REGLUGERÐ
um varnir gegn
hundaæði (rabies).
1. gr.
Til þess að forðast að hundaæði berist til Íslands, er
bannað að flytja til landsins hvers konar dýr, tamin og villt, þar með taldir
fuglar.
Landbúnaðarráðherra getur þó vikið frá banni þessu og
heimilað, að fengnum tillögum yfirdýralæknis, að flytja til landsins hunda,
refi og önnur ræktuð dýr að loknum ákveðnum einangrunartíma.
Setja skal reglur í hvert sinn, er öruggar séu til varnar
því, að sjúkdómar berist með dýrum þeim, sem innflutningur er leyfður á.
2. gr.
Komi það fyrir, að einhverjir flytji inn dýr án heimildar,
skulu þau tafarlaust drepin og skrokkarnir brenndir. Ef lifandi dýr eru flutt
til landsins án heimildar, varðar það sektum fyrir eiganda dýranna, svo og
fyrir skipstjóra þann eða flugstjóra á farartæki því, er dýrin flutti, ef ætla
má að dýrin séu flutt með hans vitund.
3. gr.
Flugfélögum og skipafélögum er óheimilt að taka til
flutnings dýr til Íslands, ef umráðamaður eða eigandi getur ekki framvísað
heimild frá landbúnaðarráðuneytinu um innflutningsleyfi fyrir dýrinu.
Ferðaskrifstofur, flugfélög, skipafélög og aðrir, sem
greiða götur ferðamanna til Íslands, skulu vekja athygli á því, að
innflutningur á dýrum og fuglum er óheimill.
4. gr.
Skylt er hverjum eiganda hunds að auðkenna hund sinn, annað
hvort með auglýstu fjármarki sínu eða öruggu hálsbandi (leðuról) með nafni
eiganda, bæjarnafni (heimili) eða auglýstu brennimarki eiganda.
Nú verður vart ómerkts flækingshunds, sem eigandi finnst ekki
að, og er þá heim sem hundinn finnur, skylt að annast um hann og færa hann til
hreppstjóra (bæjarfógeta, lögreglustjóra) eða gera honum viðvart tafarlaust,
svo hann geti tekið hundinn í vörslu og gert gangskör að því að hafa upp á
eiganda hundsins.
Ef .eigandi hefur ekki gefið sig fram eða fundist 10 dögum
eftir að auglýst hefur verið eftir honum og greitt áfallinn kostnað og eigi
hefur tekist að frá hundinum ábyrgan eiganda, skal hundinum lógað
tafarlaust.
5. gr.
Eigendur hunda, sem hafðir eru um borð í íslenskum skipum;
skulu hafa til þess sérstakt leyfi skipstjóra og lögreglustjóra á stað þeim,
þar sem skipið er skrásett.
Um leið og lögreglustjóri gefur út leyfi til þess að hafa
hund um borð í tilteknu skipi, skal rita á leyfið heiti, aldur, kyn, tegund,
litarhátt og önnur auðkenni skipshundsins. Hundinum skal framvísað þegar leyfið
er gefið út og jafnframt viðhlítandi merkisól. Leyfið gildir lengst í þrjú ár í
senn og rétt er að krefjast gjalds fyrir hverju sinni. Afrit skal varðveitt hjá
lögregluembætti því er .gefur leyfið út:
Allir skipshundar skulu að staðaldri bera hálsband, er gefi
til kynna nafn hundsins. skipsins og skrásetningarnúmer þess. Umráðamaður skal
hafa tiltæka í skipinu heimild lögreglustjóra.
Nú er skipshundur fluttur á nýtt skip og skal þá
lögreglustjóri gefa út nýtt leyfi á sama hátt og að framan greinir.
Ef skipshundur drepst eða er lógað skal það tilkynnt
viðkomandi lögreglustjóraembætti.
6. gr.
Strax og erlend skip koma til landsins skal tollgæslan
ganga úr skugga um hjá yfirmönnum skipsins, hvort um borð í skipinu séu nokkur
dýr. Ef svo reynist, er skipstjóra skylt að hlutast til um að dýrin séu geymd í
læstu herbergi á skipinu, á meðan á dvöl þess stendur. Áður en skipið siglir
frá landinu, skal tollgæslan ganga úr skugga um bað, hvort dýrin séu enn í
vörslu um borð. Sé svo ekki, skal skipstjóri gera fullnægjandi grein fyrir
afdrifum þeirra.
Óheimilt er að hafa hunda eða ketti um borð í íslenskum
skipum þegar þau sigla til útlanda. Ef bann þetta er ekki virt skal fara með
dýr á íslenskum skipum í sama hátt og um: erlend skip sé að ræða, þegar skipið
kemur aftur til Íslands. Gildir það ákvæði uns sex mánuðir ern liðnir frá
síðustu för skipsins til erlendra hafna.
