar og um leið falla úr gildi eldri reglugerðir sem fjalla um veiðikort og
settar eru á grundvelli laga nr. 64/1994 um vernd, friðun og veiðar á villtum
fuglum og villtum spendýrum.
Ákvæði til bráðabirgða: Þeir sem hafa skotvopnaleyfi eða
eru handhafar veiðiréttar eða hlunninda skv. 18. gr. laga nr. 64/1994 eiga rétt
á veiðikorti skv. 4. gr. án þess að taka veiðipróf sæki þeir um slíkt fyrir 1.
apríl 1996. Að öðrum kosti gilda um þá ákvæði 9. greinar reglugerðarinnar.
Umhverfisráðuneytið,
23. maí 1995.
Guðmundur
Bjarnason.
Magnús
Jóhannesson.
Word útgáfa af reglugerð