Óheimilt er að fara með íslensk dýr um borð í erlend skip
hér við land, ef í skipinu eru geymd erlend dýr. Sama máli gegnir um íslensk
skip, hafi þau verið í millilandasiglingum einhvern tíma næstliðna sex mánuði.
Ef skipsdýr sleppa í land úr skipum þeim er að framan
greinir, skulu þau ófriðhelg og skulu löggæslumenn hlutast til um að lóga þeim
án tafar.
Nú ganga hvítabirnir eða önnur framandi rándýr á land og
skulu þau þá ófriðhelg.
Sýslumenn á viðkomandi stöðum skulu hlutast til um að dýr
þessi verði unnin eða handsömuð, svo skjótt sem aðstæður leyfa.
7. gr.
Ef þeir sem dýr hafa undir höndum, verða varir við
eftirtalin einkenni, eitt eða fleiri, ætti það að vekja grun um að hundaæði
gæti verið á ferðinni:
Dýrið fer að slefa óeðlilega mikið, röddin breytist, verður
hás og hrjúf og þróttlítil, kynging er erfið, líkt og eitthvað standi í hálsi
dýrsins.
Dýrið er órólegt og hegðar sér annarlega, það glefsar út í
loftið, er hrætt, stundum ringlað.
Stundum ber á árásarhneigð, æsingi eða reiðiköstum, þess á
milli deyfð og sljóleika.
Lamanir koma fram og ágerast smám saman, oftast sjást þær á
afturfótum og neðra skolti. Hundaæði dregur flest dýr til dauða á 3-8 dögum.
Hver sá sem verður var við, að dýr hafi ofangreind einkenni
ætti að forðast að handleika hið sjúka dýr eða kjassa það, en gera
héraðsdýralækni viðvart án tafar. Ef héraðsdýralæknir telur, að grunur um
hundaæði sé á rökum reistur, skal hann þegar í stað tilkynna það yfirdýralækni
og viðkomandi lögregluyfirvaldi. Héraðsdýralæknir skal hlutast til um að
eigandi læsi hið sjúka dýr inni, þar sem það er í öruggri vörslu og þar sem
tryggt er að það valdi ekki skaða á fólki eða dýrum.
Jafnframt því að upplýsa eiganda eða umráðamenn um hættu,
sem af dýrinu getur stafað, skal héraðsdýralæknir gefa fyrirmæli til varnar
smitdreifingu frá hinn sjúka dýri.
Hinu grunaða dýri skal halda í vörslu í 14 daga hið
skemmsta, og fylgjast skal með dýrinu daglega.
Ef dýrið sýnir frekari einkenni er benda til hundaæðis,
skal enn kveða til héraðsdýralækni er tekur ákvörðun um, hvort enn skuli geyma
dýrið uns yfir lýkur eða lóga því, án þess að skadda hausinn. Skal hann án
tafar senda hausinn í tryggum umbúðum til rannsóknar að Tilraunastöð Háskólans
að Keldum.
Ef örðugt reynist að handsama dýr, sem grunur leikur á að
haldið sé hundaæði, svo unnt sé að færa það í örugga geymslu, skal dýrið
aflífað undir stjórn löggæslumanna. Hafi dýrið bitið dýr eða :fólk. skal
einskis láta ófreistað til að handsama það lifandi og færa það í geymslu, til
þess að fá óræka vissu um það, hvort um hundaæði sé að ræða eða ekki.
8. gr.
Nú leiðir frekari rannsókn í ljós að um hundaæði hefur
verið að ræða og skal þá héraðsdýralæknir einskis láta ófreistað til þess að
grafast fyrir um upptök sjúkdómsins og feril hins sjúka dýrs.
Þá skal hann einnig kanna, svo sem frekast er kostur, hvaða
dýr kynnu að hafa orðið fyrir biti eða áreitni af völdum hins sjúka dýrs.
Í því sambandi er eigendum skylt að færa dýr sin til
skoðunar, eða hafa þau tiltæk til skoðunar, ef héraðsdýralæknir óskar þess.
Skal eigandi láta í té næga aðstoð, svo að skoðun geti gengið sem greiðast.
Nú færist eigandi undan að láta skoða dýr sín í þessum
tilgangi, og er þá heimilt að láta sækja dýrin til skoðunar með lögregluvaldi,
hvort sem dýrið er geymt á heimili eiganda eða annars staðar. Kostnað við
lögregluaðgerð skal eigandi dýrsins greiða.
Nú verður viðhlítandi skoðun ekki við komið, eða hún ekki
talin áhættulaus og skal þá færa dýrið í örugga vörslu til frekari athugunar.
9. gr.
Héraðsdýralæknir skal hlutast til um, að hundum og köttum
sem orðið hafa fyrir biti eða áreitni bitóðs dýrs sé lógað án afar. Sama máli gegnir
um önnur húsdýr, sem bitin hafa verið. Löggæslumönnum er heimilt að taka slík
dýr með valdi, hvort sem er á heimili eiganda eða annars staðar. Ef bitóð dýr
ráðast á búfé í húsum eða heimahögum, skal skoða öll dýr á bænum nánar. Heimilt
er að fyrirskipa trygga vörslu á öllum húsdýrum á búinu í allt að 6 mánuði,
hafi dýr þar veikst af hundaæði eða orðið fyrir áreitni eða biti bitóðs dýrs.
Um vörslu, einangrun og varúðarráðstafanir skal fara
samkvæmt fyrirsögn héraðsdýralæknis hverju sinni, að höfðu samráði við
yfirdýralækni.
10. gr.
Nú verður hundaæðis vart á fleiri stöðum í senn og er þá
landbúnaðaráðherra heimilt að fyrirskipa samgöngubann, að því er varðar hunda
og ketti á tilteknu landsvæði.
Á meðan slíkt samgöngubann er í gildi er óheimilt að flytja
hunda og ketti inn á eða út af hinu ákveðna bannsvæði.
Eigendur eða umsjónarmenn skulu sjá um að öllum hundum og
köttum sé haldið innan dyra. Verði vart við hunda og ketti lausa utanhúss eða á
flækingi, skulu löggæslumenn taka þá í sína vörslu til aflífunar eða lóga þeim
þegar í stað.
Innan bannsvæðis er öll notkun hunda við smölun og veiðar
óheimil. Sama máli gegnir um hundasýningar og hundahreinsun og aðra samsöfnun
hunda.
Innan bannsvæðis skulu sveitastjórnir leggja áherslu á að
eyða refum og minkum svo sem frekast er kostur. Óheimilt er að flá loðdýr sem
veidd eru innan bannsvæðis.
Ef hundaæði nær verulegri útbreiðslu, er
landbúnaðarráðherra heimilt að fyrirskipa aðrar ráðstafanir, sem nauðsynlegar
eru taldar til að uppræta sjúkdóminn, t. d. bólusetningu húsdýra, víðtækar
hömlur á samgangi húsdýra, sérstaka vörslu á vegum og takmarkanir á umferð með
húsdýr o. s. frv.
11. gr.
Hver sá sem hefur rökstuddan grun um, að villt dýr (refir,
minkar, villikettir) séu haldin hundaæði, skal þegar í stað gera viðkomandi
hreppstjóra, sýslumanni eða lögreglustjóra aðvart.
Hverjum, sem verður var við ref eða mink, sem fælist ekki
fólk, snuðrar við bæi, er lamaður, ringlaður eða hegðar sér á annan hátt
óeðlilega, ber að gera næsta hreppstjóra aðvart.
Freista skal þess án tafar að fella hið grunaða dýr eða
handsama það lifandi, sé þess nokkur kostur, svo hægt sé að setja það í
geymslu.
Ef fella þarf dýrið, skal það gert án þess að skadda hausin
sem héraðsdýralæknir skal hlutast til um að komið sé til rannsóknar tafarlaust.
Reynist grunur um bitæði á rökum reisur, skal efla
útrýmingu á refum, minkum og villiköttum svo sem frekast er kostur.
12. gr.
Ónæmisaðgerðir gegn hundaæði má eingöngu framkvæma samkvæmt
fyrirmælum yfirdýralæknis og með efnum sem hann segir fyrir um.
Læknismeðferð á dýrum sem grunur leikur á að haldin séu
hundaæði er óheimil.
13. gr.
Brot gegn ákvæðum þessarar reglugerðar varða sektum nema
þyngri refsing liggi við. Sektir renna í ríkissjóð.
Fara skal með mál sem rísa kunna af ákvæðum þessarar
reglugerðar að hætti opinberra mála.
14. gr.
Reglugerð þessi, sem- sett er samkvæmt lögum um dýralækna
nr. 31/1970, lögum um varnir gegn gin- og klaufaveiki nr. 11/1928 og lögum um
innflutning búfjár.nr. /74 1962, öðlast þegar gildi og birtist til eftirbreytni
öllum, sem hlut eiga að máli.
Landbúnaðarráðuneytið, 29.
maí 1980
Pálmi Jónsson.
Sveinbjörn
Dagfinnsson.
Word útgáfa af reglugerð